290. fundur 08. október 2024 kl. 16:30 - 19:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra frá 2022

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Allir tóku til máls.

Fulltrúar bæjarstjórnar á haustfund SSV 16. október nk. eru Jósef Ó. Kjartansson, Garðar Svansson og Ágústa Einarsdóttir sem aðalmenn. Bjarni Sigurbjörnsson, Signý Gunnarsdóttir og Sigurður Gísli Guðjónsson eru varamenn. Auk þess er Loftur Á. Björgvinsson varamaður.

Samþykkt samhljóða.

Fulltrúaráðsfundur Svæðisgarðsins Snæfellsness verður haldinn nk. laugardag, 12. október, á Breiðabliki. Bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar hafa opið umboð til að mæta á fundinn.

Forseti sagði frá fundi sem bæjarfulltrúar áttu 7. október sl. með Gerðu það núna ehf. Þar var kynnt hugmynd um að setja upp safn "Fish tales stories" í Grundarfirði. Safnið myndi byggja á sögu fiskvinnslu og þorskveiða við Ísland. Félagið fékk á dögunum styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands vegna verkefnsins.

Bæjarstjórn þakkar VG Grundarfirði fyrir höfðinglega samfélagsstyrki, sem afhentir voru félagasamtökum á svæðinu sunnudaginn 6. október sl., í kjölfar sölu á húseign félagsins. Styrkirnir voru veittir í minningu Ragnars Elbergssonar, sem lést fyrr á árinu.

GS sagði frá menntaþingi sem hann og LÁB sóttu 30. september sl. Hann sagði einnig frá forvarnafundi sem hann sat 7. október sl. ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúum á Snæfellsnesi og forvarnarráði Snæfellsness. Hann ræddi þörf á gerð samræmdrar forvarnastefnu meðal sveitarfélaganna á Snæfellsnesi.

JÓK sagði fram fundi sem hann sótti fyrir hönd bæjarstjórnar með þingmönnum kjördæmisins, þann 1. október sl. í Borgarnesi.

3.Bæjarráð - 625

Málsnúmer 2409004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 625. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu. Bæjarráð - 625
  • 3.2 2402013 Greitt útsvar 2024
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2024 og janúar-september 2024.
    Bæjarráð - 625 Skv. fyrra yfirlitinu, janúar-ágúst, hefur greitt útsvar hækkað um 3,1% miðað við sama tímabil í fyrra og skv. hinu síðara, janúar-september, er hækkunin 3,9%.
  • 3.3 2406017 Launaáætlun 2024
    Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-ágúst 2024.
    Bæjarráð - 625 Útgreidd laun í janúar til ágúst eru undir launaáætlun tímabilsins, en hafa verður fyrirvara á því að enn er ósamið við mörg stéttarfélög.
  • Lagt fram sex mánaða rekstraryfirlit fyrir janúar-júní 2024.
    Bæjarráð - 625 Rekstur er í samræmi við áætlun fyrstu sex mánuði ársins.
  • Ákvörðun um álagningarprósentu útsvars 2025.
    Bæjarráð - 625 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2025, sundurliðuð niður á álagningarflokka.
    Bæjarráð - 625 Bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2025 kynnt. Farið yfir forsendur og breytingu milli ára.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
  • 3.7 2409014 Gjaldskrár 2025
    Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga 2024.
    Bæjarráð - 625 Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð.

    Rætt um breytingar á þjónustugjaldskrám.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
  • Lagðar fram innkomnar styrkumsóknir vegna ársins 2025 ásamt fylgigögnum.
    Bæjarráð - 625 Farið yfir lista yfir framlagðar styrkumsóknir.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
    Bókun fundar Til máls tóku JÓK og GS.
  • Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2025 ásamt forsenduspá.
    Bæjarráð - 625 Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og drög að fundadagskrá bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða endurskoðaða fundadagskrá vegna fjárhagsáætlunarvinnunnar framundan.
  • Ráðning leikskólastjóra, sbr. auglýsingu starfsins.
    Bæjarráð - 625 Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

    Ein umsókn barst um starf leikskólastjóra, en uppfyllti ekki skilyrði fyrir ráðningu.

