-
Bæjarráð - 656
Bæjarráð fagnar gerð þessa samnings og óskar UMFG velfarnaðar í sínum störfum á samningstímabilinu.
Bæjarráð þakkar ennfremur þeim sem komu að undirbúningi samningsgerðarinnar.
Til stendur að gera samstarfssamninga við önnur íþróttafélög í sveitarfélaginu.
-
Bæjarráð - 656
-
Bæjarráð - 656
Rætt um efni skýrslunnar, sem er samantekt og greining á tekjum, m.a. útsvarstekjum bæjarins og fleiri fjárhagsþáttum. Skýrslan er afrakstur af rýni SSV fyrir bæjarstjórn sem segja má að staðið hafi yfir sl. átta ár, eða allt frá því fyrsta skýrsla af þremur var unnin haustið 2018.
Bæjarráð og bæjarstjórn hafa í átta ár vakið athygli á þeirri óboðlegu stöðu að sveitarfélög landsins hafi ekki aðgang að upplýsingum um útsvarstekjur sínar, sem ríkið innheimtir fyrir þau. Álagningarskrá fæst ekki afhent sveitarfélögum og engar upplýsingar berast með uppgjöri til sveitarfélaganna um skiptingu útsvarstekna eftir atvinnugreinum o.fl.
Niðurstöður skýrslunnar sýna að óútskýrður munur sé á útsvarstekjum Grundarfjarðarbæjar og flestum þeim sveitarfélögum sem við berum okkur saman við, þar sem okkar tekjur eru lægri.
Bæjarráð samþykkir að senda þessa skýrslu til fjármálaráðherra og Ríkisskattstjóra, til upplýsingar og frekari skoðunar. Ennfremur til Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem fylgst hefur náið með vinnu bæjarins að málinu síðustu árin. Bæjarráð ítrekar jafnframt fyrri afstöðu sína og bæjarstjórnar, um að gera þurfi verulega bragarbót á upplýsingagjöf ríkisins til sveitarfélaga um útsvarstekjur þeirra.
Samþykkt samhljóða.
-
Bæjarráð - 656
Sigurður Valur hefur frá 2019 starfað bæði sem byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi hjá Grundarfjarðarbæ, ýmist bæði eða annað hvort, eftir tímabilum, auk þess sem hann hefur haft umsjón með fjölmörgum framkvæmdaverkefnum bæjarins, meðfram öðru.
Bæjarráð vill koma á framfæri sérstökum þökkum til Sigurðar Vals fyrir hans þjónustu og framlag á annasömum tímum, við stór og mikilvæg skipulags- og uppbyggingarverkefni hjá Grundarfjarðarbæ. Bæjarráð og bæjarstjóri færa honum þakkir fyrir einstaklega farsælt og gott samstarf, og góð kynni.
Ný bæjarstjórn mun taka ákvörðun um ráðningu nýs skipulagsfulltrúa.
-
Bæjarráð - 656
Í ljósi endurnýjunar fulltrúa í bæjarstjórn og skipulags- og umhverfisnefnd, í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, og í ljósi þess að bæði bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi ljúka störfum á næstu dögum, þá telur bæjarráð mikilvægt að skilja meðfylgjandi upplýsingar eftir fyrir nýja bæjarstjórn og skipulagsnefnd, nýjan skipulagsfulltrúa og nýjan bæjarstjóra.
Samþykkt að senda yfirlitið nýrri bæjarstjórn.
-
Bæjarráð - 656
Lögð fram beiðni skólastjóra Grunnskóla Grundarfjarðar, þar sem farið er fram á viðbótar fjárveitingar vegna ráðningar talmeinafræðings í 50% stöðu frá og með hausti 2026 og vegna framkvæmda til að bæta aðstöðu fyrir sérkennslu og aðstöðu sérfræðinga.
Ennfremur lögð fram beiðni um aukafjárveitingu vegna kaupa á sand- og áburðardreifara fyrir knattspyrnuvöll, tjaldsvæði og önnur opin grassvæði.
