306. fundur 12. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:29 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti sagði frá því að hann, Garðar bæjarfulltrúi og Björg bæjarstjóri hefðu átt samtal við oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps 16. janúar sl. í Ráðhúsinu. Það hefði verið framhald samtals um sameiningarmál á sl. ári, en þá var ákveðið að hittast síðar, þegar báðir aðilar hefðu rætt við önnur sveitarfélög á svæðinu.

Garðar nefndi að í tilefni kjördæmaviku, munu þingmenn Samfylkingarinnar bjóða sveitarstjórnarfólki til kvöldverðar á Arnarstapa 25. febrúar nk.

Hann nefndi einnig opnun nýrrar íþróttamiðstöðvar í Búðardal og hvatti til þátttöku.

Forseti sagði frá bréfi frá Lionsklúbbi Grundarfjarðar, þar sem klúbburinn lýsir áhuga á að styrkja félagsmiðstöð unglinga um húsgagnakaup.

3.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn fagnar þeim verkefnum sem komin eru til framkvæmda á Snæfellsnesi.

4.Bæjarráð - 650

Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 650. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu til 31. desember 2025. Bæjarráð - 650
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu frá 1. janúar 2026. Bæjarráð - 650
  • 4.3 2505019 Launaáætlun 2025
    Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-desember 2025.
    Bæjarráð - 650 Raunlaun eru undir áætlun ársins.
  • 4.4 2601004 Framkvæmdir 2026
    Yfirferð ýmis mál tengd framkvæmdum 2026.
    Bæjarráð - 650 Íþróttamiðstöð - sundlaug:

    Hinrik og Björg sögðu frá vinnu við undirbúning útboðs, en klæða á íþróttahúsið að utan og fara í þakviðgerðir, sem verður tveggja ára verkefni 2026-2027. Hönnunarréttindi og skilmálar um skiptingu milli ára hafa verið til skoðunar.

    Einnig er verið að klæða vegg á tengiganginum milli grunnskóla og íþróttahúss, þeirri hlið sem snýr út í sundlaugargarð. Verður hann klæddur með sama efni og íþróttahúsið.

    Til stendur að fjarlægja stóra olíutankinn í sundlaugargarði, þar sem ekki er lengur kynt með olíu. Olíuketill/kynding skóla- og íþróttamannvirkja verður þó áfram til staðar, og enn um sinn höfð sem varaafl. Því verður minni olíutanki (2000 lítra) komið fyrir í stað þess stóra, sem verður fjarlægður á næstunni. Við það skapast mun meira rými í sundlaugargarðinum (skotinu við tengigang og gamla gufubaðsklefann).

    Rennibraut í vaðlaugina er í pöntun og á að koma í febrúarmánuði.

    Tekist hefur að halda sundlauginni opinni allt haustið og fram til dagsins í dag. Það er orkuskiptum að þakka, keyrt er á varmaorku og rafmagni, en það munar líka miklu að tíðin hefur verið góð. Mikið rok og kuldar kæla laugina hratt og kalla á meiri orku til kyndingar. Eins og verið hefur, þá hefur kerfið ráðið við að kynda sundlaug samhliða kyndingu á mannvirkjunum. Er það í fyrsta sinn frá því sundlaugin var vígð á sjómannadegi 1977, að hún er opin á vetrartíma.

    Hinrik var þakkað fyrir upplýsingar og komu á bæjarráðsfund.

    ---

    Nanna Vilborg fór yfir uppbyggingu LIFE-ICEWATER verkefnisins, sem Grundarfjarðarbær er þátttakandi í og fékk stóran styrk til framkvæmda sem ná yfir tímabilið 2025-2030. Eitt ár er nú liðið af sex ára verkefnistíma.

    Nanna gerði grein fyrir verkþáttum sem hafa nú verið mótaðir. Þar má helst nefna:

    I áfangi; Grunnupplýsingar þar sem gerð er grein fyrir gögnum og rannsóknum sem þarf til þess að framkvæma verkefnið. Þeir þættir sem fyrirhugaðir eru, eða nýhafnir, eru t.d. eftirlit og mælingar á vatnshloti Grundarfjarðar (sjó við strendur þéttbýlis), greining á rennsli ofanvatns í byggðinni og vatnasviði fyrir ofan bæinn, upplýsingar um jarðfræði, loftmyndir og hæðargögn, rannsóknir á virkni blágrænna ofanvatnslausna og margt fleira.

    II áfangi; Upplandið, styrkja á jarðveg og gróðurþekju á opnu svæði (merkt OP-5 í aðalskipulagi). Þar mun Land og Skógur sjá um greiningu á gróðurþekju og jarðvegi og leggja fram tillögur um styrkingu, þ.e. ráðstafanir til þess að minnka rennsli ofanvatns (regnvatn og leysingavatn) sem rennur niður í þéttbýlið. Í kjölfarið mun vinnuhópur sem nýlega var skipaður um svæðið OP-5 hafa samband við hagaðila og gera útivistaráætlun fyrir upplandið þar sem hægt er svo að byggja upp gott stígakerfi ofan byggðar, sem hentar fyrir fjölbreytt not og útivist.