    Bæjarstjóri leggur til að Heiðdís Lind Kristinsdóttir, sem verið hefur aðstoðarleikskólastjóri, verði ráðin til eins árs.

    Samþykkt samhljóða.
  • 3.11 2207006 Málefni leikskólans
    Lagt fram bréf leikskólastjóra um viðbótarstöðugildi vegna stuðningsþarfa. Fyrir liggur mat skv. reglum Grundarfjarðabæjar um stuðning og sérkennslu.
    Bæjarráð - 625 Bæjarráð samþykkir 80% viðbótarstöðugildi frá október 2024 til vors 2025.

    Samþykkt samhljóða.
  • 3.12 2401018 Framkvæmdir 2024
    Farið yfir helstu framkvæmdir.
    Bæjarráð - 625 Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi, og Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, sátu fundinn undir þessum lið.

    Rætt um framkvæmdir í kjallara íþróttahúss, gatnaframkvæmdir og framkvæmdir í Sögumiðstöðinni. Jafnframt rætt um þörf á hönnun kerfismynda vegna verkefna sem krefjast viðbótarorku, í tengslum við orkuskipti íþrótta- og skólamannvirkja.

    ÁE vék af fundi undir umræðu um framkvæmdir í kjallara þróttahúss og tók aftur sæti sitt á fundinum eftir þá umræðu.

    Lagt til að unnar verði kerfismyndir fyrir orkufrek framtíðarverkefni, s.s. sundlaugarrennibraut, tengingu rafmagns fyrir tjaldsvæði og rafmagnshleðslustöðvar við íþróttahús, þannig að útfærslur og kostnaður séu þekkt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjóri gerði grein fyrir kostnaði við framkvæmdir við orkuskipti skóla- og íþróttamannvirkja og við breytingar innanhúss í kjallara íþróttahússins. Umræður um stöðu verkefnisins.
  • Lögð fram til kynningar tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 25. september sl., um fyrirhugaða niðurfellingu Hamravegar (5751-01) af vegaskrá.
    Bæjarráð - 625 Fram kemur í erindinu að Vegagerðin, sem veghaldari þjóðvega, hyggist fella veginn af vegaskrá, en hann telst héraðsvegur. Þar sem enginn hafi nú lengur lögheimili eða fasta búsetu að Hömrum uppfylli vegurinn ekki lengur skilyrði til að teljast þjóðvegur.

    Bæjarráð áréttar þann skilning sinn við Vegagerðina, að verði breytingar á búsetu þá verði þessi ákvörðun endurskoðuð.
  • Lagt fram til kynningar bréf Snæfellsjökulsþjóðgarðs, dags. 12. september sl., um áform um gjaldtöku ferðamanna vegna bílastæða við Djúpalónssand.

    Bæjarráð - 625
  • Lagður fram til kynningar samningur við Íslenska gámafélagið ehf. um sorphirðu. Samningurinn er gerður á grunni útboðs sem fram fór fyrr á árinu.
    Bæjarráð - 625
  • 3.16 2409017 SSV - Haustþing 2024
    Lagt fram til kynningar bréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), dags. 23. september sl., um haustþing SSV 2024 sem haldið verður 16. október nk. í Klifi í Ólafsvík.

