314. fundur 10. september 2026 kl. 14:00 - 17:17 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ) forseti bæjarstjórnar
  • Davíð Magnússon (DM)
    Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
    Aðalmaður: Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra 2026-2030

Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2026-2030

Málsnúmer 2606002Vakta málsnúmer

Forseti sagði frá því að hann fór á sinn fyrsta stjórnarfund hjá SSV í ágúst.

Hann ræddi einnig um fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður 8.-9. október nk. Af þeim sökum verður næsti bæjarstjórnarfundur haldinn 15. október.

3.Bæjarráð - 657

Málsnúmer 2606002FVakta málsnúmer

  • Kynning Halldóru Hreggviðsdóttur frá Alta fyrir nýjum bæjarfulltrúum, nefndarmönnum í skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn, á fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar.
    Bæjarráð - 657 Halldóra fór yfir málið með nefndarmönnum. Umræður um málið.

    Gestir véku af fundi.
  • 3.2 2601004 Framkvæmdir 2026
    Farið yfir helstu framkvæmdir.
    Bæjarráð - 657 Örvar fór yfir helstu framkvæmdaverkefni.

    Framkvæmdir í eldhúsi grunnskóla, framkvæmdir við grunnskólaþak, seyrulosun og framkvæmdir við Hjallatún.

    Bæjarráð veitir bæjarstjóra og verkefnastjóra tæknimála heimild til að fara í útboð í Hjallatúni.

    Samþykkt samhljóða.

    Rætt um lagningu göngustígs frá skólalóð að íþróttavelli og meðfram Hlíðarvegi.

    Lagt til að önnur lausn en malarstígur verði fundin.

    Samþykkt samhljóða.

  • Lögð fram drög að viljayfirlýsingu.
    Bæjarráð - 657 FÞÞ vék af fundi undir þessum lið og SG tók sæti hans á fundinum.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra að undirrita hana.

    Samþykkt samhljóða.

    FÞÞ tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 657
  • 3.5 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-apríl og janúar-maí 2026.
    Bæjarráð - 657 Samkvæmt yfirlitunum hefur greitt útsvar hækkað um 12,6% fyrstu fjóra mánuði ársins og 16% fyrstu fimm mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lagt fram rekstraryfirlit fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins, janúar- mars 2026.
    Bæjarráð - 657 Reksturinn er um 15 millj. kr. undir áætlun fyrstu þrjá mánuði ársins vegna hærri fjármagnsgjalda sökum aukinnar verðbólgu.
  • 3.7 2605014 Launaáætlun 2026
    Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-maí 2026.
    Bæjarráð - 657 Raunlaun eru undir áætlun tímabilsins.
  • Lagt fram tíu ára fjárhagsyfirlit Grundarfjarðarbæjar, A- og B-hluta, með upplýsingum úr ársreikningum og lykiltölum áranna 2016-2025.
    Bæjarráð - 657
  • 3.9 2606017 Starf bæjarstjóra
    Lagður fram ráðningarsamningur bæjarstjóra.
    Bæjarráð - 657 BJJ vék af fundi undir þessum lið.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan ráðningarsamning.

    Samþykkt samhljóða.

    BJJ tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Bæjarstjórn fól bæjarráði að leita tímabundið til samninga við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa, þar til fundin yrði varanleg lausn.
    Bæjarráð - 657 FÞÞ vék af fundi undir þessum lið og þeim næsta og SG tók sæti hans.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja tímabundið við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa um fyrirliggjandi verkefni, þar til starfið yrði auglýst.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarstjórn fól bæjarráði að leita tímabundið til samninga við verkfræðistofu um ráðningu byggingarfulltrúa, þar til fundin yrði varanleg lausn.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja tímabundið við verkfræðistofu um ráðningu byggingarfulltrúa um fyrirliggjandi verkefni, þar til starfið yrði auglýst.

    Samþykkt samhljóða.

    FÞÞ tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Lögð fram beiðni Alexöndru Bjargar Andradóttur um styrk vegna landsliðsverkefnis í blaki.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til Alexöndru. Gert er ráð fyrir styrkframlagi til landsliðsverkefna í fjárhagsáætlun ársins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing fyrir Nesveg 8-10 til samþykktar.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð samþykkir merkjalýsingu fyrir Nesveg 8-10.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing fyrir Nesveg 12 til samþykktar.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð samþykkir merkjalýsingu fyrir Nesveg 12.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð samþykkir að veittar verði umhverfisviðurkenningar sumarið 2026 og felur bæjarstjóra umsjón verkefnisins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt til að bæjarstjóra verði veitt umboð til að skipa fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við fulltrúa annarra sveitarfélaga á Snæfellsnesi.
    Bæjarráð - 657 Bæjarstjóra veitt umboð til að tilnefna fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við aðra fulltrúa.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Golfklúbbsins Vestarr fyrir starfsárið 2024-2025.
    Bæjarráð - 657
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Hinsegin daga um tímarit og fræðsluverkefni Hinsegin daga.
    Bæjarráð - 657
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Innviðaráðuneytisins um áformað frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum.
    Bæjarráð - 657 Bæjarráð vísar kynningunni til umsagnar í hafnarstjórn.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagður fram til kynningar verksamningur milli Grundarfjarðarbæjar og Golfklúbbsins Vestarr um rekstur og viðhald á íþróttavelli Grundarfjarðar. Markmið samningsins er að tryggja viðhald og umhirðu íþróttavallar í Grundarfirði þannig að hann sé leik- og keppnisfær og uppfylli kröfur um notkun á samningstímanum. Samningurinn er frá 1. maí til 30. september 2026.
    Bæjarráð - 657

4.Bæjarráð - 658

Málsnúmer 2607002FVakta málsnúmer

  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 658
  • 4.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júní 2026.
    Bæjarráð - 658 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 9,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Bæjarráð - 658 Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð 117. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
  • Bæjarráð - 658 Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð 280. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bæjarráð - 658 Bæjarráð samþykkir samhljóða auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

    Bæjarráð felur skipulagsfulltrúi að senda samþykkta tillögu ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bæjarráð - 658 Bæjarráð samþykkir samhljóða auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

    Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að senda samþykkta breytingu ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
  • Kosning kjörstjórnar. Bæjarráð - 658 Kosin voru samhljóða í kjörstjórn til fjögurra ára.