    III áfangi; Gerð rammahluta aðalskipulags fyrir blágræna innviði - ofanvatnsáætlun og skipulag. COWI verkfræðistofa hefur unnið að því að greina vatnasvið bæjarins og helstu rennslisleiðir og álagspunkta. COWI setur upp tillögur um meðhöndlun og hvernig best sé að stýra vatninu rétta leið, annaðhvort aftur niður í jarðveginn eða út í sjó. Rammahlutinn mun skilgreina þessa vinnu og stilla henni upp þannig að hægt sé að nýta í skipulagsgerð.

    IV áfangi; Framkvæmdir í lykilalmenningsrýmum. Farið var yfir þær framkvæmdir sem nú er lokið, þær sem eru í vinnslu og á döfinni. Áætlað er að hefja framkvæmdir (frágangur) á miðjuhluta Hrannarstígs (frá Sögumiðstöð og upp að Fagurhól) vestan megin í götunni og ljúka þeim fyrir mitt sumar. Framkvæmdir á neðanverðum Hrannarstíg, frá Kjörbúð og niður á Nesveg, er að mestu lokið en þó á eftir að ganga betur frá nokkrum atriðum, m.a. hornunum inní Sólvelli.

    V. áfangi; þekking, verkfæri og verklag. Nanna og Pálmi forstöðumaður menningar- og markaðsmála hafa stillt upp kynningarsíðu á vef bæjarins og er hún í frekari þróun, efni á eftir að bætast við.

    Nanna fór einnig yfir undirbúning á öðrum framkvæmdum sumarsins, til dæmis umbætur á skólalóðum grunn- og leikskóla, sem hún og skólastjórar eru að undirbúa, stígagerð í kringum íþróttasvæði, gangstéttaframkvæmdir sem eftir eru frá síðasta ári og fyrstu drög að nýjum framkvæmdum. Bréf fór út nýlega til íbúa á innanverðum Hlíðarvegi, en lokið verður við að endurnýja gangstéttar á Hlíðarvegi (þeim hluta) með vorinu.


    Nönnu var þakkað fyrir upplýsingar og komu á bæjarráðsfund.

  • Farið yfir stöðuna á orkuskiptaverkefni íþrótta- og skólamannvirkja og kyndingarkostnað 2025.

    Bæjarráð - 650 Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi fóru yfir stöðuna á verkefninu.

    Fram að þessu hafa sjö holur af níu verið í notkun og útvegað orku fyrir tvær varmadælur, en alls eru fimm varmadælur uppsettar í kerfinu. Tvær varmadælur duga ekki fyrir kyndiþörf mannvirkjanna, þannig að til viðbótar var keyrt á þremur hitatúbum á síðasta ári, sem eru þó hugsaðar sem varaafl, þegar varmadælukerfið verður komið í fulla nýtingu.

    Nú í janúar 2026 er verið að bæta inná kerfið dýrmætri orku úr tveimur borholum til viðbótar, nr. 7 og nr. 1. Nokkrir byrjunarerfiðleikar höfðu verið með þær holur, en í þeim er nýtt orka úr heitu vatni sem dælt er úr holunum. Með þessari viðbót verður vonandi hægt að knýja eina varmadælu til viðbótar við hinar tvær og minnka keyrslu á hitatúbunum; minnka þar með rafmagnsnotkun og kostnað enn frekar. Líklegt er að gera verði frekari ráðstafanir til að bæta meiri orku inná kerfið.

    Sjá einnig umræðu um sundlaug undir dagskrárlið 4.

    Kyndingarkostnaður skóla- og íþróttamannvirkja (með olíu) var kominn í 28-30 milljónir á ári (árin 2022-2024) eftir miklar olíuverðshækkanir. Það er þrátt fyrir að sundlaugin hafi ekki verið kynt 5-6 mánuði yfir vetrartímann.

    Árið 2025 var kyndingarkostnaður hins vegar rétt rúmar 13 milljónir króna, sem er um 44% af kostnaði áranna á undan. Samt var rafmagnsnotkun ársins mun meiri en reiknað er með og taka þarf með í reikninginn að sundlaugin var opin frá apríl og út árið. Með viðbótarorku inná kerfið nú í janúar - og mögulega frekari ráðstöfunum - ætti rafmagnsreikningurinn að lækka enn frekar árið 2026.

  • Húsnæðisáætlun 2026, tillaga, lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð - 650 Húsnæðisáætlun 2026 samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Setbergssóknar þar sem óskað er eftir að bærinn kosti uppsetningu ljósastaura á bílastæði fyrir kirkjuna á lóðinni að Fagurhól 1, þar sem þar vanti betri lýsingu.

