304. fundur 11. desember 2025 kl. 14:00 - 15:27 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Farið yfir minnispunktana, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti nefndi að næsti fundur bæjarstjórnar væri 8. janúar 2026.

Stefnt er að framhaldi af samtali sem átti sér stað í upphafi árs um sameiningu sveitarfélaga á Snæfellsnesi.

GS sagði frá stjórnarfundi sem hann sótti hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi daginn áður.

3.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar.

Bæjarstjórn telur jákvætt að loksins sé komin fram ný samgönguáætlun. Ekki er tekin afstaða til hennar að svo stöddu. Bæjarstjóra falið að veita umsögn um áætlunina.

Samþykkt samhljóða.

4.Bæjarráð - 648

Málsnúmer 2511008FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 648. fundar bæjarráðs.
  • Lögð fram ýmis gögn um íþróttamannvirki.

    Bæjarráð - 648 Rætt um framlögð gögn og um útfærslur við uppbyggingu íþróttamannvirkja.

    SG kom kl. 9:29.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 648
  • Lagt fram níu mánaða rekstraryfirlit fyrir janúar-september 2025. Bæjarráð - 648 Raunrekstur er undir áætlun tímabilsins.
  • Lögð fram umbeðin viðbótargögn frá Skíðadeild UMFG, í tengslum við styrkumsókn v. 2026.

    Bæjarráð - 648 Bæjarráð lauk við ákvörðun um styrki skv. umsóknum.
  • Lögð fram heildargögn, m.a. rekstraryfirlit með samanburði á deildum milli áætlana 2025 og 2026, sem og breytingum frá fyrri umræðu.

    Einnig lagt fram yfirlit með greiningum á ýmsum þáttum í rekstri bæjarins (kennitölur) yfir langt tímabil.
    Bæjarráð - 648 Farið yfir drög að áætlun og greiningagögn.

    Síðari umræða um fjárhagsáætlun fer fram í bæjarstjórn 11. desember nk.

    Í tengslum við umræðu undir lið 9, um framkvæmdir í Hrannarstíg, fór Nanna Vilborg yfir forgangsröðun helstu framkvæmda í götum og við gangstéttar. Ákveðnar áherslur ræddar í bæjarráði, sem færast yfir í fjárfestingaáætlun 2026.

  • Reglur um tímabundinn afslátt af tilteknum eldri byggingarlóðum íbúðarhúsa gilda til næstu áramóta.

    Lögð fram tillaga til bæjarstjórnar, sem felur í sér óbreyttar reglur fyrir árið 2026, þannig að tímabundinn afsláttur nái til þeirra eldri íbúðarlóða sem eftir eru og eru þær tilgreindar.

    Bæjarráð - 648 Lóðirnar sem lagt er til að njóti 50% afsláttar á árinu 2026 eru eftirtaldar:

    - Grundargata 63
    - Fellabrekka 1
    - Hellnafell 1
    - Fellabrekka 7, 9, 11 og 13
    - Fellasneið 5
    - Fellasneið 7
    - Ölkelduvegur 17a-17b

    Tillagan samþykkt samhljóða og kemur til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar á næsta fundi.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir áframhaldandi afslátt af gatnagerðargjöldum til eins árs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram yfirfarin drög að reglum Uppbyggingarsjóðs félags-, íþrótta- og menningarmála.
    Bæjarráð - 648 Farið yfir fyrirliggjandi drög að reglum Uppbyggingarsjóðs.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að þessi tillaga verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir reglur um Uppbyggingarsjóð félags-, íþrótta- og menningarmála.

    Samþykkt samhljóða.
  • Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2026 lögð fyrir bæjarráð til umfjöllunar, í samræmi við bókun bæjarstjórnar á fundi 13. nóvember sl.

    Lagðar fram eldri og nýrri útgáfa fjárhagsáætlunar, og er sú nýrri tekin til afgreiðslu.

    Akraneskaupstaður hafnaði tillögu um viðbótarstöðugildi, þannig að nefndin samdi aðra áætlun og liggur hún hér fyrir.
    Bæjarráð - 648 Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun HeV.

    Samþykkt samhljóða.
  • Kynning á áætlun um gangstéttir og frágang á Hrannarstíg, miðjuhluta.

    Lagt fram bréf til húseigenda á svæðinu frá 7. nóv. sl., einnig plöntuteikning fyrir regnbeð í Hrannarstíg.
    Bæjarráð - 648 Nanna Vilborg fór yfir og kynnti fyrirliggjandi áform um frágang á miðjuhluta Hrannarstígs, frá Fagurhóli og að lóð Sögumiðstöðvar, en þær framkvæmdir eru í samræmi við frágang ofar í götunni.

  • Lagðir fram til kynningar minnispunktar (vinnuskjal) úr umræðum á samráðsfundum sem haldnir voru 17. nóv. sl. um vinnslutillögu fyrir deiliskipulag hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar. Einnig minnispunktar um atriði sem lagt er til að verði skoðuð nánar, í tengslum við gerð deiliskipulags hafnarsvæðis (vinnuskjal).

    Hafnarstjórn hefur lagt til að mánudag 8. des. nk. verði sameiginlegur vinnufundur hafnarstjórnar, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarfulltrúa - um deiliskipulagstillögu hafnarsvæðis. Áður en að þeim fundi komi, verði framangreindir minnispunktar sendir fulltrúum í skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn.

    Bæjarráð - 648 Bæjarráð tekur undir tillögu hafnarstjórnar um að koma á sameiginlegum fundi skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og bæjarfulltrúa þann 8. desember nk.

  • Bæjarstjóri sagði frá því að búið sé að panta nýja dælu í holu nr. 7, þannig að hægt sé að fá fram fulla virkni úr henni, inná varmadælukerfi mannvirkjanna.