    Bæjarráð - 625 Á fundi bæjarstjórnar í næstu viku verður gengið frá umboðum vegna þátttöku bæjarfulltrúa á þinginu.
  • Lagt fram til kynningar bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 20. september sl., um ársfund Jöfnunarsjóðs sem haldinn verður 9. október nk.
    Bæjarráð - 625 Bæjarstjóri mun sækja fundinn f.h. bæjarins.
  • Lagður fram til kynningar ársreikningur Skotgrundar vegna ársins 2023.
    Bæjarráð - 625
  • Lagður fram til kynningar ársreikningur Dvalarheimilisins Fellaskjóls vegna ársins 2023 ásamt endurskoðunarskýrslu.
    Bæjarráð - 625
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Ferðamálastofu, dags. 13. september sl., þar sem tilkynnt er að opnað hafi verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
    Bæjarráð - 625 Rætt um verkefni sem sækja megi um í sjóðinn.
  • Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 18. september sl., um helstu forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.
    Bæjarráð - 625
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Veitum, dags. 30. september sl., varðandi lekavandamál í götulögn vatnsveitu í Fagurhóli, og minnisblað Veitna af fundi með fulltrúum bæjarins fyrr á árinu.
    Bæjarráð - 625
  • Lagt fram til kynningar bréf Landverndar, dags. 17. september sl., um verkefnið "Nægjusamur nóvember".
    Bæjarráð - 625

4.Menningarnefnd - 45

Málsnúmer 2408007FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 45. fundar menningarnefndar.
  • Heimsókn menningarnefndar og menningarfulltrúa í Vínlandssetrið í Búðardal 4. sept 2024. Menningarnefnd - 45 Heimsóknin var afar áhugaverð og spunnust góðar samræður hjá nefndinni um möguleika á útfærslu í Grundarfirði.

    Nefndin er sammála um að skynsamlegast væri að framkvæma það í nokkrum fösum þar sem fyrsti fasi yrði tilbúinn vorið 2025 og því hægt að bjóða ferðamönnum í heimsókn strax sumarið 2025.

    Hugmyndir ræddar um að notast við þó nokkra skjái og spila þar myndbönd Bærings Cecilssonar um mannlífið á tímum þess sem þorp voru að byggjast. Einnig rætt hvernig megi bjóða gestum að kynna sér bátinn Brönu og frönsku fallbyssuna.

5.Álagning útsvars 2025

Málsnúmer 2409012Vakta málsnúmer

Tillaga bæjarráðs um álagningarprósentu útsvars 2025.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um álagningu útsvars, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári, eða 14,97% fyrir árið 2025.

Samþykkt samhljóða.

6.Sorpmál - breytingar 2023

Málsnúmer 2212021Vakta málsnúmer

Lögð fram til umræðu samþykkt um meðhöndlun úrgangs, með örfáum viðbótarbreytingum að tillögu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.



Samþykkt Grundarfjarðarbæjar um meðhöndlun úrgangs, með framlögðum breytingum, samþykkt samhljóða.

7.Fjarskiptasjóður - Samningur um styrkta ljósleiðaravæðingu í þéttbýli utan markaðssvæða

Málsnúmer 2410002Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur bæjarins við Fjarskiptasjóð um styrk til ljósleiðaravæðingar í þéttbýli utan markaðssvæða. Um er að ræða átta staðföng (heimili) í þéttbýlinu, sem átti eftir að tengja. Í framhaldinu verður gerður samningur við Mílu um greiðslur fyrir tengingu þessara staðfanga. Míla hefur nú lokið að fullu ljósleiðaravæðingu í Grundarfjarðarbæ.

Bæjarstjórn fagnar þessum mikilvæga áfanga.

8.SSV - Fundur um sjálfbær atvinnusvæði á Vesturlandi

Málsnúmer 2410004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla SSV, sem unnin var af KPMG, um sjálfbær atvinnusvæði á Vesturlandi. Kynningarfundur SSV var haldinn 7. október sl.

9.Heilbrigðisnefnd Vesturlands - Fundargerðir 2024

Málsnúmer 2403013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 191. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 16. september sl.

10.Stjórn SSKS - Fundargerð 76. fundar

Málsnúmer 2410005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 76. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS), sem haldinn var 25. september sl.

11.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2024

Málsnúmer 2401021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 952. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 27. september sl.

12.Dalabyggð - Forgangsröðun vegaframkvæmda

Málsnúmer 2306026Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Dalabyggðar, dags. 20. ágúst sl., ásamt skýrslu með uppfærðri forgangsröðun vegaframkvæmda í sveitarfélaginu Dalabyggð.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:00.