    Lagt fram yfirlit frá Nönnu, verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, þar sem hún hefur skoðað lýsingarmálin á svæðinu samkvæmt beiðni bæjarstjóra. Yfirlitið nær yfir bílastæðin á Fagurhól 1 en einnig yfir lýsingu á lóð kirkjunnar og við hana.
    Bæjarráð - 650 Bæjarráð samþykkir að kosta uppsetningu ljósastaura á bílastæði kirkjunnar í samræmi við fyrirliggjandi hugmynd. Nönnu Vilborgu verkefnisstjóra falið að vera í sambandi við fulltrúa sóknarnefndar um málið.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram til kynningar umsókn Grundarfjarðarbæjar um styrk til varnar landbroti vegna Hrafnsár, sem send var inn í upphafi árs 2026 (Land og skógur). Í húfi eru m.a. hagsmunir á skotsvæði og landinu þar í kring.
    Bæjarráð - 650 Bókun fundar Bæjarstjórn felur bæjarráði að taka til skoðunar hvort breyta eigi gjaldskrá fyrir efni úr námu í Hrafnsá, m.t.t. efnis sem gott væri að losa úr ánni ofanverðri, m.t.t. landbrots.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagður fram til kynningar samningur um snjómokstur sem gerður er á grunni verðkönnunar sem fram fór um þjónustuna.
    Bæjarráð - 650 Rætt um snjósöfnunarsvæði. Yfirlit snjósöfnunarsvæða verður uppfært m.t.t. smávægilegra breytinga sem ræddar voru á fundinum.

  • Lögð fram til kynningar fjölmiðlaskýrsla Creditinfo fyrir árið 2025.
    Bæjarráð - 650
  • Lögð fram til kynningar gögn frá Cruise Iceland um skemmtiferðaskipakomur í hafnir landsins 2025 og bókunarstöðu 2026-2028.
    Bæjarráð - 650
  • Lögð fram til kynningar gögn frá Vegagerðinni vegna breytinga á leiðakerfi landsbyggðarvagna.
    Bæjarráð - 650
  • Lögð fram til kynningar móttökuáætlun sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir nýja íbúa af erlendum uppruna, sem unnin er af Símenntun á Vesturlandi að beiðni SSV.
    Bæjarráð - 650
  • Lagt fram til kynningar bréf Innviðaráðuneytisins um breytingu á 4. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212/2025 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
    Bæjarráð - 650 Skrifstofustjóri sagði lauslega frá helstu breytingum.

5.Íþrótta- og tómstundanefnd - 115

Málsnúmer 2601005FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 115. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
  • Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða framlagða tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir leggja til að samráðshópurinn sé skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundarnefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum). Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu.

    Óskað er eftir að íþrótta- og tómstundarnefnd tilnefni aðila til þess að sitja í þessum samráðshóp.

    Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ kom inn á fundinn.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 115 Nefndin telur þetta vera mjög spennandi verkefni en vill bíða með að skipa aðila í stýrihópinn þar til úttekt Lands og Skógar á útivistarkraganum hefur farið fram og í framhaldi af því kemur í ljós hvenær stýrihópurinn mun taka til starfa. Bókun fundar Bæjarstjórn telur æskilegt að nefndin eigi sinn fulltrúa í þessari vinnu sem framundan er, en í henni er fengist við útivistarstíga og -svæði ofan byggðar, sem einmitt er á verksviði nefndarinnar.

    Bjarni Sigurbjörnsson verður fulltrúi bæjarstjórnar í samráðshópnum.

    Samþykkt samhljóða.
  • Farið yfir stígamál í Grundarfirði.

    Rætt um stígamál við íþróttasvæðið og grunnskólann. Samkvæmt fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar hefur verið lagt fram fjármagn til stígagerðar á svæðinu. Einnig þarf að finna lausn á þeirri miklu vatnssöfnun sem verður á íþróttasvæðinu og er Cowi að vinna með Grundarfjarðarbæ að finna lausnina.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 115 Ákveðið var að á næsta fundi nefndarinnar verði unnið að tillögum á staðsetningu stíga á íþróttasvæðinu í samvinnu með Nönnu Vilborg.
  • Til kynningar fyrir nefndina.

    Aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, Nanna Vilborg, hefur í samstarfi við íþrótta- og tómstundafulltrúa, Hinrik, og Berg Þorra Benjamínsson Verkefnastjóra hjá ÖBÍ-Réttindasamtök gert létta úttekt á íþróttahúsinu og sundlauginni með það í huga að aðili á hjólastól gæti komist klakklaust í sund eða á íþróttaviðburð í húsinu.
    Gerð var samantekt (sjá fylgiskjal) og hún send á ÖBÍ til skoðunar. Munu þeir síðan koma með ráðleggingar.
    ÖBÍ setur fyrirvara á þetta verkefni sem er ákveðin tilraun á landsvísu:

    "Verkefnastjóri byggir sínar niðurstöður og ráðleggingar á skoðun teikninga og mynda auk þess að vera notandi hjálpartækja í meira en 25 ár. Niðurstöður og álit sem fram koma í kynningu verkefnastjóra skulu því ekki túlkuð sem fagleg greining í samræmi við íslenska löggjöf. Það er á ábyrgð þess aðila sem óskaði eftir áliti verkefnastjóra að leita til viðurkenndra fagaðila til að framkvæma nauðsynlegar mælingar og greiningar sem uppfyllir kröfur laga og reglugerða.?