    Bæjarráð - 648
  • Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, vegna skoðunar í sundlaug, sem fram fór 11. nóvember sl.
    Bæjarráð - 648 Búið er að lagfæra hluta af þeim atriðum sem gerðar eru athugasemdir við.

    Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi gera athugasemdir við tiltekin atriði í skýrslunni, sem þau telja ekki réttar. Óskað verður skýringa/rökstuðnings frá Heilbrigðiseftirlitinu um þau.

  • Lögð fram til kynningar fundargerð 199. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 17. nóvember sl.
    Bæjarráð - 648 Í fundargerðinni er bókað að lögð séu fram drög að endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 með breytingu sem felist í að hætt sé við að ráða starfsmann til að sinna lóðahreinsunum, eins og fram kom í fyrri fundargerð og útsendri fjárhagsáætlun sem lá fyrir bæjarstjórn 13. nóv. sl. Eins sé framlag sveitarfélaga uppfært milli ára í takt við verðlagsþróun. Þessar breytingar voru samþykktar af heilbrigðisnefnd.
  • Lögð fram til kynningar ársskýsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna ársins 2024.
    Bæjarráð - 648
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Innviðaráðuneytisins, sem hefur í samstarfi við Byggðastofnun gefið út skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu ásamt leiðbeiningum fyrir stjórnvöld um mótun og framkvæmd stefna.
    Leiðbeiningarnar eru settar á grundvelli aðgerðar A.15 í byggðaáætlun, Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis.
    Bæjarráð - 648
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Öryrkjabandalags Íslands með upplýsingum um alþjóðlegan dag fatlaðs fólks 3. desember nk.
    Bæjarráð - 648

5.Hafnarstjórn - 24

Málsnúmer 2511009FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða fundargerð 24. fundar hafnarstjórnar.
  • Hafnarstjóri hefur bókað þátttöku hafnarinnar á Seatrade Cruise kaupstefnur á Miami, Florída í apríl 2026 og á Las Palmas í september 2026.

    Hafnarstjórn - 24 Hafnarstjórn staðfestir þetta.
  • Lögð fram tillaga að gjaldskrá hafnarinnar 2026, ásamt samanburði við gjaldskrár nokkurra annarra hafna.

    Hafnarstjórn - 24 Hafnarstjórn fór yfir einstaka liði og gerði nokkrar minniháttar breytingar á tillögunni. Gjaldskráin taki gildi 1. janúar 2026 og gildi út árið.

    Hafnarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar 2026, eftir smávægilegar breytingar sem gerðar voru á henni á fundinum, og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar 2026.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram drög að fjárhagsáætlun hafnarinnar 2026:
    - Tillaga hafnarstjóra að rekstraráætlun 2026 (tekjur og gjöld).
    - Tillaga hafnarstjóra og bæjarstjóra um fjárfestingar/framkvæmdir og helstu verkefni 2026.

    Hafnarstjórn - 24 Hafnarstjóri fór yfir tillögu að áætlun fyrir rekstur og fjárfestingar 2025.

    Farið yfir áætlunina, einkum áætluð fjárfestingarverkefni 2026.

    Tekjur (hafnargjöld, þjónustugjöld og tekjur af almenningssalernum) eru áætlaðar samtals 210 millj. kr. og útgjöld eru áætluð 138,15 millj. kr. fyrir afskriftir. Rekstrarafgangur er áætlaður tæpar 79 millj. kr. árið 2026.
    Samtals er gert ráð fyrir fjárfestingum uppá 60,1 millj. kr. á árinu 2026.

    Hafnarstjórn samþykkir rekstrar- og fjárfestingaráætlun 2026 fyrir sitt leyti og vísar henni til endanlegrar samþykktar bæjarstjórnar.

    Hafnarstjórn gerir þó fyrirvara um framkvæmdir, vegna framlaga ríkisins til nokkurra fjárfestingarliða, en óvissa er enn um efni og afgreiðslu nýrrar samgönguáætlunar sem beðið er eftir.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Grundarfjarðarhafnar 2026.

    Samþykkt samhljóða.
  • Hafnarstjóri kynnti erindi hollvina varðskipsins Óðins.
    Í undirbúningi er heimsókn Óðins í Grundarfjarðarhöfn í kringum sjómannadag 2026.

    Hafnarstjórn - 24 Hafnarstjórn tekur vel í þetta erindi og felur hafnarstjóra umboð til frekari undirbúnings af hálfu hafnarinnar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram vinnuskjal, samantekt um efni þriggja samráðsfunda um tillögu á vinnslustigi um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar, sem haldnir voru 17. nóvember sl. í samkomuhúsinu.

    Einnig lagðir fram minnispunktar með tillögum að áherslum og mögulegum breytingum, tekið saman eftir samráðsfundina og við frekari skoðun og úrvinnslu á vinnslustigi. Minnispunktarnir eru nokkurs konar "gátlisti" um þau atriði sem taka þarf til umræðu, við gerð skipulagstillögu um svæðið.


    Hafnarstjórn - 24 Hafnarstjórn fór yfir framlögð gögn með skipulagsráðgjafa og skipulagsfulltrúa.

    Hafnarstjórn ræddi um útfærslur í skipulaginu og bætti við atriðum inní lista yfir "tillögur að áherslum og mögulegum breytingum".

    Hafnarstjórn leggur til að fulltrúar úr skipulags- og umhverfisnefnd, bæjarfulltrúar og hafnarstjórn, hittist á vinnufundi um tillögugerðina, eftir að auglýsingatíma og umsagnarfresti um vinnslutillöguna lýkur, þ.e. eftir 1. des. nk. Tillaga um dagsetningu er mánudaginn 8. desember nk., fyrir fund skipulags- og umhverfisnefndar sem haldinn verður þann dag.

