305. fundur 08. janúar 2026 kl. 14:00 - 16:16 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Rætt um sameiningarsamtal, en oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps hefur verið í sambandi forseta.

Næsti fundur skipulags- og umhverfisnefndar er fyrirhugaður 20. janúar nk. Gert er ráð fyrir að bjóða fulltrúum úr hafnarstjórn og bæjarstjórn inná fundinn, til vinnufundar/samtals um deiliskipulag hafnarsvæðis, sem unnið er að.

Rætt um auglýsingu lóða í Ölkeldudal.

3.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri sagði frá drögum að umsögn um Samgönguáætlun sem er í vinnslu.

4.Bæjarráð - 649

Málsnúmer 2512004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 649. fundar bæjarráðs.
  • 4.1 2502020 Greitt útsvar 2025
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-nóvember 2025.
    Bæjarráð - 649 Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 11,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lögð fram til kynningar fyrir bæjarráði samskipti bæjarstjóra við Skattinn, í framhaldi af beiðni Grundarfjarðarbæjar til Skattsins í júní sl., sem ekki hefur enn verið svarað.
    Um er að ræða ósk um upplýsingar, sem nýttar verða í greiningu á útsvarstekjum bæjarins, sem SSV - Vífill Karlsson - hefur unnið að fyrir bæinn.

    Einnig lagt fram erindi bæjarstjóra til fjármálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um þá stöðu að Skatturinn svari ekki erindi bæjarins sem varðar möguleika sveitarfélaga á að greina útsvarstekjur sínar með réttmætum hætti.

    Bæjarráð - 649 Svar barst 9. desember sl. um að erindinu yrði svarað með gögnum í þessari viku.
    Bókun fundar Bæjarstjóri upplýsti að þann 19. desember sl. hefðu borist gögn frá Skattinum, en að SSV hefði ekki haft tök á að fara yfir hvort það væru þær upplýsingar sem um hefði verið beðið.
  • Bæjarstjórn vísaði því til bæjarráðs að afgreiða viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2025.
    Bæjarráð - 649 Lögð fram tillaga að fjórða viðauka við fjárhagsáætlun A- og B-hluta bæjarsjóðs fyrir árið 2025.
    Helstu breytingar felast í hækkun fjárfestinga á B-hluta og tilfærslu milli A- og B-hluta. Hækkun fjárfestinga nemur 20,2 millj. kr. og tekjur hafnar eru hækkaðar á móti um 16 millj. kr.

    Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025 samþykktur samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2025.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarstjórn samþykkti 20 millj. kr. lántöku í september sl. í viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2025.
    Bæjarráð - 649 Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

    Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á bæjarráðsfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 20.000.000.- á árinu 2025, til viðbótar við fyrri samþykkta lántöku, með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram.

    Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að standa straum af afborgunum lána og nauðsynlegum framkvæmdum, einkum vegna fjárfestinga á höfn en verkefnið hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli eða tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir lántöku að fjárhæð 20 millj. kr. vegna ársins 2025, sem áður var samþykkt í viðauka 3 við fjárhagsáætlun ársins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skv. ákvörðun bæjarstjórnar á fundi 11. desember sl. var þessu erindi vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð - 649 Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Erindi Skógræktarfélagsins snýst um að rækta upp birkiskóg á svæði í landi Hallbjarnareyrar. Það land er í eigu ríkisins og hefur verið í landbúnaðarnotum. Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um málið. Skipulagsfulltrúa var falið að ræða við fagaðila. Fundað var með Fjársýslu - ríkiseignum (FSRE) síðastliðið sumar. Fram kom hjá FSRE að unnt væri að taka land undir þessi not og minnka þar með landbúnaðarland, gera þyrfti sérstakan langtímasamning um það og auk þess þyrfti að girða svæðið af.
    Skipulagsfulltrúi leitaði afstöðu Skógræktarfélagsins um þetta.
    Bæjarráð - 649 Í ljósi framangreindra upplýsinga telur bæjarráð ekki tímabært að efna til samningsviðræðna við ríkið um land í þessu skyni.