    Nanna Vilborg Harðardóttir yfirgaf fund kl.17:41
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 115 Nefndin lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem hefur verið unnin við úttekt á íþróttamiðstöðinni.
  • Sent til kynningar nýlegar samþykktar úthlutnarreglur fyrir uppbyggingarsjóðs íþrótta- og menningarmála. Íþrótta- og tómstundanefnd - 115 Nefndin lýsir yfir ánægju með sjóðinn og telur að hann muni styrkja félagsstarf í Grundarfirði.
  • Íþrótta- og tómstundanefnd - 115 Nefndin leggur til að félögin tilnefni einn aðila hverju sinni sem sjálfboðaliða ársins. Einnig að dagsetning á verðlaunahátíðinni verði endurskoðuð að hausti.

    Ákveðið að gera breyitingar á reglum um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar. Í 1,2,3,4 og 6.grein reglanna kemur fram að nefndin kallist íþrótta- og æskulýðsnefnd en lagt er til að því verði breytt í íþrótta- og tómstundarnefnd. Samþykkt samhljóða.

    Í 4.grein reglanna kemur fram "auk fulltrúa frá hverri deild allra íþróttafélaga í Grundarfirði...". Lagt er til eftirfarandi breyting. "Aðal- og varamenn íþrótta- og tómstundarnefndar auk eins fulltrúa frá hverri deild allra íþróttafélaga í Grundarfirði, kjósa íþróttamann Grundarfjarðar samkvæmt vinnureglum sem íþrótta- og tómstundarnefnd setur." Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu íþrótta- og tómstundanefndar um breytingu á reglum um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar. Bæjarstjórn felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að sjá til þess að reglurnar verði uppfærðar og breytingin kynnt íþróttafélögunum, sem og að reglurnar verði uppfærðar á vef bæjarins.

6.Skólanefnd - 186

Málsnúmer 2601006FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 186. fundar skólanefndar.

Bæjarstjórn samþykkir að hitta skólanefnd, sbr. tillögu nefndarinnar, og felur bæjarstjóra og formanni skólanefndar að finna heppilegan tíma til þess.
  • Yfirlit yfir efni þessa skólanefndarfundar lagt fram, samantekið úr starfsáætlun skólanefndar.


    Skólanefnd - 186 Gunnþór E. Gunnþórsson frá Ásgarði var gestur fundarins, í fjarfundi. Hann fór yfir stöðuna í innleiðingu menntastefnu, einkum í vinnu með leik- og grunnskóla.

    Rætt um fundardaga skólanefndar, en einn fundur féll út (desemberfundur) og verður efni hans þjappað á aðra fundi fram til vorsins.

  • Lögð fram skýrsla leikskólastjóra með efni fyrir fund skólanefndar, en í henni eru hlekkir á ýmsar skýrslur og áætlanir, sjá framlagt skjal.

    Skólanefnd - 186 Leikskólastjóri fór yfir fundarpunkta sína og svaraði spurningum um efnið.

    Rætt um drög að skóladagatali komandi skólaárs. Lagt til að drög að samræmdu dagatali skólanna verði lögð fram á næsta fundi skólanefndar, 16. febrúar.


  • Lögð fram ýmis gögn frá grunnskólanum og skólastjóra. Skólanefnd - 186 Skólastjóri fór yfir ýmis gögn og svaraði spurningum um efnið.

    Skólanefnd spurði út í framlagða tillögu skólastjóra um stofnun sérdeildar, en ekki tekin afstaða til tillögu að svo stöddu.

  • Lögð fram sameiginleg Skólanámskrá Leikskólans Sólvalla og leikskóladeildarinnar Eldhamra fyrir skólaárið 2025-2026.

    Einnig lögð fram starfsáætlun Eldhamra 2025-2026.


    Skólanefnd - 186 Farið yfir framlögð gögn. Skólastjóri svaraði spurningum sem beint var til hans um efnið.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 274

Málsnúmer 2601004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 274. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Áframhald umræðu, frá síðasta fundi 8. desember 2025, um þær umsagnir og athugasemdir sem bárust við tillögu á vinnslustigi sem auglýst var frá 14. nóvember til 1. desember sl., bæði úr Skipulagsgátt en einnig í samtali á þremur fundum sem efnt var til 17. nóvember sl.

    Lagt fram minnisblað um þau viðfangsefni sem lagt er til að verði skoðuð betur, breytt og unnin áfram í deiliskipulagsvinnunni á grunni umsagna, ábendinga eftir samráðsfundi 17.11.25, ásamt ábendingum frá Vegagerðinni af fundi 1. desember 2025.

    Lagðar fram til kynningar og umræðu vinnutillögur að breytingum skv. þessu og kynningarefni.