    Aðalmenn
    Mjöll Guðjónsdóttir formaður
    Salbjörg Nóadóttir
    Þórunn Kristinsdóttir

    Varamenn
    Guðrún Margrét Hjaltadóttir
    Þorsteinn Hjaltason
    Gunnar Andri Pétursson

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram minnisblað bæjarstjóra varðandi áform umhverfisráðherra að leggja niður svæðisbundin heilbrigðiseftirlit.
    Bæjarráð - 658 Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins.
  • Samkvæmt Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 er svæði ÍB6 skilgreint sem framtíðarsvæði fyrir íbúabyggð. Bæjarráð hefur áhuga á að kanna möguleika á uppbyggingu svæðisins og áhuga markaðsaðila á þátttöku í þróun þess.
    Bæjarráð - 658 Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við bæjarráð og kanna möguleika á uppbyggingu svæðisins og áhuga markaðsaðila á þátttöku í þróun þess.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing sem unnin var í samstarfi við Olíudreifingu og hafnarstjóra. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs.
    Bæjarráð - 658 Bæjarráð vísar merkjalýsingu Nesvegar 4b til skipulags- og umhverfisnefndar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing sem unnin var í samstarfi við hafnarstjóra. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs.
    Bæjarráð - 658 Bæjarráð vísar merkjalýsingu Nesvegar 6 til skipulags- og umhverfisnefndar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing til samþykktar bæjarráðs.
    Bæjarráð - 658 Bæjarráð vísar merkjalýsingu Fellasneiðar 5 og 7 til skipulags- og umhverfisnefndar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram merkjalýsing til samþykktar bæjarráðs.
    Bæjarráð - 658 Bæjarráð vísar merkjalýsingu Ölkelduvegar 17 til skipulags- og umhverfisnefndar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum ásamt kynningarbréfi um samtökin.
    Bæjarráð - 658
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur Samtaka orkusveitarfélaga ásamt kynningarbréfi um samtökin.
    Bæjarráð - 658
  • Lögð fram til kynningar fundargerð 243. fundar Breiðafjarðarnefndar sem haldinn var 7. maí sl.
    Bæjarráð - 658
  • Lögð fram umsögn bæjarstjóra um endurskoðun byggðakvótakerfisins.
    Bæjarráð - 658
  • Lagður fram til kynningar tölvupóstur bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms til ráðherra um tilnefningu Sigurðar Gísla Guðjónssonar í skólanefnd FSN.
    Bæjarráð - 658

5.Bæjarráð - 659

Málsnúmer 2608002FVakta málsnúmer

  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu. Bæjarráð - 659
  • 5.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júlí 2026. Bæjarráð - 659 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 11,2% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Bæjarráð - 659 Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð 281. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram tillaga um að Grundarfjarðarbær sæki um aðild að Brák leigufélagi.
    Bæjarráð - 659 Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð lauk yfirferð sinni á umsóknum um starf skipulags- og byggingafulltrúa. Umsóknarfrestur um starf skipulags og/eða byggingarfulltrúa rann út þann 15 júlí sl. Alls bárust 20 umsóknir og hefur bæjarráð farið yfir þær.
    Bæjarráð - 659 Bæjarráð fór yfir niðurstöðu ráðningarferlis vegna starfs skipulags- og/eða byggingarfulltrúa.

    Að lokinni yfirferð umsókna, viðtölum og mati á fyrirliggjandi upplýsingum var það niðurstaða bæjarráðs að ekki yrði ráðist í ráðningu í starfið að svo stöddu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við þá aðila sem sinna í dag þjónustu skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélagið um áframhaldandi fyrirkomulag þjónustunnar og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um raforkumál Grundafjarðarbæjar, stöðuna og næstu skref.
    Bæjarráð - 659 Umræða um málið.
  • Lagt fram til kynningar minnisblað um nýja gjaldskrá stöðuleyfa ásamt ítarefni. Málið var undirbúið og samþykkt af fyrri bæjarstjórn 13. mars sl. og eru nýjar reglur og gjaldskrá tilbúin til auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda og þá taka þær gildi.
    Bæjarráð - 659 Guðmundur kynnti málið.
  • Lögð fram styrkbeiðni Setbergssóknar um styrk í formi grastorfs og göngustígaefni til að fegra kirkjugarðinn í sumar.
    Bæjarráð - 659 AJ vék af fundi undir þessum lið og FÞÞ tók við stjórn hans.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

    Samþykkt samhljóða.

    AJ tók aftur sæti sitt á fundinum og tók við stjórn hans.
  • Lagt fram bréf Innviðaráðuneytisins með erindi til allra sveitarfélaga vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
    Bæjarráð - 659
  • Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga með forsendum fyrir fjárhagsáætlun sveitarfélaga 2027-2031.
    Bæjarráð - 659
  • Lagt fram til kynningar bréf Atvinnuvegaráðuneytisins með ábendingum til sveitarfélaga vegna búfjarbeitar og ágangs búfjár.
    Bæjarráð - 659
  • Lagður fram til kynningar samningur á milli Ungmennafélags Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæjar um staðsetningu, uppsetningu og viðhald á grasblakvelli við Borgarbraut 18b.
    Bæjarráð - 659

6.Íþrótta- og tómstundanefnd - 117

Málsnúmer 2606003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 117. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
  • Erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar lagt fram. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Farið yfir erindisbréf íþrótta- og tómstundanefndar.

    Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir og að varaformaður nefndarinnar verði Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir . Jafnframt var samþykkt að ritari nefndarinnar verði Hinrik Konráðsson, starfsmaður íþrótta- og tómstundanefndar.

    Nýr formaður tók við stjórn fundarins.
  • Lagðar fram til kynningar við upphaf nefndarstarfs; Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Grundarfjarðarbæ. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Íþrótta-og tómstundafulltrúi fór yfir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa.
  • 6.3 2606016 Fundartími nefnda
    Ákvörðun um reglulegan fundartíma eða heppilega fundardaga nefndarinnar. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Nefndin mun að jafnaði funda á 6-8 vikna fresti. Nefndin telur ekki þörf á að ákveða fastan fundartíma, heldur mun hún koma sér saman um fundartíma hverju sinni.

    Nefndin ákvað að næsti fundur yrði þriðjudaginn 28. júlí.

    Fundir verða að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar kl.17:00.
  • Farið yfir hlutverk og verkefni nefndarinnar. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Hlutverk íþrótta- tómstundarnefndar er tiltekið í erindisbréfi hennar. Rætt var um að nefndarmenn séu virkir í þátttöku og hugmyndavinnu, til þess að viðhalda sem áhrifaríkustu starfi í þágu íþrótta- og tómstundamála í bænum.

    Íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að mótuð verði skýr framtíðarsýn fyrir íþrótta- og tómstundamál í Grundarfirði. Nefndin vill leggja sitt af mörkum við stefnumótunina og styðja við framgang hennar í samstarfi við bæjaryfirvöld, íþróttafélög og aðra hagaðila.
  • Farið yfir stígamál á íþróttasvæðinu í Grundarfirði. Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Rætt um fyrirhugaða stígagerð í kringum skólann og íþróttavöllinn.
  • Grundarfjarðarbær tekur þátt í íþróttaviku Evrópu, eins og fyrri ár.

    Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.- 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið vikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu, auk þess að hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Íþrótta-og tómstundafulltrúi kynnti dagskrá síðustu ára.

    Farið var í hugmyndavinnu vegna næstu íþróttaviku Evrópu og komu fram margar góðar hugmyndir sem nefndin ætlar að vinna áfram að.

    Umsóknarfrestur vegna styrkja fyrir íþróttaviku Evrópu er til 21.ágúst. Breyting hefur orðið á styrkútdeilingu þannig að hvert héraðssamband fær að hámarki 500.000 kr. en ekki hvert sveitarfélag eins og hefur verið.
  • 6.7 2604013 Beam verkefni
    Verkefnið heitir BEAM - Building Entrepreneurial Attitude and Mindset og er Erasmus samstarfsverkefni Snæfellsbæjar, Grundarfjarðar, Stykkishólms og sveitarfélaga í Suður-Eistlandi.

    Markmiðið er að þróa hagnýtt og notendavænt stuðningslíkan sem hjálpar okkur að efla frumkvöðlahugsun, sköpun, þátttöku og samfélagslega virkni ungs fólks í dreifbýli.

    Kynnt var staða verkefnisins, þar sem farið var yfir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin. Jafnframt var gerð grein fyrir næstu skrefum í áframhaldandi vinnu verkefnisins.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 117 Nefndin lýsti yfir ánægju með verkefnið.

7.Íþrótta- og tómstundanefnd - 118

Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 118. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
  • Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgansröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanir Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Lagt fram til kynningar. Nefndin lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem hefur verið lögð í þetta verkefni og eru spennt fyrir þeim árangri sem getur hlotist af því.
  • Takið daginn frá!

    Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag í leiksklólalóðinni.

    Þetta er sambærilegt verkefni og við vorum með í grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.

    Sá viðburður heppnaðist svo vel að við stefnum nú á að gera þetta að árlegum viðburði, ?Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru?.

    Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Lagt fram til kynningar. Nefndin fagnar þessu framtaki.
  • Samningur á milli Ungmennafélag Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæjar um staðsetningu, uppsetningu og viðhald á grasblakvelli við Borgarbraut 18b Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Lagt fram til kynningar.

    Nefndin hrósar UMFG fyrir flott framtak og einnig þeim aðilum sem komu að uppsetningu blakvallarins.
  • Drög að nýju erindisbréfi ungmennaráðs. Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Lagt fram til kynningar.
  • Farið yfir starfssemi félagsmiðstöðvarinnar Eden skólaárið 2026-2027. Rætt um breytingar á opnunartímum Eden yfir veturinn.

    Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Nefndin leggur ríka áherslu á að hafinn verði undirbúningur að nýju framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöðina Eden.

    Núverandi húsnæði Eden uppfyllir ekki þær væntingar sem gera verður til nútímalegrar félagsmiðstöðvar fyrir börn og ungmenni og er ekki sambærilegt við þá aðstöðu sem er í boði í öðrum félagsmiðstöðvum á Snæfellsnesi. Mikilvægt er að börn og ungmenni í Grundarfirði hafi aðgang að vandaðri, aðlaðandi og fjölbreyttri aðstöðu sem styður við öflugt félags- og tómstundastarf.

    Nefndin telur að ekki sé hægt að bíða lengur með þetta verkefni og hvetur bæjarstjórn til að setja framtíðarhúsnæði Eden í forgang og hefja markvissa vinnu við þarfagreiningu, staðsetningu og mögulegar útfærslur.

    Jafnframt verði skoðað hvort framtíðaruppbygging Eden geti skapað tækifæri til að þróa öfluga ungmenna- og félagsmiðstöð á Snæfellsnesi, með aðstöðu sem getur stutt við aukið samstarf, fjölbreyttari starfsemi og viðburði fyrir ungmenni af öllu svæðinu.

    Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélagið sýni metnað og frumkvæði í málaflokknum og skapi Eden umgjörð sem endurspeglar mikilvægi félagsmiðstöðvarstarfs fyrir börn og ungmenni.
  • UMFG óskar eftir að samstarfi í uppbyggingu á nýjum sparkvelli á vegum KSÍ og FIFA.

    FIFA Arena er nýtt verkefni sem Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) hefur sett af stað til að byggja upp mini-knattspyrnuvelli (mini-pitches) víðs vegar um heiminn. Markmið verkefnisins er að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu til fótboltaiðkunar er ábótavant.

    Um verkefnið:
    - Vellirnir eru smærri en hefðbundnir knattspyrnuvellir, 20m x 40m og henta vel fyrir 5 eða 7 manna bolta. Vellirnir þola mikla notkun, bæði skipulagða og óskipulagða.

    - Gervigras af FIFA-vottaðri gerð er á völlunum. Það er sérstaklega hannað fyrir mikla notkun og er án innfylliefna, sem tryggir lítið viðhald og umfram allt notkun yfir allt árið.

    - Vellirnir eru girtir og umhverfis þá er fjögurra metra há girðing. Innbyggð mörk eru á hvorum enda (3m x 1m).

    - FIFA sér um uppsetningu vallanna og annars sem þeim tilheyra - að undanskildu undirlagi, aðgengi og umhverfisfrágangi.

    - FIFA og KSÍ standa straum af flutningi sparkvallanna til landsins og á viðkomandi uppsetningarstað, öllum efnum sem þarf svo sem gervigrasi, grindverki, netum og mörkum og uppsetningunni sjálfri.

    - Hlutverk sveitarfélags/íþróttafélags er að finna vellinum staðsetningu með undirlagi sem mætir stöðlum FIFA. Staðsetning vallar skal vera í grennd við skóla og/eða svæði sem muni nýtast til fótboltaiðkunar.

    - Völlurinn mun vera í eigu sveitarfélags/íþróttafélags og mun eigandinn bera ábyrgð á viðhaldi og umhirðu vallar sem og daglegum rekstri.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Lagt fram til kynningar. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með verkefnið og fagnar frumkvæði UMFG með samstarf í þessu verkefni.
  • Íþróttavika Evrópu verður haldin 23.-30.september 2026. Grundarfjarðarbær mun taka þátt eins og síðustu ár.

    Drög að dagskrá kynnt.
    Íþrótta- og tómstundanefnd - 118 Nefndin lýsir yfir ánægju með dagskrá Íþróttaviku Evrópu og fagnar því að Grundarfjarðarbær hefur fengið styrk frá ÍSÍ fyrir íþróttavikuna.

8.Skipulags- og umhverfisnefnd - 280

Málsnúmer 2607001FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 280. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.

  • Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar lagt fram. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Erindisbréf nefndarinnar kynnt fyrir fundarmönnum.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Þuríður Gía Jóhannesdóttir og að varaformaður nefndarinnar verði Signý Gunnarsdóttir. Jafnframt var samþykkt að skipulagsfulltrúi verði ritari nefndarinnar.

    Nýr formaður tók við stjórn fundarins.

    Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, kl. 15:00.
  • Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Siðareglur kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
  • Samþykktir um stjórn Grundarfjarðarbæjar lagðar fram Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Samþykktir um stjórn Grundarfjarðarbæjar kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
  • Bæjarráð samþykkti á 657. fundi sínum að veittar verði umhverfisviðurkenningar sumarið 2026 og fól bæjarstjóra umsjón verkefnisins. Lagt er til að veittar verði umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026. Markmið viðurkenninganna er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja rækt við umhverfi sitt og gefa gott fordæmi í samfélaginu. Lagt er til að Grundarfjarðarbær veiti í upphafi tvær tegundir umhverfisviðurkenninga, annars vegar heimili ársins 2026, þ.e. snyrtilegasta hús og garður, og hins vegar prýði atvinnulífsins 2026, þ.e. snyrtileg atvinnustarfsemi
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.
  • Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun halda árlegan Skipulagsdag í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Dagurinn verður haldinn 5. nóvember nk.. Daginn eftir þann 6. nóvember er haldinn skipulagsfulltrúadagur, þar sem stofnunin fundar með starfandi skipulagsfulltrúum. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að formaður nefndarinnar, skipulagsfulltrúi og verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála mæti fyrir hönd sveitarfélagsins á Skipulagsdaginn 2026. Enn fremur að skipulagsfulltrúa og verkefnisstjóra verði falið að taka þátt í skipulagsfulltrúadeginum. Óskað hefur verið eftir að hálfu HMS við verkefnisstjóra skipulags- og umhverfisnefndar að halda erindi á Skipulagsdeginum.
  • Eigandi Hrannarstígs 36 fyrirhugar að byggja sólskála sunnan við húsið. Um er að ræða raðhúsalengju sem er innan svæðis sem skilgreint er sem samfélagsþjónusta og er merkt S-2 í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Stærð lóðar Hrannarstígs 36 er 281 fm og nýtingarhlutfall er 0,4. Heimilað byggingarmagn á lóð er því 112,4 fm. Stærð íbúðar er 88,3 fm. Fyrirhugaður sólskáli er áætlaður skv. framlögðum teikningum 10,4 fm að stærð. Heildar byggingarmagn lóðar eftir framkvæmd yrði þá 97,7 fm sem samræmist nýtingarhlutfalli lóðar skv. gildandi deiliskipulagi. Á deiliskipulagsuppdrætti eru sýndir byggingarreitir og skulu allir meginhlutar byggingar vera innan byggingarreits. Í greinargerð deiliskipulags kemur fram að einstaka hlutar bygginga, eins og td. þakskegg, má fara út fyrir byggingarreit að einhverju leyti og gera skal grein fyrir því á aðaluppdrætti. Æskilegt er að valin séu byggingarefni sem fengið hafa viðurkennda umhverfisvottun. Mælt er með að nota byggingarefni og útfærslur sem eru viðhaldslétt og auðveld í þrifum. Óheimilt er að nota byggingarefni sem geta haft í för með sér útskolun skaðlegra efna í vatn, svo sem þungmálma. Samþykki eigenda fasteignar þarf að liggja fyrir í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í málið svo fremi að aðaluppdrættir sýni fram á að megin bygging rúmist innan byggingarreits samþykkts deiliskipulags. Enn fremur að lagt verði fram samþykki eigenda fasteignar í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994.
  • Umhverfis- og orkustofnun vinnur að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028.

    Í 20. grein laganna segir frá þeim þáttum sem gera þarf grein fyrir í vatnaáætlun. Í e-lið segir að gera skuli grein fyrir áætlunum um nýjar framkvæmdir, ný sjálfbær umsvif eða breytingum á vatnshlotum. Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
    Skilafrestur er til og með 30. september 2026.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála að kanna og afla upplýsinga um hvort að áætlanir um verkefni, sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033, munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots náist ekki og sækja um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála ef umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki.
  • Grundarfjarðarbær (kt. 520169-1729), sækir hér með um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir landmótun og uppbyggingu á iðnaðarsvæði vestan Kvernár sem er skilgreint sem landnotkunarsvæði I-1 í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grunni Deiliskipulags iðnaðarsvæðis vestan Kvernár, sem staðfest var þann 13.2.2025. Sem fylgiskjal með framkvæmdaleyfisumsókninni er áætlun um landmótun af iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár skv. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin fellur ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana enda er um að ræða eðlilega landmótun á nýbyggingarsvæði. Landeigandi fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis er Grundarfjarðarbær. Fyrirhuguð framkvæmd felst í því að útbúa lóðir fyrir iðnaðarstarfsemi en aukin eftirspurn er eftir iðnaðarlóðum í Grundarfirði, sem nauðsynlegt er að verða við fyrir þróun og uppbyggingu í sveitarfélaginu. Svæðið er eins og er mishæðótt og því er landmótun nauðsynleg fyrir hagkvæma uppbyggingu lóða og gatna. Með deiliskipulaginu og efnistökuáætluninni er tryggt að saman fari hagkvæm nýting á landi, innviðum og jarðefnum. Nánari lýsingu á framkvæmd má sjá í meðfylgjandi fylgiskjölum og verður framkvæmd í samræmi við lýsingu og skilmála sem þar koma fram.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Herborg Árnadóttir kynnti framkvæmdina. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
  • Samanber 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. ber sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins. Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags sé að ræða. Ef niðurstaða sveitarstjórnar er að aðalskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar heldur það gildi sínu. Skal ákvörðun sveitarstjórnar að jafnaði liggja fyrir innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum og skal niðurstaðan tilkynnt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun jafnskjótt og hún liggur fyrir. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála verði falið í samráði við skipulagsfulltrúa að skoða hvort að landsskiplagsstefna eða aðrir þættir kalli á endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
  • Aðalskipulagstillagan var auglýst í Skipulagsgátt HMS á tímabilinu 21. apríl - 2. júní 2026. Hún var einnig auglýst á heimasíðu Grundarfjarðar, í héraðsblaðinu Skessuhorni og í Lögbirtingablaðinu. Enn fremur var opið hús í Sögumiðstöðinni 27. apríl 2026. Umsagnir um tillögu að rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir eru almennt mjög jákvæðar og gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Alls bárust 8 umsagnir frá eftirfarandi aðilum: Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun, Breiðarfjarðarnefnd, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun, Landi og skógi og Hafrannsóknastofnun. Umsagnaraðilar fagna margir metnaðarfullum áætlunum Grundarfjarðarbæjar um innleiðingu náttúrumiðaðra lausna við meðhöndlun ofanvatns. Texta um viðeigandi mótvægisaðgerðir og vöktun var bætt við tillöguna og umhverfismatið eftir kynningu á vinnslustigi. Vanda þarf til verka við gerð deiliskipulags og framkvæmdir við innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna m.t.t. verndarsvæða, vistgerða, vatnshlota og líffræðilegs fjölbreytileika eins og fjallað er um í rammahlutanum. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

