292. fundur 03. desember 2024 kl. 16:15 - 17:40 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Fundurinn er aukafundur, haldinn um málefni Grundarfjarðarhafnar, sbr. ósk bæjarstjórnar á fundi 14. nóvember sl. Fyrir fundinum liggur fundargerð 16. fundar hafnarstjórnar á kjörtímabilinu.

Fulltrúar í hafnarstjórn og hafnarstjóri eru gestir fundarins, en í hafnarstjórn sitja Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri, Arnar Kristjánsson og Garðar Svansson, sem jafnframt er bæjarfulltrúi.

Forseti bauð fundarmenn velkomna.

1.Hafnarstjórn - 16

Málsnúmer 2411004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð hafnarstjórnar.



  • Til umræðu eru áform um viðbyggingu þjónustuhúss við hús hafnarinnar við Nesveg 2.

    Hafnarstjórn - 16 Lagðar fram tillöguteikningar af viðbyggingu, unnar af W7 slf., Sigurbjarti Loftssyni.
    Teikningarnar sýna mismunandi útfærslur húss, hvað varðar lögun og staðsetningu viðbyggingar, sem yrði um 125 m2 að stærð.
    Viðbygging kæmi sunnan við núverandi hafnarhús, en á því svæði er byggingarreitur skv. gildandi deiliskipulagi, sem heimilar stækkun hússins á svæðinu.

    Lögð fram frumdrög að þarfagreiningu sem hafnarstjóri hefur sett fram.
    Hafnarstjórn fór yfir þær þarfir sem fyrir liggja vegna starfsemi hafnarinnar og kalla á betri aðstöðu, einkum til að þjónusta gesti skemmtiferðaskipa og starfsfólk sem kemur að móttöku skipa og gesta. Um er að ræða salernisaðstöðu, rými fyrir leiðsögumenn, bílstjóra, upplýsingagjöf o.fl.
    Stækkun hafnarhúss er þó einnig hugsuð til að mæta þörf fyrir bætta aðstöðu starfsmanna hafnarinnar, vegna aukinna umsvifa en einnig vegna þess að kröfur til slíkrar aðstöðu hafa breyst frá því húsið var reist.

    Með byggingu salerna í þjónustuhúsi skapast tækifæri til að hafa almenningssalerni á einum stað og þar með leggja af þá bráðabirgðaaðstöðu v. almenningssalerna, sem sett var upp í samkomuhúsinu 2019.


    Hafnarstjórn vann nánar í þarfagreiningu, sem er grunnur og forsendur fyrir ákvörðun um viðbyggingu, stærð hennar og skipulagi.
    Einnig fór hafnarstjórn yfir tillöguteikningarnar, sem eru til áframhaldandi vinnslu.

    Hafnarstjórn hefur lagt til við bæjarstjórn að þessi viðbygging sé hluti af framkvæmdum Grundarfjarðarhafnar 2025.
    Hafnarstjórn leggur til að allt kapp verði lagt á að byggingin rísi á næstu mánuðum og að hægt verði að nota hana, eða mestan hluta hennar, vorið 2025.

    Bókun fundar Allir tóku til máls.

    Bæjarstjóri fór yfir drög að fjárfestingaáætlun Grundarfjarðarhafnar 2025. Eftir endurskoðun á fyrstu tillögu (við fyrri umræðu í bæjarstjórn) er nú gert ráð fyrir um 70-75 millj. kr. framkvæmdum á árinu 2025. Rætt var um fjárfestingar hafnarinnar 2025.

    Farið var yfir tillögudrög/teikningu að viðbyggingu við hafnarhúsið Nesvegi 2, sem unnin er af Sigurbjarti Loftssyni. Rætt um forsendur og framkvæmdina sjálfa. Í fundargerð hafnarstjórnar er farið yfir þær þarfir sem leitast er við að uppfylla með viðbyggingunni, auk þess sem þarfagreining liggur fyrir með fundargerðinni.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu hafnarstjórnar um að í fjárfestingaáætlun 2025 verði gert ráð fyrir byggingu þjónustuhúss, með stækkun hafnarhúss Grundarfjarðarhafnar sbr. tillögu og bókun hafnarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að unnið verði að því að viðbygginguna megi taka í notkun vor/sumar 2025
  • Lagt fram til kynningar frumvarp til breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld (bandormur) þar sem m.a. er að finna áform um að sérstakt, nýtt innviðagjald verði lagt á gesti skemmtiferðaskipa sem koma til Íslands.
    Sjá slóð: https://www.althingi.is/altext/pdf/155/s/0307.pdf

    Einnig lögð fram grein sem bæjarstjóri/formaður hafnarstjórnar skrifaði og birstist á visir.is um þessi áform og um áhrif slíkrar gjaldtöku af gestum skemmtiferðaskipa.
    Hafnarstjórn - 16

Gestir

  • Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri - mæting: 16:15
  • Arnar Kristjánsson fulltrúi í hafnarstjórn - mæting: 16:15
Lokið var við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 17:40.