Einnig lögð fram fyrirspurn skólastjóra Leikskólans Sólvalla, um það hvort viðbótarfjármagn fylgi fyrir starfsemi 5 ára barna, sem verða frá og með komandi skólaári nemendur Sólvalla, þegar Eldhamrar hætta starfsemi. Í erindinu er tillaga um endurnýjun húsgagna og annarra námsgagna vegna fimm ára barna.
Bæjarráð samþykkir þær fjárveitingar sem að framan greinir og fjárhæðir sem um ræðir í framlögðum erindum.
Jafnframt leggur bæjarráð til, að fjármunir sem í fjárhagsáætlun 2026 eru ætlaðir Eldhömrum fyrir rekstrarárið 2026 (frá hausti 2026 og út árið) verði færðir milli liða og nýttir í framangreind innkaup, og að það sem þá stendur eftir af ónýttri fjárveitingu Eldhamra 2026 verði ráðstafað með viðauka við fjárhagsáætlun ársins. Skrifstofustjóra falinn frágangur á slíkum viðauka til bæjarstjórnar.
Í samræmi við afgreiðslu undir dagskrárlið 9, þar sem gert er ráð fyrir kostnaðarauka vegna viðgerðar á þaki grunnskóla, verði það sömuleiðis haft í huga með gerð Viðauka hjá bæjarstjórn.
-
Bæjarráð - 656
Fyrir liggur jákvæð afstaða flestra bæjarfulltrúa fyrir þessari hönnun.
Bæjarráð samþykkir framlagðar teikningar (drög) og felur tæknifræðingi að láta fullgera þær með hönnuði verksins, Rúnari Ólafssyni, og leggja fyrir byggingarfulltrúa skv. umsókn um byggingarleyfi.
Tæknifræðingi jafnframt falið að leita tilboða í framkvæmd verksins, en ætlunin er að mötuneyti í grunnskóla verði tilbúið fyrir upphaf komandi skólaárs eða sem fyrst í haust.
Bókun fundar
Til máls tóku FÞÞ, SG, JÓK og ÁE.
-
Bæjarráð - 656
Til stendur að steypa gangstétt efst á Eyrarvegi, frá Eyrarvegi 22-26 (þ.e. frá Fagurhólstúni og að Fagurhól), einnig gangstétt í Sólvöllum, þ.e. frá Hrannarstíg meðfram leikskóla og að samkomuhúsi, stétt fyrir framan Nesveg 5 í framhaldi af framkvæmdum síðasta sumars neðst í Hrannarstíg, og lagfæra göngustíg/leið á Ölkelduvegi, m.a. að skóla/íþróttahúsi. Verið er að vinna að undirbúningi að stígagerð á íþróttasvæði, en leysa þarf einnig ofanvatnsvandamál því samhliða.
Stígar eiga einnig að koma í grunnskólalóð.
Auk þess eru Almenna umhverfisþjónustan og Gunni múr með verk frá sl. sumri, við að steypa gangstéttar, við Sólvelli og við Sögumiðstöð, og á austanverðum Hlíðarvegi.
---
Undanfarið hefur orðið vart við leka frá þaki grunnskólans, gamla skóla. Gert var gróft ástandsmat á þakinu, bæði að utan og innan (skriðloft). Þakið, sem mælist um 360 fermetrar að flatarmáli á loftmynd, ber þess skýr merki að vera komið að lokum líftíma síns. Tveir valkostir eru tilgreindir, bráðabirgðaviðgerð og varanlegri viðgerð með endurnýjun þaks.
Í ljósi ástands á þaki grunnskólans samþykkir bæjarráð að farið verði í endurnýjun á þaki þessa hluta skólans, sbr. þá valkosti sem fyrir liggja í minnisblaði tæknifræðings dags. 6. maí 2026.
Tæknifræðingi falið að undirbúa verkið, afla tilboða í það og koma því til framkvæmda við fyrsta tækifæri.