    Nefndin þakkar þeim, sem komu að mótun tillögunnar og vinnslu hennar, fyrir vel unnin störf.
  • Aðalskipulagstillagan var auglýst í Skipulagsgátt HMS á tímabilinu 21. apríl - 2. júní 2026. Hún var einnig auglýst á heimasíðu Grundarfjarðar, í héraðsblaðinu Skessuhorni og í Lögbirtingablaðinu. Skipulagsgögn voru aðgengileg í Ráðhúsi Grundarfjarðarbæjar og á bókasafni bæjarins í Sögumiðstöð. Kynningarfundur var haldinn í Sögumiðstöðinni þann 27. apríl sl. Alls bárust 6 umsagnir frá eftirfarandi aðilum: HMS, Slökkviliði Grundarfjarðar, Veitum, Minjastofnun Íslands, Veðurstofu Íslands og Breiðafjarðarnefnd. Athugasemdir snéru fyrst og fremst að nýju deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Háubökkum sem auglýst var samhliða. Umsagnir og athugasemdir hafa því ekki áhrif á auglýsta tillögu. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
  • Deiliskipulagstillaga var auglýst í Skipulagsgátt HMS á tímabilinu 21. apríl - 2. júní 2026. Hún var einnig auglýst á heimasíðu Grundarfjarðar, í héraðsblaðinu Skessuhorni og í Lögbirtingablaðinu. Skipulagsgögn voru aðgengileg í Ráðhúsi Grundarfjarðarbæjar og á bókasafni bæjarins í Sögumiðstöðinni á Grundargötu 35. Enn fremur var haldinn kynningarfundur um tillögurnar í Sögumiðstöðinni þann 27. apríl sl. Alls bárust 6 umsagnir frá eftirfarandi aðilum: HMS, Veitum, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands, Breiðafjarðarnefnd og Vegagerðinni. Breiðafjarðarnefnd gerir þær athugsemdir að í ljósi þess að fjara Breiðafjarðar nýtur verndar skv. lögum um vernd Breiðafjarðar nr. 54/1995 að þá telur Breiðafjarðarnefnd æskilegt að lóðir verði útfærðar með þeim hætti að tryggð verði 50 m fjarlægð frá strandlínu og að fjarlægð mannvirkja frá strandlínunni verði sem mest. Vegagerðin gerir athugasemdir við auglýsta tillögu og óskar eftir beinu samráði við sveitarfélagið og hönnuð skipulagsins þannig að tryggt sé að tenging verði í samræmi við veghönnunarreglur og öryggiskröfur. Aðrar umsagnir fela ekki í sér athugasemdir við tillöguna. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Herborg Árnadóttir kynnti auglýsta tillögu. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í ljósi innsendra athugasemda.
  • Blakdeild hefur óskað eftir að setja upp grasblakvöll. Upphaflega var samþykkt að setja upp völlinn á borholusvæði. Eftir nánari skoðun er talið að það sé ekki skynsamlegt vegna vatnavaxta sem eru þar á stórum rigningardögum. Verið er að vinna í áætlun til þess að drena svæðið, en það mun ekki takast á þessu ári. Íþrótta- og tómstundarfulltrúi og verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála hafa skoðað aðrar staðsetningar og óska hér með eftir leyfi til þess að setja upp þennan blakvöll við Paimpol garð á móts við grunnskóla. Þar er góð mön sem hægt er að nýta sem stúku, bílastæði er við völlinn, gott aðgengi er að honum, svæði er ekki nýtt í neitt nema grasslátt. Samkvæmt aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem samfélagsþjónusta S-3. Þar er í gildi deiliskipulag Ölkeldudals. Á umræddu svæði er fyrirhugað að byggja á þessari lóð en þessi lóð er neðarlega í forgangsröðun í lóðaúthlutun á þessu svæði. Hægt er svo að setja upp girðingu eða gróður til þess að koma í veg fyrir að boltar fari út á götu. Blakdeildin er tilbúin með allan búnað til þess að setja upp völlinn, en vantar heimild fyrir staðsetningu vallarins. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að gerður verður samningur við blakdeildina um bráðabirgðastaðsetningu vallarins. Verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála falið að vinna málið áfram í samstarfi við íþrótta- og tómstundarfulltrúa.
  • Verið er að endurnýja gangstétt við Fellabrekku 5 sem er nýbygging. Gert var ráð fyrir í verðkönnunargögnum að niðurtekt við Fellabrekku 5 yrði 5 m. Deiliskipulag er ekki í gildi fyrir umrætt svæði. Íbúi óskar eftir að niðurtektir fyrir innkeyrslur verði annars vegar 7,5 m og hins vegar 2,5 m. Samtals 10 m af niðurtekt. Íbúi hefur ekki aðgengi að bílastæðum í götu. Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir niðurtekt 7,5 m, en hafnar niðurtekt um 2,5 m vegna öryggissjónarmiða.
  • 8.15 2511002 LIFE Icewater
    Borist hefur minnisblað frá Umhverfis- og orkustofnun þar sem ætlunin er að kynna LIFE Icewater verkefnið, skýra helstu markmið þess og hvernig það tengist innleiðingu vatnaáætlunar Íslands. Þar er farið stuttlega yfir efni vatnaáætlunar og LIFE Icewater verkefnisins ásamt því að fjallað er almennt um hlutverk sveitarfélaga í verkefninu.

    Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur einnig sent minnisblað sem fjallar um þátttöku sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga í Evrópuáætlunum, þar á meðal LIFE Icewater verkefnum.

    Þetta er gert til þess að fræða nýja kjörna fulltrúa sveitafélagsins um LIFE Icewater verkefnið.

    Lagt hefur verið til að vera með fræðsludag í lok ágúst um þessi mál og veitir til dæmis Samband íslenskra sveitafélaga íslenskum sveitarfélögum ráðgjöf og aðstoð við að afla viðbótartekna vegna þessara mála.

    Einnig hafa Sæmundur Sveinsson verkefnastjóri LIFE Icewater á landsvísu og Gestur Pétursson Forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar boðist til að koma og kynna sig og LIFE Icewater verkefnið fyrir kjörnum fulltrúum.