    Bæjarráð leggur áherslu á gott samstarf við Skógræktarfélagið um uppbyggingu á þeim svæðum sem þegar eru undir í skógrækt á vegum félagsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Af hálfu Grundarfjarðarbæjar var sótt um styrk til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vegna fráveituframkvæmda. Svar hefur borist um að styrkbeiðnin hafi verið samþykkt um allt að 30% kostnaðarþátttöku ráðuneytisins fyrir árin 2025 og 2026. Styrkurinn nær til framkvæmda sem falla undir blágrænar fráveitulausnir.
    Bæjarráð - 649

5.Skólanefnd - 183

Málsnúmer 2510005FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 183. fundar skólanefndar.
  • Lögð fram drög að skólanámskrá leikskólanna í Grundarfirði, þ.e. Leikskólans Sólvalla og leikskóladeildarinnar Eldhamra. Ásgarður, skólaráðgjöf, hefur veitt aðstoð við þessa vinnu.

    Skólanefnd - 183 Leikskólastjóri fór yfir helstu atriði í starfseminni.

    Bæjarstjóri sagði frá vinnu við fjárhagsáætlun 2026. Ákveðið að skólanefnd myndi halda áfram að fara í heimsókn í stofnanir sem undir svið nefndarinnar heyra.

    Undir þessum lið og þeim næsta fór Gunnþór hjá Ásgarði yfir þau gögn sem tilheyra vinnu við eftirfylgni nýrrar menntastefnu. Hann og leikskólastjóri sögðu frá gerð skólanámskrár fyrir Sólvelli og Eldhamra, sem lögð er fram. Farið var yfir lauslega yfir efni skjalsins.

    Rætt um skólastarfið.


  • Skólanefnd - 183 Skólastjóri fór yfir helstu atriði í starfseminni.

    Bæjarstjóri sagði frá vinnu við fjárhagsáætlun 2026. Ákveðið að skólanefnd myndi halda áfram að fara í heimsókn í stofnanir sem undir svið nefndarinnar heyra og m.a. heimsækja grunnskólann.

    Undir þessum lið og þeim næsta fór Gunnþór hjá Ásgarði yfir þau gögn sem tilheyra vinnu við eftirfylgni nýrrar menntastefnu. Rætt um þá vinnu og afurðir vinnunnar.

  • Lögð fram drög að skólanámskrá leikskólanna í Grundarfirði, þ.e. Leikskólans Sólvalla og leikskóladeildarinnar Eldhamra. Ásgarður, skólaráðgjöf, hefur veitt aðstoð við þessa vinnu.



    Skólanefnd - 183 Sjá nánari umfjöllun um skólanámskrá og starfsáætlanir undir dagskrárlið 1.

    Umræður um skólastarfið.
  • Skólanefnd - 183 Kynnt að fyrirhugað sé opið hús mánudaginn 27. október nk. í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans fyrr á þessu ári.

  • Skólanefnd - 183 Bæjarstjóri sagði frá helstu framkvæmdum sem verið hafa í gangi 2025 og fór yfir vinnuna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir komandi ár.

6.Skólanefnd - 184

Málsnúmer 2511001FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 184. fundar skólanefndar.
  • Starfsáætlun vetrarins lögð fram, í formi skóladagatals og skriflegrar áætlunar.

    Skólanefnd - 184 Linda María aðstoðarskólastjóri fór yfir framlögð gögn og sagði frá starfseminni og áætlun vetrarins.

    Á haustönn 2025 eru 52 nemendur skráðir í skólann. Kennarar eru þau Alexandra Sukhova, Baldur Orri Rafnsson, Valbjörn Snær Lilliendahl og Linda María Nielsen, sem jafnframt er aðstoðarskólastjóri.

    Efnt var til opins húss 27. október sl. í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans fyrr á árinu. Bæjarbúum var boðið að skoða nýtt og betrumbætt húsnæði skólans eftir breytingar síðasta árs, tónlistaratriði voru í boði og veitingar. Rúmlega 100 manns mættu og tókst þetta mjög vel og var mikil ánægja meðal gesta, eins og segir í framlögðu skjali frá aðstoðarskólastjóra.

  • Lögð fram skýrsla skólastjóra grunnskóla og svör við spurningum skólanefndar, einnig lögð fram símenntunaráætlun skólaársins 2025-2026 fyrir grunnskólann og skýrsla innra mats í grunnskólanum, frá júní 2025.

    Skólanefnd - 184 Farið yfir framlögð gögn og upplýsingar og þau rædd.

    Gunnþór sagði frá því starfi sem unnið er með stjórnendum og starfsfólki skólans og Eldhamra á grunni menntastefnu.