    Ennfremur stefnir hafnarstjórn að því að hittast á fundi 2. desember nk. til undirbúnings og rýna þarfir á hafnarsvæði og útfærslur í skipulagstillögu. Þá munu einnig liggja fyrir allar umsagnir/athugasemdir um vinnslutillöguna.

  • Lögð fram til kynningar þau gögn sem send voru Skipulagsstofnun 14. nóvember sl., tilkynning Grundarfjarðarhafnar og beiðni um ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu.

    Hafnarstjórn - 24
  • Lögð fram beiðni Hafnasambands sveitarfélaga vegna erindis Landhelgisgæslunnar um skilgreind hafnarmörk, sem og svar hafnarstjóra. Hafnarstjórn - 24
  • Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, sem skoðaði salernisaðstöðu (almenningssalerni) fyrir ferðamenn í þjónustuhúsi hafnarinnar 29. september sl.

    Heilbrigðiseftirlitið gerir engar athugasemdir við húsnæði og aðstöðu.
    Hafnarstjórn - 24
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Hafnasambands Íslands, 5. nóv. 2025, um fund sem fulltrúar sambandsins áttu með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 4. nóv. 2025, þar sem fjallað var um farþegaskip með áherslu á tollfrelsi.

    Einnig lagt fram minnisblað um tollfrelsi, dags. 3. nóv. 2025, unnið af Lex lögmannsstofu fyrir Hafnasambandið.

    Hafnarstjórn - 24
  • Lögð fram skýrsla frá Hafnasambandi Íslands, Fjárfestingar hafna á Íslandi 2025-2040, Stefnumótandi greining og fjárfestingarmat, unnið af Íslenska sjávarklasanum fyrir Hafnasamband Íslands. Skýrslan var m.a. kynnt á Hafnafundi Hafnasambandsins, sem haldinn var í Ólafsvík 23. október sl.
    Hafnarstjórn - 24
  • Lagt fram minnisblað unnið fyrir Hafnasamband Íslands, um nýlegar lagabreytingar um rafrænt eftirlit í höfnum og aðgang að því. Einnig leiðbeiningar varðandi fyrirspurnir um aðgang tollyfirvalda að rafrænu eftirliti hafna, ásamt tölvupósti Hafnasambandsins 19. nóvember sl. Hafnarstjórn - 24
  • Lögð fram til kynningar ýmis gögn, aðallega frá því í haust, um innviðagjöld og bókunarstöðu skemmtiferðaskipa, m.a. minnisblað tekið saman um stöðuna í Grundarfjarðarhöfn varðandi bókun skipa.
    Hafnarstjórn - 24
  • Lögð fram fundargerð 475. fundar stjórnar Hafnasambandsins, sem haldinn var 10. september sl.
    Hafnarstjórn - 24

6.Hafnarstjórn - 25

Málsnúmer 2512001FVakta málsnúmer

  • Lögð fram eftirfarandi vinnugögn:

    - Minnispunktar vinnufundar með Vegagerðinni Vestursvæði sem fram fór 1. desember sl. Þar var farið yfir ýmis atriði tengd þjóðvegi og umferð í skipulagstillögu, eins og hún var lögð fram á vinnslustigi.

    - Samantekt skilaboða af samráðsfundum um vinnslutillögu 17. nóv. sl., en þetta skjal var einnig lagt fram á síðasta fundi hafnarstjórnar.

    - Vinnuskjal með tillögum að áherslum og breytingum eftir samráðsfundi, fundi hafnarstjórnar og aðra vinnu að tillögunni.

    - Auk þess birt gögn á Skipulagsgátt, umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu.

    Hafnarstjórn - 25 Hafnarstjórn fór yfir framlögð gögn með skipulagsráðgjafa.

    Farið lauslega yfir þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, en helstu skilaboðin verða tekin saman í yfirlit fyrir fund skipulags- og umhverfisnefndar 8. des. nk.

    Hafnarstjórn ræddi um helstu efnisatriði í skipulagstillögu, s.s. um fjölda og stærð lóða, fyrirkomulag þeirra og skilmála, um þarfir á hafnarsvæði, um tilhögun vegar og fleira.

    Vinna þessa fundar verður nýtt til frekari útfærslu skipulagstillögu.

    Mánudaginn 8. desember nk. er stefnt að sameiginlegri umræðu hafnarstjórnar, bæjarfulltrúa og skipulags- og umhverfisnefndar um þetta mál, og verður það hluti af dagskrá fundar skipulags- og umhverfisnefndar.

  • Þann 2. desember sl. lauk kynningu/auglýsingatíma deiliskipulags fyrir hafnarsvæði á Framnesi austan Nesvegar. Búið er að minnka svæðið sem nemur Norðurgarði, en hann fer undir nýtt deiliskipulagssvæði (sjá mál nr. 1 á dagskrá þessa fundar).

    Lagðar fram þær umsagnir sem bárust. EFLA er að vinna samantekt á efni þessara umsagna og verða þær teknar fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar 8. des. nk. og viðbrögð ákveðin við þeim.

    Hafnarstjórn - 25 Engar athugasemdir frá hafnarstjórn, en umsagnir sem bárust eru nánast samhljóða þeim umsögnum sem bárust við fyrri auglýsingu þessarar skipulagstillögu.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 273

Málsnúmer 2511007FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 273. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á fundi sínum 13. nóvember 2025 samþykkti bæjarstjórn bókun skipulags- og umhverfisnefndar frá 10. nóvember 2025, um að auglýsa tillögu um nýtt deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar til kynningar á vinnslustigi skv. 40. gr. skipulagslaga. Einnig var samþykkt greinargerð sem lýsir helstu umhverfisáhrifum stækkunar hafnarsvæðisins, sem fylgigagn með deiliskipulaginu. Greinargerðin er fylgigagn með tilkynningu um stækkunina til Skipulagsstofnunar skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

    Deiliskipulagsvæðið er 24,9 hektarar og nær yfir Norðurgarð, Miðgarð og Suðurgarð hafnarinnar, ásamt aðliggjandi landsvæði, en auk þess er gert ráð fyrir stækkun hafnarsvæðisins með landfyllingu og nýrri vegtengingu við þjóðveg 54. Tillagan er í samræmi við gildandi Aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar.