    Fræðsludagur verður haldinn 1. september nk.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Verkefnisstjóri LIFE Icewater verkefnisins kynnti stöðu mála og það sem fram undan er.
  • Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgangsröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanir Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Verkefnisstjóri skipulags og umhverfismála kynnti ofangreinda vinnu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir ofangreindum landmótunum í næstu fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Ýmis mál rædd.
  • Íbúi við Grundargötu 84 tilkynnir hér með endurnýjun klæðningar á íbúðarhúsi sínu, sbr. gr. 2.3.6.a í byggingarreglugerð nr. 112/2012 (nýklæðning þegar byggðra mannvirkja).
    Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019- 2039 er íbúðarhúsið á svæði merkt ÍB-4. Samkvæmt aðalskipulagi er heimilt að leyfa breytingar á núverandi húsnæði sem falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er. Skipulags- og umhverfisnefnd þarf að meta hvort framkvæmdin samræmist aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 (m.a. ákvæðum um yfirbragð byggðar). Þetta er gert skv. gr. 2.3.6 og 2.3.4 í byggingarreglugerð.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 280 Skipulags- og umhverfisnefnd telur fyrirhugaða breytingu vera óverulega skv. 2.3.4. gr. byggingarreglugerðar og ekki skerða hagsmuni nágranna. Breytingin kallar því ekki á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9.Skipulags- og umhverfisnefnd - 281

Málsnúmer 2607003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 281. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Óskað er eftir upplýsingum um hvort mögulegt sé að fá undanþágu frá ákvæðum um lágmarksfjarlægð mannvirkja frá vatnsborði vegna byggingar á frístundahúsi á landi Mýrarhúsa og breytingar á deiliskipulagi í samræmi við það. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Um er að ræða undanþágu frá gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er varðar fjarlægð frá vötnum, ám og sjó í dreifbýli. Félags- og húsnæðismálaráðherra veitir umrædda undanþágu að undangenginni umsögn sveitarfélags og Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar. Skipulags- og umhverfisnefnd getur fallist á þau rök sem lögð eru fram með fyrirspurninni en bendir á að samþykki landeigenda innan frístundabyggðasvæðis F1 í aðalskipulagi þarf að liggja fyrir við framlögn breytingar deiliskipulags.
  • Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar. Til stóð að vera með 5 m niðurtekt við Fellabrekku 5 skv. verðkönnunargögnum, en samþykkt var af nefndinni að heima niðurtekt á 7,5 m, en því hafnað að heimila að auki 2,5 m af niðurtekt við sömu lóð. Aðstæður hafa verið rýndar nánar og málið skoðað betur. Íbúðarhúsið á Fellabrekku 5 er nálægt götu, í krappri beygju og ekki með aðgengi að bílastæði í götu. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir eftir nánari skoðun að heimila að auki 2,5 m niðurtekt á gangstétt við þá 7,5 m sem heimilaðir voru á síðasta fundi nefndarinnar af öryggissjónarmiðum.
  • Verið er að endurnýja gangstétt og við það þrengist gatan. Eitt bílastæði er á lóð Hlíðarvegar 1 og lóðin er nálægt gatnamótum. Óskað er eftir að fjölga bílastæðum um tvö á lóðinni. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir 5 m niðurtekt á gangstétt af öryggissjónarmiðum, þar sem talið er öruggara að hafa ökutæki innan lóðar en í götu vegna nálægðar við gatnamót.
  • Hafin er vinna við gerð viðmiða um niðurtekt á gangstéttum innan þéttbýlis. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnti málið. Skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnisstjóra að vinna málið áfram og að stefnt skuli að því að fyrstu drög að viðmiðum verði lögð fyrir nefndina í haust.
  • Með merkjalýsingu þessari er verið að breyta afmörkun lóðar Nesvegar 4b og stækka. Lóðin er uppmæld 726,3 fm. Hins vegar reyndust mikilvægir innviðir Olíudreifingar utan lóðamarka og er því afmörkun og stærð lóðarinnar lagfærð. Lóðarleigusamningur mun vera endurnýjaður til samræmis við þessa merkjalýsingu.

    Stærð lóðarinnar verður eftir uppmælingu og aðlögun að innviðum 1001 fm að stærð.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Nesvegar 4b með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.
  • Með merkjalýsingu þessari er verið að breyta afmörkun lóðar Ölkelduvegar 17 og stækka hana til suðurs, þe. inn á lóð Ölkelduvegar 19. Megin ástæða stækkunarinnar er breyting notkun lóðarinnar, úr einbýlishúsalóð í parhúsalóð. Lóðin sem er skráð í fasteignaskrá 911 fm að stærð stækkar i 1.161 fm og eru þeir 250 fm sem lóðin stækkar um teknir úr aðliggjandi lóð Ölkelduvegar 19 og minnkar lóðin nr. 19 sem því nemur.

    Við breytta notkun lóðarinnar mun hún breyta um heiti og verða Ölkelduvegur 17a og 17b.

    Ölkelduvegur 19, sem er skráð 868 fm í fasteignaskrá, mun vera felld út úr fasteignaskrá eftir að úr henni hafa verið teknir 250 fm sem sameinast lóð Ölkelduvegar 17. Við niðurfellingu lóðarinnar renna þeir 618 fm sem eftir standa inn í upprunaland hennar, Grafarland, L190037, sem stækkar sem því nemur úr 40.553 fm í 41.171 fm.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Ölkelduvegar 17a og 17b með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.
  • Með merkjalýsingu þessari er heiti lóðar breytt úr Nesvegi 6 6-8 í Nesveg 6. Lóðin Nesvegur 6 er stækkuð, en hún er skráð 800 fm í fasteignaskrá.

    Stærð lóðar verður eftir uppmælingu og aðlögun að innviðum 1269,7 fm.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Nesvegar 6 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.
  • Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 5 minnkuð úr 701 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 649 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.

    Minnkun lóðarinnar, 52 fm, rennur saman við upprunalandið,
    Hellnafell, L136614 og F2114669 sem stækkar sem því nemur.

    Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 7 minnkuð úr 652 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 624 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.

    Minnkun lóðarinnar, 28 fm, rennur saman við upprunalandið,
    Hellnafell, L136614 og F2114669, sem stækkar sem því nemur.

    Hellnafell er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Fellasneiðar 5 og 7 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.
  • Sótt hefur verið um lóðirnar við Fellabrekku 7-13. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að úthluta Thor Magnússyni, ásamt Vélsmiðju Grundarfjarðar, lóðum að Fellabrekku 7-13 sbr. gr. 1.2. um samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði. Sbr. gr. 3.3. í samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði, skulu framkvæmdir hafnar innan sex mánaða frá úthlutun lóðar.
  • Borist hefur erindi frá Ungmennafélaginu um að skoða afmörkun landnotkunar ÍÞ-4 á skíðasvæðinu til samræmis við fyrirhugaða uppbyggingu. Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála bendir enn fremur á að skoða þurfi afmörkun á tjaldsvæði AF-2 og íþróttasvæði ÍÞ-5 í aðalskipulagi.
    Einnig hefur verið umræða um hvort eigi að deiliskipuleggja þetta svæði ásamt hluta af upplandinu sem helst í hendur við Upplandsverkefni Icewater.