  • Lögð fram gögn frá Eldhömrum, þ.e. námsvísir 2024-2026, og punktar frá Eldhömrum um starfið.

    Skólanefnd - 184 Farið yfir gögn og þau rædd.

  • Lögð fram gögn frá leikskólastjóra; Gögn/upplýsingar og svör leikskólastjóra við spurningum skólanefndar skv. starfsáætlun, umbótaáætlun 2025-2026, starfsáætlun Leikskólans Sólvalla 2025-26, skýrsla innra mats 2024-2025 og skólanámskrá leikskólanna (sama skjal og á síðasta fundi).

    Skólanefnd - 184 Leikskólastjóri fór yfir gögn og helstu upplýsingar.

    Gunnþór sagði frá því starfi sem unnið er með stjórnendum og starfsfólki leikskólans og Eldhamra á grunni menntastefnu.

  • 6.5 2501025 Framkvæmdir 2025
    Bæjarstjóri fór yfir helstu framkvæmdir 2025 í skólum og við íþróttaaðstöðu.
    Skólanefnd - 184 Hæst ber að nefna miklar framkvæmdir á skólalóðum, bæði leik- og grunnskóla. Endurnýjuð voru leiktæki og gerðar aðrar umbætur í lóðunum.

    Á grunnskólalóð var kastali og annað leiktæki endurnýjað og allt umhverfi þeirra tækja. Bekkur var settur upp við körfuboltavöll og í september var gróðursetningarátak á degi íslenskrar náttúru. Gróðursettar voru allt að 600 plöntur sunnan/austan við skólahúsið. Leiktækjum var einnig bætt við lóðina sunnan við íþróttahús, við ærslabelg.

    Á leikskólalóð var hjólabraut malbikuð og nýr sandkassi byggður, rólur voru endurnýjaðar og færðar. Nýtt gróðurhús var sett upp fyrri hluta sumars, svokallað Bambahús. Þar er verið að rækta, en auk þess er þar heimili fyrir fjórar hænur sem fluttu þangað í haust sem leið.

    Í leikskólanum voru endurnýjuð gólfefni í eldri hluta leikskóla og í eldhúsi, húsgögn og aðstaða í föndurstofu endurnýjuð og bætt, auk þess sem þar var málað. Lítil klósett voru sett upp í staðinn fyrir "fullorðins" klósettskálar á salernum á drekadeild (eldri hluti húss). Til stendur að setja upp nýja, sjálfvirka rennihurð í aðalinngangi. Gluggar voru málaðir, grindverk og leiktæki.

    Í grunnskóla var sömuleiðis skipt um gólfefni á nokkrum stöðum, m.a. í eldhúsi, kennarastofu og göngum. Innrétting á kennarastofu var endurnýjuð að hluta. Til stendur að klæða vegg á tengiganginum milli grunnskóla og íþróttahúss, og lagfæra frágang á lögnum og dreni.

    Orkuskipti í skóla- og íþróttamannvirkjum urðu þann 16. janúar sl. og er nú kynt með varmaorku (og rafmagni) en hætt að nota olíu, sem áður var gert. Í búningsklefum íþróttahúss/sundlaugar voru unnar miklar endurbætur sl. sumar, bekkir endurnýjaðir og skápar settir upp, gólf epoxymáluð og allir veggir málaðir. Hljóðeinangrun í íþróttahúsi hefur verið bætt.

  • Farið yfir áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár, einkum fyrir fjárfestingu.

    Skólanefnd mun fara í heimsókn í grunnskóla og íþróttahús fyrir jólin.

    Skólanefnd - 184

7.Menningarnefnd - 53

Málsnúmer 2511006FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 53. fundar menningarnefndar.
  • Lagt fram erindi Gerum það núna ehf. frá 9. október sl. þar sem óskað var eftir fundi með forstöðumanni menningar- og markaðsmála "til að ræða möguleg afnot af sögumiðstöðinni sumarið 2026 eða a dögum sem skemmtiferðaskip koma til hafnar."

    Föstudaginn 17. október sl. var haldinn fundur varðandi málið. Fundinn sat Pálmi Jóhannsson forstöðumaður menningar- og markaðsmála, Einar Sveinn Ólafsson og Daniel Firica frá Gerum það núna ehf. Lagðir eru fram minnispunktar PJ af þeim fundi.