    Vinnslutillagan var auglýst í Skipulagsgátt á tímabilinu 14. nóvember til og með 1. desember sl. Vinnslutillagan var einnig birt á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar og í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni, auk þess sem útprentuð gögn hennar lágu frammi til sýnis í Ráðhúsi og Sögumiðstöð/bókasafni.

    Haldnir voru þrír fundir með íbúum og hagsmunaaðilum um tillöguna 17. nóvember sl. í Samkomuhúsinu, tveir fundanna voru opnir en einn var lokaður fundur með íbúum við innanverða Grundargötu og Grafarbæjum.

    Lögð eru fram eftirfarandi gögn:

    - Umsagnir og athugasemdir sem bárust gegnum Skipulagsgátt, og samantekt/yfirlit um helstu skilaboð þessara umsagna/athugasemda. Einnig er vísað í Skipulagsgáttina þar sem sjá má allar umsagnir og athugasemdir í heild sinni.

    - Vinnuskjal, samantekt skilaboða af þremur samráðsfundum um tillögu á vinnslustigi um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar, sem haldnir voru 17. nóvember sl. í samkomuhúsinu.

    - Vinnuskjal; minnispunktar með tillögum að áherslum og mögulegum breytingum á skipulagstillögu, tekið saman eftir samráðsfundina og við frekari skoðun og úrvinnslu á vinnslustigi. Minnispunktarnir eru nokkurs konar "gátlisti" um þau atriði sem taka þarf til umræðu, við gerð skipulagstillögu um svæðið.

    - Minnispunktar af fundi með Vegagerðinni 1. des. sl. um vinnslutillöguna.

    Bæjarfulltrúum og hafnarstjórn var boðið að sitja fundinn undir þessum lið og taka þátt í umræðum.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Fundinn sitja Jósef Ó. Kjartansson forseti bæjarstjórnar, Arnar Kristjánsson fulltrúi í hafnarstjórn, Garðar Svansson, fulltrúi í hafnarstjórn og bæjarfulltrúi, Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri og Pálmi Jóhannsson forstöðumaður menningar- og markaðsmála, sem einnig vinnur fyrir Grundarfjarðarhöfn, en hann sat í fjarfundi.

    Halldóra Hreggviðsdóttir og Herborg Árnadóttir skipulagsráðgjafar hjá Alta eru gestir fundarins í fjarfundi.

    ---

    Farið var yfir umsagnir og athugasemdir sem bárust í Skipulagsgátt og einnig vísað í umræður á samráðsfundum.
    Ekki er nauðsynlegt að bregðast formlega við ábendingum á þessu skipulagsstigi, þar sem tillagan var kynnt á vinnslustigi, en þær verða nýttar við áframhaldandi mótun deiliskipulagsins.

    Einnig er greint frá fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar 1. des. sl. Vegagerðin er sátt við legu vegarins og hönnun gatnamótanna við þjóðveg. Fram kom að Vegagerðin vill að beygjuhornið sé 90° eins og það er á tillögunni og telur forhönnun á uppdráttum uppfylla hönnunarskilyrði varðandi legu, breidd vegar og beygjuradíusa. Nýr þjóðvegur liggi frá Snæfellsnesvegi að Hafnartorgi.

    Skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri greindu frá fundi og samskiptum við lóðarhafa á Norðurgarði D.

    Einnig er greint frá tveimur fundum hafnarstjórnar o.fl. og hver talin eru meginviðfangsefni í næstu skrefum skipulagsferlisins.

    Bæjarstjóri/formaður hafnarstjórnar spurði í upphafi umræðu hvort fundarmenn teldu viðbrögð og þær athugasemdir sem borist hafa vera þess eðlis að rétt sé að stöðva eða gera hlé á þessari skipulagsvinnu. Samhljómur var meðal fundarmanna um að halda ætti skipulagsgerðinni áfram og þó bregðast þurfi við mörgum þeirra ábendinga sem borist hafa, þá séu þær ekki þess eðlis að þær eigi að stöðva skipulagsgerðina.

    Ræddar voru ábendingar sem fram komu, á samráðsfundum og í athugsemdum íbúa, um að kanna ætti valkost um nýjan hafnargarð norðan við Norðurgarð, fyrir fiskiskip, frekar en þá landfyllingu og nýjan viðlegukant sem vinnslutillagan gerir ráð fyrir. Bent var á mikið dýpi á þessu svæði og að uppland fyrir slíkt mannvirki sé ekki til staðar. Aldrei hefur verið gert ráð fyrir slíku mannvirki í aðalskipulagi. Skipulagsráðgjafi leggur til að komið verði inná þetta atriði í umhverfismati tillögu.

    Rætt var um skilmála lóða og einstakar lóðir. Engin teljandi gagnrýni hefur komið fram á nýjan þjóðveg eða legu hans. Vegagerðin vill skoða fækkun innakstursleiða á lóðir, frá nýja veginum.

    Rætt var um lækkun hæðar húsa á hluta lóðanna. Einnig var rætt um að fækka metralóðunum og/eða breyta þeim. Hafnarstjórn hefur lagt til að á nyrsta hluta núverandi metralóða verði gerð lóð nr. 13, svipuð að stærð og lóðir nr. 15 og 17.