    Hafnarstjórn og bæjarfulltrúum er boðið að sitja fundinn undir þessum lið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Halldóra Hreggviðsdóttir og Herborg Árnadóttir skipulagsráðgjafar hjá Alta eru gestir fundarins undir þessum lið, í fjarfundi.

    Herborg fer yfir hugmyndir að frekari breytingum sem skoðaðar hafa verið til að koma til móts við athugasemdir sem komið hafa fram og sýnir hvernig þær gætu litið út. Meðal annars farið yfir vegtengingu við hafnarsvæði austan landfyllingar, lækkað nýtingarhlutfall og byggingarmagn á lóðum númer 6-14, hætt er við metralóðir og þess í stað komnar minni lóðir frá 7-17 en mögulega með heimild til sameininga þeirra. Þá er búið að auka svæðið umhverfis Gilós. Rætt um göngustíg eftir Lengju og lagt til að setja kvöð um samræmt útlit á suðurenda lóða við hann. Rætt um útlit og hönnun.

    Rætt er um hugmyndir sem fram komu um að áfangaskipta landfyllingunni. Hafnarstjóri greinir frá samtölum við Vegagerðina þar sem niðurstaðan varð að það sé ekki raunhæft verklag vegna stóraukins kostnaðar.

    Björg greinir frá fundi sem hún átti með einum húseiganda við Grundargötu. Hún leggur til að haldinn verði annar lokaður fundur með eigendum fasteigna í Gröf og á norðanverðri Grundargötu við skipulagssvæðið til samtals og skýringa og var það samþykkt.

    Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram ásamt hafnarstjórn að útfærslu á deiliskipulagstillögu.

    Tillögur verða aftur teknar fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd áður en þær verða lagðar fram til auglýsingar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi Nesvegar 4 hefur lagt fram fyrirspurn um uppskiptingu lóðarinnar. Í deiliskipulagi Framness austan Nesvegar, sem hefur lokið skipulagsmeðferð hjá Grundarfjarðarbæ og er í athugun hjá Skipulagsstofnun, er heimilað að skipta lóðinni upp.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri er gestur fundarins undir þessum lið.

    Hafnarstjóri fór yfir samskipti við fyrri eigendur hússins og aðdraganda þess að heimild var sett í deiliskipulagstillögu um að skipta upp lóðinni.

    Skipulagsfulltrúi greindi frá því að hann hafi rætt símleiðis við fyrirspyrjanda og þeir hyggist funda við tækifæri.

    Skipulagsfulltrúa falið að ræða við lóðarhafa um efni fyrirspurnar, í samráði við hafnarstjóra og bæjarstjóra.

  • Grenndarkynningu fyrirhugaðra framkvæmda lauk föstudaginn 16. janúar sl. Eigendur lóðarskika út úr jörðinni Hömrum fengu senda kynningu áforma.

    Framkvæmdir felast skv. framlögðum gögnum í breytingum á íbúðarhúsi, sem félli þó ekki undir rekstrarleyfi, að gamla eggjabúið yrði gert að fimm einingum með 10 gistirými og að vélageymslan yrði gerð að þremur einingum með 6-9 gistirými.

    Einn lóðarhafa skilaði inn umsögn. Auk þess voru gerðar lítilsháttar athugasemdir við mörk framkvæmdasvæðis á kynningartíma og voru þau leiðrétt af framkvæmdaraðila og send út til sömu aðila áður en kynningartíma lauk.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Farið var yfir athugasemd sem barst frá eigendum Árbrekku. Þeir lýsa yfir ánægju með fyrirhuguð áform í heild sinni en fara fram á að tekið verði tillit til nokkurra atriða. Skipulagsfulltrúa falið að ræða við framkvæmdaraðila um ábendingar um tilhögun framkvæmda og samráð vegna lagna í jörðu og koma á framfæri óskum eigenda Árbrekku hvað varðar hönnun lýsingar.

    Skipulagsfulltrúi fær umboð til að samþykkja fyrirhuguð áform að teknu tilliti til þessara ábendinga.

    Undir þessum lið var rætt um nefnda ljósmengun frá Grundarfjarðarhöfn vegna sterkrar flóðlýsingar á bryggju og skipum, sbr. ábendingar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi Borgarbrautar 8 hefur óskað eftir því að fá að stækka hjá sér innkeyrsluna. Nýlega var samþykkt ný merkjalýsing fyrir lóðina, og eftir breytingu er innkeyrsla á hans lóð einungis um tveggja metra breið. Verið er að endurskipuleggja Borgarbraut ofanverða, m.a. utan við lóð umsækjanda, til að auka umferðaröryggi og í tengslum við blágrænar ofanvatnslausnir og vonast til að framkvæmdir hefjist næsta sumar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Heiðrún Hallgrímsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

    Samþykkt að heimila stækkun innkeyrslu um 3 metra þannig að hún verði alls 5 metrar, en það er almennt breidd innkeyrslna í hverfinu. Verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála falið að hafa fyrirhugaða breikkun innkeyrslu til hliðsjónar við hönnun götunnar í samráði við lóðarhafa.