    Óskað er eftir umsögn menningarnefndar, sem er bæjarstjórn til ráðgjafar m.a. um samkomuhús og Sögumiðstöðina.

    Menningarnefnd - 53 Í erindinu kemur fram að markmiðið sé að "skapa vettvang til að skapa og byggja upp fjölþætta starfsemi sem tengist byggðarlaginu. Vera vettvangur nysköpunar i ferðaþjonustu þar sem lyft er undir nysköpun og miðlun þekkingar. Virkja þekkingu og færni þeirra sem flutt hafa til okkar."
    Í minnispunktum um fund aðila þann 17. okt. kemur fram að hugsun Gerum það núna ehf. sé að nýta miðrými Sögumiðstöðvarinnar og Bæringsstofu fyrir upplifunarþjónustu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.

    Menningarnefnd þakkar fyrir erindið.

    Fyrir sitt leyti telur nefndin að Sögumiðstöðin eigi fyrst og fremst að þjóna sem miðstöð menningar og sem samkomustaður ("samfélagshús") fyrir íbúa Grundarfjarðar. Nefndin telur leiguafnot einstakra fyrirtækja á þessu opinbera rými til lengri tíma, ekki samræmast þeim sjónarmiðum um meginhlutverk hússins. Á móti bendir nefndin þó á, að í gildi er gjaldskrá fyrir útleigu hússins og skilmálar um útleigu í samræmi við gjaldskrá og bókunarstöðu húss, og hvetur nefndin fyrirtæki til að skoða þann valmöguleika.
    https://www.grundarfjordur.is/is/stjornsysla/fjarmal/gjaldskrar

    Hinsvegar telur nefndin hugmynd um vettvang fyrir nýsköpun og miðlun þekkingar, sbr. orðalag erindis, geta samræmst markmiðum um samfélagsleg not almenningseigna eins og Sögumiðstöðvar, nái sá vettvangur til margra þjónustuaðila innanbæjar, sem njóti góðs af samstarfi og nýtingu rýmisins.

    Nefndin telur að leggja eigi kapp á að byggja upp öfluga samfélagsmiðstöð með starfsemi allt árið um kring.

    Að öðru leyti vísar menningarnefnd afgreiðslu áfram til bæjarstjórnar til frekari umfjöllunar.
    Bókun fundar ÁE vék af fundi undir þessum lið.

    Bæjarstjórn þakkar Gerum það núna ehf. fyrir gott erindi og telur jákvætt að menningarhús bæjarbúa (Sögumiðstöð og samkomuhús) séu nýtt í þágu menningar og til að skapa aukið líf í bæinn þegar föst starfsemi húsanna er með minna móti.

    Menningarhús eru ekki ætluð til langtímaleigu þar sem húsnæðisleiga til lengri tíma til fyrirtækja á samkeppnismarkaði lýtur ákveðnum reglum. Bæjarstjórn bendir á að öllum sé frjálst að óska eftir skammtímaafnotum af húsnæðinu skv. gjaldskrá hússins og útleiguskilmálum. Bæjarstjórn felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að kanna hvort slíkt fyrirkomulag henti fyrirtækinu og mögulega fleiri aðilum í svipuðum aðstæðum.

    Samþykkt samhljóða.

    ÁE tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Farið yfir undirbúning viðburða tengdum jólum og áramótum.

    Menningarnefnd - 53 Aðventudagatal: Menningarnefnd felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að undirbúa aðventudagatal og auglýsa það.

    Jólagluggar - Ratleikur:
    Menningarnefnd ákveður að halda breyttu sniði á jólagluggum og hafa ratleik eins og í fyrra. Menningarnefnd felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að hafa samband við fyrirtæki og stofnanir í bænum og auglýsa eftir gluggum til þátttöku. Eins felur nefndin honum að sjá um utanumhald og auglýsingu jólagluggaratleiks.

    Tendrun jólaljósa í Grundarfirði:
    Menningarnefnd felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að sjá um skipulagningu á viðburðinum, í samráði við Lionsklúbb Grundarfjarðar. Nefndin nýtir einnig tækifærið til að færa félögum Lionsklúbbsins þakkir fyrir sitt framlag, við uppsetningu jólatrés í miðbæ, nú sem í fjölmörg fyrri ár.