    Einnig var rætt um að gefa Gilósnum meira rými við Grundargötu og skera af lóð nr. 6 og áfram niður að sjó. Svæðið sem núna er undir lóðir 1-5 gæti hentað vel undir ferðaþjónustu með tengingu við Suðurgarðinn og Gilósinn og rætt um fordæmi að uppbyggingu í öðrum höfnum, með mögulega minni lóðum.

    Rætt um þá áherslu að verið sé að gera hafnarskipulag. Sýn um uppbyggingu á þessu svæði hafi verið í skipulagi síðan 1969. Þetta sé dýrt svæði í uppbyggingu og þessi stækkun sé nauðsynleg til að geta nýtt betur þá fjárfestingu sem lögð hefur verið í uppbyggingu hafnaraðstöðu á síðustu árum með stækkun Norðurgarðs og verði haldið áfram með uppbyggingu nýs garðs á landfyllingunni. Með þessu sé verið að styrkja atvinnustarfsemi í Grundarfirði. Tækifæri opnist til að bjóða nýjum fyrirtækjum aðstöðu á þessu mikilvæga svæði. Uppbygging íbúðarhúsnæðis á landfyllingunni henti ekki í bland við þá starfsemi sem þarna muni verða. Bærinn eigi aðrar hentugri lóðir fyrir slíkt.
    Setja þurfi skýra skilmála í deiliskipulagið um leiðir til að tryggja aðlaðandi ásýnd að þessari stækkun hafnarsvæðisins, sem er um leið ásýnd að bænum.

    Hafnarstjóri vill leiðrétta rangar upplýsingar sem komu fram á íbúafundum um hæð húss að Borgarbraut 1, en þar var sagt það væri tíu metra hátt. Rétt hæð er 12 metrar.

    Rætt um framsetningu gagna. Hluti af vinnu við gerð skipulagstillagnanna sjálfra (næsta stig) er að gera góðar ásýndarmyndir og tryggja einnig að byggingarreitir og nýtingarhlutfall lóða séu greinileg á uppdráttum.

    Sérstaklega var rætt um þær góðu ábendingar sem fram komu á samráðsfundunum, um lóðir og hús sem ekki eru í markvissri notkun eða hafa lokið upphaflegu hlutverki sínu á og við hafnarsvæðið. Ábendingar komu þar fram um að hvetja þurfi eða ýta á lóðarhafa/húseigendur að losa um slík mannvirki og nýta þau og lóðir betur til uppbyggingar atvinnustarfsemi í Grundarfirði.

    Þessum lið var lokið kl. 15:35 og gestir yfirgáfu þá fundinn.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Tillaga að deiliskipulaginu "Framnes austan við Nesveg" var auglýst í Skipulagsgátt frá 14. október til 2. desember 2025. Lagðar fram þær umsagnir sem bárust og samantekt umsagna og athugasemda og tillaga skipulagsfulltrúa að viðbrögðum við þeim.

    Tillagan hafði áður fengið deiliskipulagsmeðferð en m.t.t. auglýsingafrests skv. 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga þurfti að endurauglýsa tillöguna. Var það gert með þeirri breytingu sem samþykkt var á 271. fundi nefndarinnar, um að Norðurgarður og miðsvæði hafnar færist yfir í deiliskipulagsvinnu fyrir suðurhluta hafnarsvæðis (Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar, sjá mál 1 á dagskrá þessa fundar).

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála fór yfir þær umsagnir sem bárust og tillögu skipulagsfulltrúa um viðbrögð við þeim. Framkomnar umsagnir eru að miklu leyti samhljóða umsögnum/athugasemdum sem bárust við fyrri auglýsingu deiliskipulagstillögunnar.

    Lagt er til að gerðar verði minniháttar lagfæringar á tillögunni, þannig að bætt verði við skilmála í 4. kafla vegna athugasemda Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, og að umfjöllun/tilvísun í Verndaráætlun Breiðafjarðar verði bætt við kafla 3 í greinargerð, um tengsl við aðrar áætlanir. Sjá nánar á samantekt umsagna.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að senda umsagnaraðilum viðbrögð nefndarinnar, í samræmi við framlagða tillögu. Að gerðum þeim lagfæringum, sem að framan er getið, samþykkir skipulags- og umhverfisnefnd deiliskipulagið á grundvelli 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að ganga frá því í samræmi við 42. skipulagslaga, að fengnu samþykki bæjarstjórnar, og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við deiliskipulagið.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á 268. fundi skipulags- og umhverfisnefndar þann 30. apríl sl. var skipulagsfulltrúa falið að fylgja eftir viðbrögðum nefndarinnar í samvinnu við framkvæmdaraðila. Vinnslutillögur að breyttu aðal- og deiliskipulagi voru auglýstar samhliða í Skipulagsgátt 11.-25. apríl sl. og bárust alls átta athugasemdir við aðalskipulagið og átta athugasemdir við deiliskipulagið. Síðar bættust við tvær athugasemdir til viðbótar við hvora tillögu.

    Arkitektastofan Landlínur hefur nú tekið við vinnslu málsins fyrir landeiganda.

    Lagðar fram tillögur að breytingu á aðalskipulagi til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga og um nýtt deiliskipulag til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga, þar sem höfð hefur verið hliðsjón af þeim umsögnum/athugasemdum sem bárust við tillögur á vinnslustigi.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála fór yfir þær umsagnir/athugasemdir sem bárust við skipulagstillögu á vinnslustigi og hvernig brugðist hefur verið við þeim í bæði aðal- og deiliskipulagstillögu.