    Heiðrún tók aftur sæti sitt á fundinum.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi Ægishólma ehf. sækir um stöðuleyfi til eins árs fyrir matarvagn á miðbæjarreit. Umsækjandi er meðvitaður um að lóðin (miðbæjarreitur) sé í útboðs-/úthlutunarferli og tilhögun afhendingar reitsins ekki frágengin. Í vinnslu er ný gjaldskrá og nýjar reglur um stöðuleyfi, sbr. 7. lið.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti stöðuleyfisumsóknina en með fyrirvara um að í vinnslu er ný samþykkt og gjaldskrá fyrir stöðuleyfi (sbr. lið 7).

    Skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda og veitt umboð til að gefa út stöðuleyfi þegar bæjarstjórn hefur samþykkt reglur og gjaldskrá stöðuleyfa. Skipulagsfulltrúa ennfremur falið að ræða við aðra stöðuleyfishafa á miðbæjarreit um reitinn og fyrirkomulag þar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd tilnefni fulltrúa í samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis.

    Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða framlagða tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis (OP-5). Þar var lagt til að samráðshópurinn sé skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum). Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið og ákveða forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu, í samræmi við aðalskipulag.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Heiðrún Hallgrímsdóttir tilnefnd af skipulags- og umhverfisnefnd sem fulltrúi í samráðshópinn.
  • Núverandi samþykkt Grundarfjarðarbæjar um stöðuleyfi er frá árinu 2018. Talsverður fjöldi ábendinga og fyrirspurna hefur borist bænum vegna lausafjármuna sem ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi fyrir. Farið yfir núverandi reglur um stöðuleyfi og framkvæmd þeirra. Þá er farið yfir fjárhæð stöðuleyfisgjalda hjá öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi. Ennfremur er farið yfir niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 18/2021 sem felur í sér leiðbeiningar til sveitarfélaga um upphæð stöðuleyfisgjalda.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 274 Rætt um gerð nýrrar samþykktar stöðuleyfa og gjaldskrá stöðuleyfa.
    Farið yfir gjaldskrár annarra sveitarfélaga á Vesturlandi. Rætt um kostnað við útgáfu stöðuleyfis, vinnu við utanumhald um málaflokkinn og vanhöld á að sótt sé um stöðuleyfi í samræmi við byggingarreglugerð.

    Skipulagsfulltrúa falið að vinna að nýrri samþykkt um stöðuleyfi á grundvelli umræðna.

    Gjaldskrá stöðuleyfa heyrir undir bæjarstjórn en ekki skipulags- og umhverfisnefnd, en nefndin setur sig ekki upp á móti að flokkum stöðuleyfa sé fækkað og að stöðuleyfisgjaldi sé breytt eða stillt upp þannig að það endurspegli kostnað við útgáfu stöðuleyfa og utanumhald um málaflokkinn. Ennfremur telur nefndin að fullt tilefni sé til að setja sérstaka samþykkt um söluvagna og ef til vill sérstakt gjald á þá.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.



8.Skipulags- og umhverfisnefnd - 275

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 275. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til umræðu og afgreiðslu deiliskipulagstillaga skv. 41. grein skipulagslaga. Frá fundum skipulags- og umhverfisnefndar 8. desember sl. og 20. janúar sl. hefur verið unnið frekar að tillögugerð, með hliðsjón af sjónarmiðum þeim sem fram komu í innsendum athugasemdum við tillöguna, á þremur kynningarfundum sem haldnir voru 17. nóvember sl. og í ábendingum á nefndarfundum. Gerðar hafa verið ýmsar breytingar frá vinnslutillögunni.

    Hafnarstjórn og hafnarstjóra var boðið á fundinn og sitja fundinn undir þessum lið.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Herborg Árnadóttir og Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafar hjá Alta eru gestir fundarins í fjarfundi undir þessum lið. Auk þess sitja fundinn hafnarstjóri og hafnarstjórn.

    Farið yfir umræður og sjónarmið sem fram komu á fundum sem efnt var sérstaklega til með húseigendum við neðanverða Grundargötu, frá nr. 4-28, og í Gröf I-IV. Fyrir fundi 4. og 5. febrúar sl. voru kynnt drög í vinnslu sem gerðar höfðu verið á ýmsar breytingar frá vinnslutillögu.