    Þrettándinn:
    Menningarnefnd felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála umsjón með Þrettándagleði í Grundarfirði.

    Áramótakveðja 2025:
    Menningarnefnd felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að taka umræddar hugmyndir um áramótakveðju áfram.

  • 7.3 2508005 Rökkurdagar 2025
    Yfirferð yfir Rökkurdaga 2025.

    Menningarnefnd - 53 Rætt var um framkvæmd Rökkurdaga sem stóðu yfir dagana 18. október til 5. nóvember 2025.
    https://www.grundarfjordur.is/is/frettir-og-tilkynningar/rokkurdagar-2027

    Menningarnefnd lýsir yfir ánægju með framkvæmd Rökkurdaga 2025 og þá sérstaklega framlag íbúa í skipulagningu viðburða. Menningarnefnd var með viðveru í Kjörbúðinni 24. september síðastliðinn og komu íbúar þá með hugmyndir að viðburðum sem þeir höfðu áhuga á að halda.

    Nefndin færir þakkir til þeirra fjölmörgu sem skipulögðu og héldu viðburði, sem og til þeirra sem sóttu og nutu viðburða.

8.Innviðaráðuneytið - Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 2025-2026

Málsnúmer 2512018Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Innviðaráðuneytisins um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026, ásamt leiðbeiningum um sérreglur (sérstök skilyrði) vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.



Einnig lagðar fram viðbótarupplýsingar í svarpósti ráðuneytisins til bæjarstjóra. Þar kemur m.a. fram að heildarúthlutun í almennan byggðakvóta á þessu fiskveiðiári er 3.465 tonn. Á síðasta fiskveiðiári var 3.807 tonnum úthlutað, þannig að úthlutunin nú er 342 tonnum minni en í fyrra.

Grundarfjarðarbær er með um 2,9% af heildarúthlutun þetta fiskveiðiárið (2025/2026).



Lagt til að fylgt verði framkvæmd síðustu ára og að ekki verði óskað eftir sérreglum um úthlutun byggðakvóta.

Samþykkt samhljóða.

9.Greitt útsvar 2025

Málsnúmer 2502020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-desember 2025.

Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar í Grundarfirði hækkað um 9% milli áranna 2024 og 2025.

10.Vegagerðin - Þjóðvegahald í þéttbýli 2025

Málsnúmer 2512013Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur frá því í desember sl. milli Grundarfjarðarbæjar og Vegagerðarinnar um veghald þjóðvegar í þéttbýli fyrir árið 2025.



Einnig lögð fram samskipti bæjarstjóra við Vegagerðina 2024 og 2025 þar sem farið er fram á að vegarkafla að hafnarsvæði verði bætt við samninginn.



11.Samband íslenskra sveitarfélaga - Málþing um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar

Málsnúmer 2512016Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 29. desember sl., með kynningu á málþingi um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar, sem haldið verður 23. janúar nk.

12.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 238. fundar Breiðafjarðarnefndar sem haldinn var 28. nóvember sl.

Fylgiskjöl:

13.SSKS - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

Fundargerð 86. fundar sem haldinn var 12. nóvember sl.

Fundargerð 87. fundar sem haldinn var 8. desember sl.

14.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 10. desember sl.

Forseti vakti athygli á að í fundargerð stjórnarinnar var til umræðu mál um "ráðstöfun afla í byggðakerfi", sem er einmitt mál sem bæjarstjórn ályktaði um á 302. fundi sínum 9. október sl.
https://www.grundarfjordur.is/is/frettir-og-tilkynningar/baejarstjorn-grundarfjardarbaejar-alyktadi-um-stefnumorkun-rikisins-um-byggdatengdar-veidiheimildir-1

Í fundargerð kemur fram að stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga leggur áherslu á að umhverfi byggðakvóta byggi á fyrirsjáanleika og faglegum vinnubrögðum, og að stjórn óski eftir fundi með innviðaráðherra um málið.

15.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2502011Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga;

Fundargerð 990. fundar sem haldinn var 5. desember sl.

Fundargerð 991. fundar sem haldinn var 12. desember sl.

16.Trúnaðarmál -

Málsnúmer 2512009Vakta málsnúmer

Framhald máls frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Erindi fært í trúnaðarmálabók.

Niðurstaða bæjarstjórnar færð í trúnaðarmálabók.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 16:16.