Málsnúmer 2602012Vakta málsnúmer
Fasteignin að Nesvegi 4, Grundarfirði, var auglýst til sölu hjá fasteignasölunni Re/Max þann 28. janúar sl. og er söluyfirlit lagt fram. Húsið er í eigu Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf.
Hafnarstjóri og bæjarstjóri hafa átt tvo fundi með formanni stjórnar fyrirtækisins, ásamt með starfsmanni og síðar framkvæmdastjóra félagsins. Ákveðið var að efna til viðræðna milli Grundarfjarðarhafnar og félagsins um möguleg kaup á fasteigninni.
Náðst hefur samkomulag um helstu skilmála, m.a. kaupverð, en lögmaður bæjarins, Halldór Jónsson, hrl., hefur verið í samskiptum við fasteignasala eignarinnar fyrir hönd hafnarsjóðs.
Gestir
- Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri - mæting: 17:30
- Halldór Jónsson, hrl., Juris, í síma - mæting: 17:30
- Arnar Kristjánsson, úr hafnarstjórn - mæting: 17:30
Fulltrúar úr hafnarstjórn sitja þennan fund jafnframt sem gestir, þ.e. Björg bæjarstjóri sem er formaður hafnarstjórnar, Arnar Kristjánsson og Garðar Svansson, sem einnig er bæjarfulltrúi, auk Hafsteins Garðarssonar hafnarstjóra.
Gestur í fjarfundi var Halldór Jónsson, hrl., Juris.