Deiliskipulag fyrir "Framnes austan við Nesveg" tók gildi 28. janúar sl. með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hið nýja deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn 11. desember sl. Við gildistökuna féll úr gildi deiliskipulagið "Framnes, austan Nesvegar, reitir 6 og 9" frá 13. mars 2008, auk tveggja breytinga á því, þ.e. frá mars 2016 (Nesvegur 4 og 6) og frá júlí 2021 (Nesvegur 4a).
Deiliskipulagið er í samræmi við gildandi Aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Deiliskipulagið felur í sér að svigrúm er aukið fyrir hafnsækna starfsemi, skerpt er á framtíðarfyrirkomulagi eldsneytisbirgðastöðva, o.fl.
Með gildistöku deiliskipulags á Framnesi austan við Nesveg, frá 28. janúar sl., hefur verið skerpt á skilmálum fyrir lóðir sem ætlaðar eru undir olíutanka og eldsneytisgeymslur, þ.e. lóð nr. 4B, nr. 8-10 og nr. 12. Einnig eru nú skýrar þær lagnaleiðir sem liggja frá tönkum að Norðurgarði, en til hefur staðið að endurnýja lagnirnar.
Hafnarstjórn - 28Hafnarstjóri sagði frá viðræðum hans og skipulagsfulltrúa, sem og bæjarstjóra, við fulltrúa Olíudreifingar hf.
Olíudreifing óskar eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir lóðina Nesveg 4B, þar sem stendur olíutankur. Óskað er eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi fyrir stækkaða lóð að Nesvegi 8-10. Einnig er óskað eftir úthlutun og nýtingu lóðarinnar að Nesvegi 12 í framtíðinni.
Olíudreifing hyggst endurnýja lagnir frá núverandi tönkum og niður á Norðurgarð, en búið er að hanna og samþykkja nýja lagnaleið.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og bæjarstjóra umboð til áframhaldandi viðtals við Oliudreifingu og leggur til við skipulagsnefnd að hún staðfesti að gerðir skuli nýir lóðarleigusamningar fyrir umræddar lóðir, með fyrirvara um samning og greiðslur.
Grundarfjarðarhöfn er meðal bestu hafna landsins, býr við góðar náttúrulegar hafnaraðstæður og byggð hafa verið upp góð hafnarmannvirki. Tækifæri til að auka breidd í starfseminni hafa verið nýtt, ekki síst með markaðssetningu fyrir skemmtiferðaskip í ríflega 20 ár. Meira en 50% útsvarstekna bæjarins koma af hafnsækinni starfsemi, einkum veiðum, vinnslu, flutningum o.fl. Það eru því fjölmörg tækifæri fólgin í starfsemi og aðstöðu hafnarinnar, til framtíðar litið.
Á hafnarsvæðinu sjálfu eru engar lausar athafnalóðir og hafa ekki verið í dágóðan tíma.
Með vaxandi umsvifum á hafnarsvæðinu hefur þörfin aukist fyrir opið rými, bílastæði og öruggar umferðarleiðir.
Þann 17. febrúar sl. var auglýst tillaga að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, þar sem gert er ráð fyrir athafnalóðum á nýrri landfyllingu sunnan við Miðgarð, auknu rými fyrir umferð og öruggari umferðarleiðum, m.a. gönguleiðum. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag bæjarins frá 2019 og í samræmi við eldri aðalskipulagsáætlanir.
Með staðfestu tilboði þann 20. febrúar sl. festi hafnarsjóður kaup á eigninni Nesvegi 4. Með því hafa forsendur breyst umtalsvert. Með kaupunum mun höfnin ráða yfir rúmlega 7200 m2 lóð á lykilstað á hafnarsvæðinu. Tilgangur kaupanna er að tryggja full yfirráð yfir lóð sem mun gegna lykilhlutverki í tengslum við hafntengda starfsemi og þar með framtíðartekjum hafnar og bæjar.
Hafnarstjórn áréttar mikilvægi þess að nýta nálægð við góða höfn og tækifæri til uppbyggingar sem því tengist, en telur að þörf fyrir nýjar lóðir sé nú minni eftir þessi kaup. Í ljósi þessara breyttu forsendna leggur hafnarstjórn því til við bæjarstjórn að gerð verði breyting á fyrirkomulagi lóða og landfyllingar frá því sem fram kemur í nýkynntri tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis. Breytt tillaga verði mótuð og kynnt, þar sem gert sé ráð fyrir minna umfangi lóða, en áfram unnið að nýjum neðanbyggðarvegi og viðlegukanti, enda tekur mörg ár að tryggja stuðning fyrir fjárhagshlut ríkisins í slík mannvirki.
Hafnarstjórn - 28Samþykkt samhljóða.
Bókun fundarRætt um tillögu hafnarstjórnar út frá breyttum forsendum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu hafnarstjórnar um að breyta fyrirkomulagi lóða og landfyllingar frá því sem fram kemur í tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis, sem auglýst var í Skipulagsgátt og víðar 17. febrúar sl., og felur skipulagsfulltrúa að taka þá tillögu úr auglýsingu.
Bæjarstjórn samþykkir að fela skipulagsfulltrúa, hafnarstjórn og hafnarstjóra að undirbúa breytta tillögu, þar sem áfram sé unnið að nýjum neðanbyggðarvegi og viðlegukanti, og því að tryggja stuðning fyrir fjárhagshlut ríkisins í það, en að gert sé ráð fyrir minna umfangi lóða.
Lagt fram undirritað kauptilboð um eignina, dags. 20. febrúar 2026.
Byggingarfulltrúa var falið að vinna greinargerð út frá skoðun húss og er sú greinargerð væntanleg.
Hafnarstjorn hefur hafið vinnu við að setja eigendastefnu um húsið, þ.e. að sett verða viðmið um nýtingu hússins, m.a. um þau samkeppnissjónarmið sem höfð verða í heiðri.
Ein umsókn barst í starf verkefnastjóra tækni- og byggingarmála, sem auglýst var 26. janúar sl., frá Örvari Þór Örlygssyni, vél- og orkutæknifræðingi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir gögnum og starfsviðtölum við umsækjandann, sem metinn er hæfur til starfsins út frá fyrirliggjandi skilyrðum í auglýsingu.
Bæjarstjórn samþykkir að Örvar Þór Örlygsson verði ráðinn í starfið og felur bæjarstjóra að ganga til samninga við hann.
Fundurinn er aukafundur bæjarstjórnar.