    Vegna athugasemda frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands er m.a. fyrirhugað að bora eftir vatni innan lóðar og búið að teikna inn fráveitukerfi. Þá hefur verið gerð fornminjaskráning fyrir svæðið. Ennfremur er ítarlegri umfjöllun um margvísleg atriði í tillögunum. Sjá nánar í samantektarblaði.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun aðalskipulagstillöguna til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og að auglýsa hana, í framhaldi af niðurstöðu Skipulagsstofnunar, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur, í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga, felur nefndin skipulagsfulltrúa að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á 271. fundi skipulags- og umhverfisnefndar var skipulagsfulltrúa falið að grenndarkynna breytt deiliskipulag Sólbakka í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Landeigandi skilaði uppdrætti með undirritun grenndaraðila. Auglýsa þarf deiliskipulagsbreytinguna til að hún öðlist gildi. Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við uppdráttinn sem skilað var og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa óverulegu deiliskipulagsbreytingu í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á 272. fundi skipulags- og umhverfisnefndar afgreiddi nefndin skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð á Háubökkum og bæjarstjórn staðfesti afgreiðsluna á 303. fundi sínum. Hún var til kynningar í Skipulagsgátt frá 14. nóvember til og með 1. desember sl. Skipulagsgögn voru einnig aðgengileg í Ráðhúsi, í Sögumiðstöð og á vef Grundarfjarðarbæjar.

    Umsagnir bárust frá eftirfarandi aðilum og eru þær lagðar fram, auk samantektar á efni þessara umsagna:

    Míla
    Vegagerðin
    Minjastofnun Íslands
    Veitur
    Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Um er að ræða umsagnir um skipulagslýsingu og er ekki þörf á að bregðast sérstaklega við þeim með svari til umsagnaraðila.

    Efni umsagnanna verður haft til hliðsjónar við frekari deiliskipulagsvinnu.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á 272. fundi skipulags- og umhverfisnefndar samþykkti nefndin skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar vegna stækkunar á ÍB-4 og bæjarstjórn staðfesti afgreiðsluna á 303. fundi sínum.

    Lýsingin var til kynningar í Skipulagsgátt frá 14. nóvember til og með 1. desember sl. Skipulagsgögn voru einnig aðgengileg í Ráðhúsi, í Sögumiðstöð og á vef Grundarfjarðarbæjar.

    Farið var yfir umsagnir sem bárust á auglýsingatíma, en þær voru frá eftirfarandi aðilum og samhliða umsögnum (dagskrárliður 5) sem bárust um deiliskipulagið:

    Míla
    Vegagerðin
    Slökkvilið Grundarfjarðar
    Minjastofnun Íslands
    Veitur
    Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Um er að ræða umsagnir um skipulagslýsingu og er ekki þörf á að bregðast sérstaklega við þeim með svari til umsagnaraðila.

    Efni umsagnanna verður haft til hliðsjónar við frekari skipulagsvinnu v. breytinga á aðalskipulaginu.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Landeigandi Hamra spyrst fyrir um það hvort það rúmist innan almennra heimilda í aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar að breyta núverandi húsum í gistirými. Hann hefur látið útbúa kynningargögn með hugmyndum að breytingum og vonast til að geta hafið framkvæmdir við breytingu húsa sem þegar eru til staðar.

    Taka þarf afstöðu til þess hvort þær framkvæmdir/breytingar sem kynntar eru rúmist innan almennra heimilda í aðalskipulagi og jafnframt hvort óska eigi eftir gerð deiliskipulags eða grenndarkynningu.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Samkvæmt Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 (sjá bls. 128) er heimilt að reka gististað fyrir allt að 20 gesti á hverju lögbýli sem í aðalskipulagi sé skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Fari gestafjöldi umfram það kallar það á aðalskipulagsbreytingu. Sé einungis um að ræða notkun núverandi bygginga og gestafjöldinn sé undir 20 þurfi ekki aðalskipulagsbreytingu. Áður en leyfi er veitt þarf, eftir umfangi og eðli framkvæmda, að vinna deiliskipulag eða grenndarkynna framkvæmdirnar fyrir eigendum lóða/fasteigna í upprunalandi Hamra.

    Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við landeiganda/framkvæmdaraðila um umfang fyrirhugaðrar starfsemi og leiðbeina honum um næstu skref. Jafnframt felur nefndin skipulagsfulltrúa umboð til að setja málið í þann farveg sem við á, byggt á niðurstöðum úr samtali við eiganda/framkvæmdaraðila.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi fasteignar að Fagurhólstúni 2 fyrirhugar að hækka bílskúr, sbr. aðaluppdrátt.
    Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Taka þarf afstöðu til grenndarkynningar.

    Málinu var vísað til skipulags- og umhverfisnefndar af byggingarfulltrúa þar sem ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum húsa við Fagurhólstún 4, Grundargötu 37 og 41, og Eyrarveg 17 og 20. Komi ekki fram athugasemdir í grenndarkynningu teljast áformin samþykkt.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigendur að Nesvegi 5 óska eftir að fá að setja hitalagnir í gangstétt við Nesveg 5, framan við aðalinngang, þegar gangstétt verður endurnýjuð. Engin lóð fylgir húsinu þeim megin sem það snýr út í Nesveg.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við ósk lóðarhafa, enda greiði þeir kostnað við verkið.

    Verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála er falið að vinna málið áfram í samstarfi við hlutaðeigandi aðila.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Útbúin hefur verið stöðluð hönnun fyrir niðurtektir og gönguþveranir í götum, þar sem endurnýja á gangstéttir. Um er að ræða leiðbeiningar fyrir verktaka sem sjá um framkvæmdir fyrir Grundarfjarðarbæ.

    Þetta á að vera okkar staðlaða útlit/útfærsla til þess að fá samræmt útlit og fylgja helstu reglum og stöðlum í þessum málaflokki.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Leiðbeiningarnar munu héðan í frá verða hið almenna viðmið. Verkefni eru þó mismunandi og þarf þá að vera hægt að taka tillit til þess með viðeigandi breytingum í samráði við fulltrúa bæjarins.