--
Örvar Þór sagði frá því að fyrir liggur tilboð um málun utanhúss, í grunnskóla, samkomuhús og Sögumiðstöðina.
Varðandi samkomuhúsið, þá stendur einnig til að endurnýja glugga hússins á suður og vesturhlið.
Hann sagði frá því að leitað hefði verið tilboða í gámaeiningu, aðstöðuhús, fyrir starfsfólk á söfnunarstöð sorps við Ártún 6 (gámastöðin). Málið er í vinnslu hjá honum.
Örvari Þór var þakkað fyrir komuna og fyrir góðar upplýsingar.
-
Bæjarráð - 656
Lagt til að samið verði við lægstbjóðanda, sbr. tölvupóst bæjarstjóra til bæjarfulltrúa 19. maí 2026.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Tæknifræðingi jafnframt falið að ganga í nauðsynlegar aðgerðir til að undirbúa verkframkvæmdina.
Bæjarráð þakkar bjóðendum fyrir sýndan áhuga og þátttöku í útboðinu og biður tæknifræðing eða VSÓ um að koma því á framfæri.
Bæjarstjóri hafði gengið frá samkomulagi um að Fannar Þór Þorfinnsson hjá EFLU yrði eftirlitsmaður fyrir verkið, af hálfu bæjarins sem verkkaupa, og hafði hann tekið þátt í undirbúningi útboðsins, sem slíkur.
Bæjarráð óskar eftir því að ný bæjarstjórn taki afstöðu til þess hvort sú ákvörðun eigi að standa, í ljósi stöðu Fannars Þórs sem er verðandi forseta nýkjörinnar bæjarstjórnar.
-
Bæjarráð - 656
Bæjarráð samþykkir að vísa ákvörðun í málinu til nýrrar bæjarstjórnar.
-
Bæjarráð - 656
Á fundi bæjarstjórnar 13. maí sl. kom bæjarstjórn saman til umræðu um frágang viljayfirlýsingar, sem hún fól lögmanni og bæjarstjóra að ganga frá.
Yfirlýsingin lögð fram til kynningar, en bæjarstjóri hefur umboð til undirritunar.
-
Bæjarráð - 656
Bæjarráð áréttar fyrri afgreiðslu sína sem byggir á því að nýlegar lagabreytingar koma í veg fyrir að sveitarstjórnir geti veitt jákvæðar umsagnir nema skráning húsnæðis sé rétt - þ.e. að húsnæði sé skráð sem atvinnuhúsnæði. Afgreiðsla bæjarráðs er í samræmi við afgreiðslur annarra sveitarfélaga, eftir að lögin breyttust að þessu leyti.
Bæjarráð áréttar þær leiðbeiningar sem gefnar voru til umsækjanda með tölvupóstum 8. maí og 15. maí sl. þar sem bent var á að það heyri undir hlutverk byggingarfulltrúa að leiðbeina um þau atriði sem hér um ræðir.
Hvað varðar það atriði að skorað sé á bæinn að veita, þrátt fyrir þetta, jákvæða umsögn, þá er það bæjarstjórn sem er umsagnaraðili og er erindi þessu því samhliða vísað til verðandi forseta bæjarstjórnar, Fannars Þórs Þorfinnssonar hvað varðar afgreiðslu þeirrar áskorunar.
Samþykkt samhljóða.
-
Bæjarráð - 656
Erindi Elsu hafði þegar verið svarað á jákvæðan hátt og hafði bæjarstjóri falið Nönnu Vilborgu verksefnisstjóra skipulags- og umhverfismála að skoða aðstæður og undirbúa úrbætur, og Nanna þegar sett sig í samband við Elsu vegna málsins.
Bæjarráð þakkar Elsu fyrir erindið og samþykkir fyrir sitt leyti að bregðast jákvætt við því.
Hann setti fund, bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega nýja bæjarfulltrúa, þau Fannar Þór, Aðalstein og Þuríði Gíu.
Gengið var til dagskrár.