    Nýleg skýrsla frá COWI um ofanvatn á þessu svæði gefur einnig tilefni fyrir heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið upp á gatnagerð, aðkomu og fleira.

    Á sama tíma er verið að vinna að merkjalýsingu fyrir skíðasvæðið og nýtt aðstöðuhús en þar þarf að tilgreina skv. Byggingareglugerð:
    Aðkomu og bílastæði
    Snjómokstur og þjónustu (snúningsrými, aðkomu björgunaraðila)
    Brunavarnir (fjarlægðir og aðgengi slökkviliðs)
    Fráveitu/vatnsmál (rotþró ef við á)
    Útisvæði / notkun í kringum hús (t.d. gestir, búnaður o.fl.)

    Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála leggur fram fyrirspurn til nefndarinnar um framtíðarhorfur fyrir þetta svæði.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Málið lagt fram og verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála er þakkað fyrir góða kynningu. Góðar umræður voru um málið.
  • Farið yfir nokkur skipulags-og framkvæmdaleyfisverkefni. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Formaður og skipulagsfulltrúi kynntu ýmis mál sem eru í undirbúningi.
  • Borist hefur fjöldi tilnefninga. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar fjölda tilnefninga og mun vinna úr þeim. Niðurstöður verða kunngjörðar á degi íslenskrar náttúru þann 16. september nk.
  • Takið daginn frá þann 16. september nk. kl. 10:00!

    Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag á leikskólalóðinni.

    Þetta er sambærilegt verkefni og var á grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.

    Sá viðburður heppnaðist svo vel að stefnt er á að gera þetta að árlegum viðburði, "Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru".

    Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnti málið. Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar verkefninu og er sammála um að þetta verði árlegur viðburður. Verkefnisstjóra falið að vinna málið áfram.

10.Hafnarstjórn - 1

Málsnúmer 2608003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 1. fundar hafnarstjórnar.

11.Menningarnefnd - 55

Málsnúmer 2608004FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 55. fundar menningarnefndar.

  • Erindisbréf menningarnefndar lagt fram. Menningarnefnd - 55 Erindisbréf nefndarinnar var kynnt fyrir fundarmönnum.

    Menningarnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Rakel Birgisdóttir og varaformaður nefndarinnar verði Ágústa Einarsdóttir Jafnframt var samþykkt að forstöðumaður menningar- og markaðsmála verði ritari nefndar.

    Nýr formaður tók við stjórn fundarins.

  • Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram. Menningarnefnd - 55 Siðareglur kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
  • 11.3 2606016 Fundartími nefnda
    Ákvörðun um reglulegan fundartíma og fundardaga nefndar. Menningarnefnd - 55 Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar á sex vikna fresti. Fundartími er mánudagar kl. 16:15.
  • Yfirferð yfir verkefni menningarnefndar kjörtímabilið 2026-2030. Menningarnefnd - 55 Rætt var um föst verkefni menningarnefndar ásamt því að fara yfir komandi viðburði.

    Umræða um verkefnið Vinir bókasafnsins.

    Umræða um undirbúning fyrir jóladagskrá 2026.

    Umræða um 17. júní.
  • 11.5 2608015 Rökkurdagar 2026
    Umræða um Rökkurdaga 2026 Menningarnefnd - 55 Stefnt er að því að Rökkurdagar verði haldnir á tímabilinu 24. október - 7. nóvember

    Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnti fyrir nefndinni þá viðburði sem nú þegar eru í undirbúningi.

    Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að setja út auglýsingu fyrir viðburði á Rökkurdögum.
  • 11.6 2608020 Kvikmyndaklúbbur
    Forstöðumaður menningar- og markaðsmála segir frá fundi sem hann átti með áhugasömum aðilum um stofnun kvikmyndaklúbbs.

    Hugmyndin er sú að hér sé starfræktur kvikmyndaklúbbur, sem er opinn öllum. Áherslan er heildræn nálgun á kvikmyndir, allt frá hugmynd að fullbúinni kvikmynd.
    Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd fagnar þessu frumkvæði og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða til fundar með þessum aðilum.
  • Samtal hefur átt sér stað milli franska sendiráðsins og Grundarfjarðarbæjar um að halda franska kvikmyndahátíð. Staða verkefnisins kynnt fyrir menningarnefnd. Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd tekur vel í þá hugmynd að halda franska kvikmyndahátíð í Grundarfirði og leggur til að hún verði haldin um miðjan febrúar.

    Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að halda áfram með verkefnið.
  • Barnamenningarhátíðin Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október 2026.
    Menningarnefnd - 55 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnir Barnó fyrir nefndinni.
  • Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgansröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanir. Menningarnefnd - 55 Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.
  • 11.10 2607027 Gróðursetningardagur
    Takið daginn frá!

    Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag í leiksklólalóðinni.

    Þetta er sambærilegt verkefni og við vorum með í grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.

    Sá viðburður heppnaðist svo vel að við stefnum nú á að gera þetta að árlegum viðburði, ?Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru?.

    Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
    Menningarnefnd - 55 Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.
  • Fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd þakkar Rut fyrir erindið. Menningarnefnd telur að núverandi fyrirkomulag geti aftrað því að viðburðir séu haldnir í Samkomuhúsinu. Algengt er að viðburðahaldarar taki ágóða í hurð og á bar til þess að standa undir viðburðarhaldi. Menningarnefnd lýsir yfir áhuga á því að prófa að breyta til í fyrirfram ákveðinn tíma, t.d. tvö ár. Bókun fundar Bæjarstjórn tekur undir bókun menningarnefndar. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og koma með drög að reglum og gjaldskrá til staðfestingar í bæjarráði.

    Samþykkt samhljóða.
  • Erindi frá Gerum það núna ehf. um það hvernig hægt sé að nýta sögu Grundarfjarðarbæjar betur til uppbyggingar samfélagsins og ferðaþjónustu. Menningarnefnd - 55 Menningarnefnd þakkar Gerum það núna ehf. fyrir erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða Gerum það núna ehf. til þess að ræða hvernig við getum lyft sögunni okkar á hærra plan.

12.Barnaverndarþjónusta Vesturlands - Nýr samningur og kynning

Málsnúmer 2403034Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki aðildarsveitarfélaga FSS við samning um Barnaverndarþjónustu Vesturlands og fleiri gögn, þ.á.m. minnisblað bæjarstjóra.