    Skipulags- og umhverfisnefnd lýsir yfir ánægju með framkomna hönnun og felur verkefnisstjóra að vinna að samræmingu í samstarfi við þjónustumiðstöð og verktaka.

  • Unnið er að frágangi ýmissa atriða í hönnun á næsta áfanga í ICEWATER verkefni bæjarins (blágrænar ofanvatnslausnir). Um er að ræða kafla á Borgarbraut, frá Grundargötu að Hlíðarvegi. Áður var búið að malbika gangstéttar báðum megin í götunni og gróf hönnun liggur fyrir.

    Hönnuður bendir á ákveðin atriði sem útfæra þarf lausnir á.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Almennar umræður um ákveðin atriði við hönnun Borgarbrautar hvað varðar blágrænar ofanvatnslausnir.

    Verkefnastjóra falið að vinna áfram að lausn með hönnuðum.
  • Lagt fram erindi frá RARIK þar sem óskað er eftir lóð fyrir spennistöð á iðnaðarsvæðinu vestan við Kverná.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Skipulagsfulltrúa falið að finna hentuga staðsetningu undir lóð í samstarfi við RARIK og vinna að málinu.
  • Aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, Nanna Vilborg, hefur í samstarfi við íþrótta- og tómstundafulltrúa, Hinrik, og Berg Þorra Benjamínsson Verkefnastjóra hjá ÖBÍ-Réttindasamtökum, gert létta úttekt á íþróttahúsinu og sundlauginni með það í huga að aðili á hjólastól gæti komist klakklaust í sund eða á íþróttaviðburð í húsinu.

    Gerð var samantekt (sjá fylgiskjal) og hún send á ÖBÍ til skoðunar. Mun ÖBÍ síðan koma með ráðleggingar. ÖBÍ setur fyrirvara á þetta verkefni sem er ákveðin tilraun á landsvísu og segir:

    "Verkefnastjóri byggir sínar niðurstöður og ráðleggingar á skoðun teikninga og mynda auk þess að vera notandi hjálpartækja í meira en 25 ár. Niðurstöður og álit sem fram koma í kynningu verkefnastjóra skulu því ekki túlkuð sem fagleg greining í samræmi við íslenska löggjöf. Það er á ábyrgð þess aðila sem óskaði eftir áliti verkefnastjóra að leita til viðurkenndra fagaðila til að framkvæma nauðsynlegar mælingar og greiningar sem uppfyllir kröfur laga og reglugerða."
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Lagt fram til kynningar.
  • Til að fá leyfi til flugeldasölu þarf Björgunarsveitin leyfi lóðareiganda, sem er Grundarfjarðarbær.

    Byggingarfulltrúi skrifaði uppá f.h. bæjarins. Um er að ræða árlegt erindi.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273 Lagt fram til kynningar.
  • Verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála ræðir tvö mál.

    Verið er að taka saman skýrslu um frætilraunir með Fóðurblöndunni, á grunni samnings aðila, og verður hún kynnt nefndinni.

    Einnig hefur verið send skýrsla á Vegagerðina vegna hraðahindrana sem settar voru upp í sitt hvorum enda bæjarins síðla sumars/í haust.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 273

8.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 10

Málsnúmer 2506002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða 10. afgreiðslufund byggingarfulltrúa.
  • Marta Magnúsdóttir sækir um leyfi fyrir breyttri notkun á bílskúr yfir í íbúð við Fagurhólstún 2, með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Ólöfu Flygernring dagsettum 10 maí 2025. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 10 Á 259.fundi skipulags- og umhverfisnefndar var tekin fyrir fyrirspurn frá húseiganda að Fagurhólstúni 2, þar óskaði húseigandi eftir því að fá að breyta skráningu á bílskúr yfir í íbúð.
    Skipulagsnefnd samþykkti fyrir sitt leyti breytt not og að skráning bílskúrs breytist í íbúð og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild / leyfi að öllum skilyrðum byggingarreglugerðar uppfylltum.

    Byggingaráform eru samþykkt, umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr.1.3.2 í byggingarreglugerð.
    Bygggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
  • Vélsmiðja Grundarfjarðar sækir um leyfi fyrir 1.008,6 m2 geymsluhúsnæði við Hjallatún 1, húsið er á steyptum sökklum og botnplötu en burðarvirki veggja og þaks er stálgrind sem klæðist með samlokueiningum. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Verkfræðistofu Ívars Haukssonar ehf. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 10 Byggingaráform eru samþykkt, umsóknin er í samræmi við gildandi deiliskipulag.

    Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr.1.3.2 í byggingarreglugerð.
    Bygggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

9.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 11

Málsnúmer 2512003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða 11. afgreiðslufund byggingarfulltrúa.
  • Ágúst jónsson sækir um leyfi fyrir 17m2 sólskála á suðurhlið Ölkelduvegs 37. Megin burðarvirkið verður úr stáli. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Hraunsmúla ehf dags. 26.11.2025. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 11 Sólskáli er innan bygginarreits og innan heimilaðs nýtingarhlutfalls.
    Samkvæmt skilmálum deiliskipulags skal frágangur á lóðamörkum vera í samráði við eiganda aðliggjandi lóðar, eiganda af Ölkelduvegi 35 var kynnt fyrirhuguð leyfisumsókn og staðfesti að hann gerði ekki athugasemdir.
    Byggingaráform eru samþykkt, umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr.1.3.2 í byggingarreglugerð.
    Bygggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

10.Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 4

Málsnúmer 2409008Vakta málsnúmer

Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025 er í vinnslu.