    - Byggingarmagn á lóðum sem eru næst Grundargötu hefur verið minnkað um 20%.
    - Lóðir næst Grundargötu hafa verið minnkaðar og lóðir ná ekki eins langt að Gilósi og í vinnslutillögu.
    - Hámarkshæð bygginga á þessum lóðum var lækkuð úr 7,5 í 7 metra.
    - Á svæði sjávarmegin við tilvonandi nýja götu hafa metralóðir verið teknar út.
    - Lóðarmörkum breytt á lóðum næst nýjum viðlegukanti.
    - Gilósinn fær nú mun rýmra grænt svæði.
    - Lóðir sunnan Gilóss, við smábátahöfn, hafa verið betur skilgreindar og skilmálum þeirra breytt.
    - Lóðarmörkum á lóðum á Norðurgarði hefur verið breytt og þær færðar frá grjótvörn á grunni tilmæla frá Vegagerðinni um aðgengi. Þar er einnig lagnasvæði fyrir neðanjarðarlagnir.
    - Settir hafa verið skýrari skilmálar varðandi aðlaðandi ásýnd og frágang frá lóðum við Grundargötu að iðnaðarsvæði og göngustíg þar á milli gert hærra undir höfði hvað varðar umhverfisfrágang.
    - Göngustígur á milli iðnaðarsvæðis og húsa við Grundargötu verði akfær og akstur heimill fyrir húseigendur, gesti og viðhald á þeim hluta stígsins sem tekur við til suðurs, þegar götu sleppir.


    Óskað er eftir fleiri skýringarmyndum í deiliskipulagstillöguna, þar á meðal ásýndarmyndum og betri hæðarmerkingum. Rætt um hugsanlega ljósmengun frá þungaflutningum þegar keyrt er af hinni nýju götu og uppá þjóðveg 54.

    Rætt um áhyggjur af frágangi og fráleggi lausafjármuna á iðnaðarlóðum á landfyllingu og skilmálagerð þar að lútandi. Rætt um forgangsröðun við uppbyggingu svæðisins.
    Rætt er um vegalengdir. Fram kemur að fjarlægð núverandi íbúðarhúsa við Grundargötu að byggingarreitum sem lagðir eru til sé á bilinu 27-32 metrar. Þá eru 142 metrar frá mörkum núverandi lóða við Grundargötu að sjóvarnargarði áformaðrar landfyllingar.

    Skipulagsfulltrúi leggur áherslu á það í lok umræðu að enn sé hægt að breyta deiliskipulagstillögunni eftir að auglýsingatíma lýkur. Góðar ábendingar hafi komið fram á fundi með íbúum og á þessum fundi nefndarinnar.

    Samhljómur er meðal fundarmanna um að halda skipulagsgerðinni áfram, en áfram verði leitað leiða til að bregðast við ábendingum og draga úr grenndaráhrifum þeirra sem eiga fasteignir næst landfyllingunni.

    Formaður leggur til að skipulagsfulltrúi, að fengnu samþykki hafnarstjórnar og staðfestingar bæjarstjórnar, fái umboð til að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að teknu tilliti til framkominna ábendinga í umræðum nefndarinnar varðandi viðbótarskýringarmyndir. Skilmálum verði ekki breytt. Var það samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
    Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa framlagða tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana með hefðbundnum hætti.

    Bæjarstjórn samþykkir að hafa opið hús um tillöguna í síðustu viku febrúar og felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að finna heppilegan dag til þess.

    Í tengslum við umræðu um lóðir á umræddu svæði hafnarinnar lýsir bæjarstjórn sig reiðubúna að taka frá framtíðarbyggingarlóð/lóðir á hafnarsvæðinu undir starfsemi almannavarnarmiðstöðvar, þar sem slökkvilið, björgunarsveit og mögulega fleiri aðilar gætu sameinast í húsi.

    Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að ræða nánar við slökkviliðsstjóra og formann Björgunarsveitarinnar Klakks um málið.

    Samþykkt samhljóða.
  • [Viðbót 12feb. Niðurstaða barst 11 febrúar og telur Skl.st. að umhverfismats sé ekki þörf. Niðurstaðan er kæranleg til 11. mars. Ákvörðuninni bætt undir fundinn fyrir bæjarstjórnarfund]

    Lögð fram umsögn Grundarfjarðarhafnar dags. 27. janúar sl. um þær umsagnir sem bárust við auglýsingu í umsagnarferli um erindi hafnarinnar varðandi matsskyldu.

    Niðurstaða Skipulagsstofnunar um matsskyldu liggur ekki fyrir, en mun líklega koma í lok vikunnar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Bókun fundar Forseti kynnti að í gær, 11. febrúar, hefði borist bréflega ákvörðun Skipulagsstofnunar í þessu máli. Skipulagsstofnun ákvað að stækkun hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. Niðurstaðan hefur verið birt á vefsíðu Skipulagsstofnunar https://island.is/s/skipulagsstofnun/frett/staekkun-hafnarsvaedis-grundarfjardarhafnar-sunnan-midgards
    Spurningin um matsskyldu er í tengslum við yfirstandandi deiliskipulagsgerð vegna stækkunar Grundarfjarðarhafnar með landfyllingu.

  • Lögð fram til umræðu og afgreiðslu skv. 30. gr. skipulagslaga vinnslutillaga að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039, um Blágrænar ofanvatnslausnir.


    Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Dóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta fór yfir tillögu á vinnslustigi að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir vinnslutillöguna fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa vinnslutillögu að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um Blágrænar ofanvatnslausnir, í samræmi við 30. gr. skipulagslaga.
  • Lögð fram til umræðu og afgreiðslu tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Háubakka, viðbótarlóðir fyrir íbúðarhús við vestanverða Grundargötu, skv. 30. gr. skipulagslaga.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Þorkell Máni Þorkelsson mætir til fundar undir þessum lið.

    Dóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta fór yfir vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar vegna Háubakka. Tillagan felur í sér að afþreyingarsvæði í landi Hellnafells minnkar og byggingarland fyrir nýjar einbýlishúsalóðir stækkar til vesturs við vestanverða Grundargötu, neðan vegar.

    Fram kom að leitað var til umferðarsérfræðings um vegtengingu af Grundargötu inn á nýjar lóðir. Í aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi er miðað við 30 km hámarkshraða sbr. ósk/umsögn Grundarfjarðarbæjar þar um til Vegagerðarinnar.

    Vegagerðin var meðal umsagnaraðila við skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingar og fyrirhugaðs deiliskipulags og leggst þar gegn vegtengingum, sé miðað við 50 km hraða á klst. Beðið er eftir staðfestingu Vegagerðarinnar á verkáætlun fyrir endurskoðun á umferðaröryggi/útfærslu Grundargötu í heild sinni, sem er annað verkefni, en mun einnig taka á tengingum við fyrirhugaðar lóðir. Í þeirri verkáætlun sem send var Vegagerðinni í nóvember sl. er gengið út frá 30 km hámarkshraða á Grundargötunni á milli rúlluhliða og við það er miðað núna í allri skipulagsgerð í bænum.


    Nánari útfærsla á reitnum verður í deiliskipulagi.

    Samþykkt samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 vegna Háubakka, viðbótarlóða fyrir íbúðarhús við vestanverða Grundargötu, skv. 30. gr. skipulagslaga.

    Samþykkt með sex atkæðum (JÓK, ÁE, SG, BS, LÁB, SGG), einn sat hjá (GS).
  • Í framhaldi af umræðu um lausafjármuni á 274. fundi nefndarinnar er lagt fram uppkast að nýrri samþykkt um stöðuleyfi. Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 GRS þjónustufulltrúi fór yfir drögin og gerði grein fyrir tillögunni.

    Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við framkomin drög. Spurt var hvort setja ætti sérskilmála um lausafjármuni sem tengjast atvinnustarfsemi í þéttbýli, en drög að öðru leyti samþykkt.

    Þjónustufulltrúa skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna endanleg drög sem lögð yrðu fyrir bæjarstjórn ásamt því að gera tillögu að endurskoðaðri gjaldskrá stöðuleyfa.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

    Tillaga að endurskoðaðri samþykkt um stöðuleyfi er í yfirlestri lögmanns. Bæjarstjórn felur bæjarráði að taka yfirfarna tillögu að yfirlestri loknum til endanlegrar afgreiðslu og auglýsa hana. Ennfremur felur bæjarstjórn bæjarráði að taka til endurskoðunar gjaldskrá fyrir stöðuleyfi og gera tillögu um breytingar á henni.
  • Rætt um tilhögun og dagsetningu umhverfisrölts í vor. Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Samþykkt að umhverfisrölt verði þann 6. maí næstkomandi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 275 Nanna vakti máls á göngustígakerfi bæjarins og þá sérstaklega göngustíg eða leið meðfram strandlengjunni innan þéttbýlis.

    Farið yfir stígakerfið innan þéttbýlis eins og það er sett fram í aðalskipulagi.

    Nefndin er sammála um að mikil gæði felist í góðum strandstíg og er nefndin tilbúin til að skoða það betur.

9.Útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit

Málsnúmer 2504009Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Helga S. Gunnarssonar ráðgjafa 9. febrúar 2026 til bjóðanda í byggingarrétt vegna miðbæjarreits.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bjóðanda frest til að skila umbeðnum gögnum í samræmi við útboðsskilmála til að unnt sé að ganga til samninga á grundvelli fyrri ákvarðana í málinu. Frestur er veittur til hádegis mánudag 9. mars nk. þannig að ákvörðun um framhaldið geti legið fyrir á fyrirhuguðum fundi bæjarstjórnar 12. mars nk.

Samþykkt samhljóða.

10.Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Stofnframlög

Málsnúmer 2602006Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) með auglýsingu um stofnframlög til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar íbúðir.

11.Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands - Styrktarsjóður EBÍ

Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur EBÍ um styrkjarsjóð EBÍ. Hægt er að sækja um í sjóðinn til febrúarloka.

Bæjarstjórn hvetur nefndir bæjarins og stofnanir til að huga að þessu.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga - Landsþing 2026

Málsnúmer 2602005Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga um Landsþing sambandsins sem haldið verður 23.-25. september 2026.

13.Hafnasamband Íslands - Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga um kynningu á Hafnasambandsþingi Hafnasambands Íslands sem haldið verður 22.-23. október 2026.

14.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 239. fundar Breiðafjarðarnefndar sem haldinn var 12. desember 2025.

Fylgiskjöl:
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:29.