Bæjarstjórn veitir bæjarráði umboð sitt til að ljúka og ganga frá viðaukanum.

Samþykkt samhljóða.

11.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2026

Málsnúmer 2509019Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir, ásamt tillögu bæjarráðs frá síðasta fundi, til afgreiðslu í heild sinni í bæjarstjórn. Jafnframt lagt fram yfirlit yfir úthlutanir og stöðu uppbyggingarsjóðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs að styrkveitingum ársins 2026.

Samþykkt samhljóða.

12.Skólahreysti - Ósk um styrk

Málsnúmer 2512008Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá stofnanda Skólahreysti f.h. Hreystismiðjunnar ehf. með ósk um styrk til endurnýjunar á tækjum.

Bæjarstjórn vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

13.Fjárhagsáætlun 2026 - síðari umræða

Málsnúmer 2509013Vakta málsnúmer

Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun 2026-2029 ásamt uppfærðri fjárfestingaáætlun, samanburðaryfirliti og greinargerð með fjárhagsáætlun.

Fjárhagsáætlun ársins 2026 kynnt við síðari umræðu í bæjarstjórn. Farið yfir áætlaðan rekstur, efnahag og sjóðsstreymi, auk útlistunar á breytingum sem hafa orðið milli umræðna.

Jafnframt farið yfir þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029.

Skv. rekstraryfirliti fjárhagsáætlunar 2026 fyrir A- og B-hluta eru heildartekjur áætlaðar 2.162 millj. kr. Áætlaður launakostnaður er 1.100 millj. kr., önnur rekstrargjöld 707,5 millj. kr. og afskriftir 98,0 millj. kr. Fyrir fjármagnsliði er gert ráð fyrir að rekstrarafkoma verði 214,9 millj. kr. Gert er ráð fyrir 119,0 millj. kr. fjármagnsgjöldum. Áætlun 2026 gerir ráð fyrir 137,7 millj. kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu (A- og B-hluta).

Skv. sjóðsstreymisyfirliti áætlunarinnar er veltufé frá rekstri 321,1 millj. kr. þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskriftum og áföllnum en ógreiddum verðbótum og gengismun, auk annarra breytinga á skuldbindingum. Þessi fjárhæð nýtist síðan til afborgana lána og nauðsynlegra fjárfestinga sem brýnt er að ráðast í á árinu 2026. Ráðgert er að fjárfestingar verði 391,2 millj. kr., afborganir lána 175,3 millj. kr. og að tekin verði ný lán að fjárhæð 250 millj. kr. Miðað við þær forsendur er breyting á handbæru fé 4,5 millj. kr. Handbært fé í árslok ársins 2026 er því áætlað 69,6 millj. kr. gangi fjárhagsáætlun ársins 2026 fram eins og ráðgert er.

Allir tóku til máls.

Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029 samþykkt samhljóða.

14.Hrannarstígur 34 - sala á húsnæði

Málsnúmer 2512011Vakta málsnúmer

Með auglýsingu á vef Grundarfjarðarbæjar 20. nóvember sl. var íbúð sveitarfélagsins að Hrannarstíg 34 auglýst til sölu. Tilboðsfrestur var til 8. desember 2025. Engin tilboð bárust í eignina. Málið er lagt fyrir bæjarstjórn til ákvörðunar um næstu skref söluferlis.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra umboð til þess að halda söluferli fasteignarinnar áfram, bæði til þess að taka við tilboðum og gera gagntilboð vegna sölu eigna. Berist tilboð í fasteignina skal bera þau undir bæjarráð. Bæjarstjóra er falið umboð til þess að undirrita kauptilboð, gagntilboð, kaupsamning og önnur skjöl sem þörf krefur vegna sölu eignarinnar. Skjöl ber að undirrita með fyrirvara um endanlega staðfestingu bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

15.FSN - Skólaakstur 2025

Málsnúmer 2509006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga ásamt reikningi að fjárhæð 1.895.156 kr. vegna skólaaksturs á vorönn 2025

16.Sorpurðun Vesturlands - Gjaldskrá 2026

Málsnúmer 2512006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun Sorpurðunar Vesturlands fyrir árið 2026 ásamt gjaldskrá ársins 2026.

17.EBÍ - Tilkynning- Ágóðahlutur til aðildarsveitarfélaga EBÍ

Málsnúmer 2511008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf EBÍ vegna ágóðahluta 2025. Hlutur Grundarfjarðarbæjar er 419.000 kr.

18.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503005Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir Breiðafjarðarnefndar:

Fundargerð 236. fundar sem haldinn var 18. ágúst sl.

Fundargerð 237. fundar sem haldinn var 29. október sl.

19.SSKS - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS):

Fundargerð 83. fundar sem haldinn var 20. júní sl.

Fundargerð 84. fundar sem haldinn var 27. ágúst sl.

Fundargerð 85. fundar sem haldinn var 24. september sl.

20.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2502011Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 14. nóvember sl.

21.UMFÍ - Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ

Málsnúmer 2512005Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf UMFÍ, dags. 13. nóvember sl., með áskorunum og hvatningum frá Sambandsþingi UMFÍ til ríkis og sveitarfélaga.

Bæjarstjórn vísar erindinu til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundanefnd.

22.Innviðaráðuneytið - Boð um þátttöku í samráði Endurskoðun stjórnvaldsfyrirmæla um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Málsnúmer 2512007Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Innviðaráðuneytisins, dags. 5. desember sl., með boði um þátttöku í samráði um endurskoðun stjórnvaldsfyrirmæla um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga eftir setningu laga nr. 56/2025.

23.Trúnaðarmál -

Málsnúmer 2512009Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi sem bókað verður sem trúnaðarmál.

SGG vék af fundi undir þessum lið.

Erindið og niðurstaða bókuð í trúnaðarmálabók.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:27.