Lagt til að bæjarstjórn samþykki aðild Grundarfjarðarbæjar að Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt fyrirliggjandi viðauka við samning um barnaverndarþjónustu og feli bæjarstjóra að undirrita viðaukann fyrir hönd sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn samþykkir aðild Grundarfjarðarbæjar að Barnaverndarþjónustu Vesturlands og felur bæjarstjóra að undirrita viðaukann.

Samþykkt samhljóða.

13.FSS - Farsældarráð Vesturlands

Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur FSS vegna skipunar eins fulltrúa og annars til vara í Farsældarráð Vesturlands. Hvert sveitarfélag á Vesturlandi skipar einn fulltrúa í ráðið og annan til vara.

Lagt til að Þuríður Gía Jóhannesdóttir verði aðalfulltrúi og Ágústa Einarsdóttir til vara í Farsældarráði Vesturlands.

Samþykkt samhljóða.

14.FSS - Velferðarnefnd sveitarfélaga

Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur FSS vegna skipunar tveggja fulltrúa og tveggja til vara í Velferðarnefnd FSS. Velferðarnefnd kemur í staðinn fyrir félagsmálanefnd.

Bæjarstjóra falið í samráði við oddvita B- og D-lista að tilnefna fulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

15.SSV - skammtímadvöl í Holti

Málsnúmer 2608022Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra ásamt fleiri minnisblöðum um sameiginlega skammtímadvöl í Holti fyrir börn og ungmenni á Vesturlandi með stuðningsþarfir og áætlaða kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaganna á Vesturlandi. Áætlaður kostnaður Grundarfjarðarbæjar er 4.642.366 kr. árið 2027.

Bæjarstjórn samþykkir þátttöku Grundarfjarðarbæjar um sameiginlega skammtímadvöl barna og ungmenna með stuðningsþarfir í Holti á Vesturlandi.

Samþykkt samhljóða.

16.Kosning í nefndir skv. D lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2606026Vakta málsnúmer

Tilnefning fulltrúa í Heilbrigðisnefnd Vesturlands, eins aðalfulltrúa og annars til vara.

Lagt til að Ágústa Einarsdóttir verði aðalfulltrúi og Bjarni Sigurbjörnsson til vara í Heilbrigðisnefnd Vesturlands.

17.Fifa Arena verkefni Fifa og KSÍ

Málsnúmer 2608014Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá UMFG þar sem óskað er eftir samstarfi um umsókn í FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ vegna mögulegrar uppbyggingar sparkvallar í Grundarfirði. Jafnframt lagt fram minnisblað bæjarstjóra.



FIFA Arena er verkefni á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Markmið þess er að bæta aðstöðu barna og ungmenna til knattspyrnuiðkunar, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu er ábótavant. Um er að ræða FIFA-vottaðan sparkvöll sem er 20 x 40 metrar að stærð. Völlurinn hentar meðal annars til æfinga, skólaíþrótta, minni leikja og frjálsrar hreyfingar barna og ungmenna. Umsóknarfrestur er til 18. september 2026.



Verkefnið felur í sér áhugavert tækifæri til að bæta aðstöðu barna og ungmenna til íþróttaiðkunar í Grundarfirði með verulegu framlagi frá FIFA og KSÍ. Völlurinn gæti nýst skólastarfi, skipulögðu íþróttastarfi og frjálsri hreyfingu.



Óskað er eftir því við bæjarstjórn að hún veiti bæjarstjóra heimild til að vinna að og senda inn umsókn í FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ í samstarfi við Ungmennafélag Grundarfjarðar. Verði umsókn samþykkt verði nánari útfærsla verkefnisins, kostnaður og kostnaðarskipting lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu áður en framkvæmdir hefjast.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir málið og hugmynd að staðsetningu.

Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra heimild í samvinnu við UMFG að leggja inn umsókn í FIFA Arena verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 14:52

18.Fjölgun á vakt í íþróttamiðstöð

Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi íþrótta- og tómstundafulltrúa með tillögu að breytingum á mönnun og vaktafyrirkomulagi í íþróttamiðstöð, ásamt samanburði á kostnaði við núverandi kerfi, vaktafyrirkomulagi og aukinnar mönnunar yfir vetrarmánuðina.



Lögð fram tillaga um breytingar á starfsmannafjölda á vöktum yfir vetrartímann í íþróttamiðstöðinni. Kostnaðarauki við breytingarnar nema 9,5-18,5 millj. kr. á ári.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir erindinu.

Íþrótta- og tómstundafulltrúa var þakkað fyrir.

Bæjarstjórn vísar málinu til frekari skoðunar og afgreiðslu í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 15:05

19.Íþróttahús - utanhússviðgerðir, klæðning o.fl.

Málsnúmer 2605017Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og verkefnastjóra tæknimála og framkvæmda vegna endurnýjunar á þaki íþróttahúss. Ástand þakjárns er lakara en gert var ráð fyrir og því er lagt til að því verði skipt út, sem þykir hagkvæmara til lengri tíma litið.



Lagt til að bæjarstjórn vísi fjármögnun framkvæmdarinnar til úrvinnslu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027. Reynist þörf á viðbótarfjárheimild á árinu 2026 verði lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

20.Slökkvilið Grundarfjarðar - Erindi slökkviliðsstjóra um undirbúning bifreiðakaupa

Málsnúmer 2602025Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra um þarfagreiningu, valkosti og undirbúning á kaupum á slökkvibifreið.



Lagt til að bæjarstjórn skipi fjögurra manna starfshóp, skipaðan tveimur fulltrúum bæjarstjórnar, bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra og feli honum að vinna þarfagreiningu og undirbúa kaup á slökkvibifreið. Starfshópurinn skili tillögu til bæjarstjórnar.

Lagt til að fulltrúar í starfshópnum verði Signý Gunnarsdóttir og Davíð Magnússon, ásamt bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra.

Samþykkt samhljóða.

21.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609002Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga með forsendum fyrir fjárhagsáætlun 2027-2030, ásamt tillögu að tímaáætlun funda bæjarráðs og bæjarstjórnar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027-2030.

Farið yfir minnisblað með forsendum og tímaáætlun funda, sem var samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

22.Vélsmiðja Grundarfjarðar - Nesvegur 4

Málsnúmer 2609005Vakta málsnúmer

Lagðir fram tveir tölvupóstar frá Vélsmiðju Grundarfjarðar vegna Nesvegar 4.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

23.Grundarfjarðarhöfn - Nesvegur 4, eigendastefna

Málsnúmer 2608011Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að stofna starfshóp um eigendastefnu fyrir Nesveg 4.

Til máls tóku FÞÞ, BJJ, BS, SGG, SG og ÞGJ.

Lagt til að Fannar Þór Þorfinnsson, Aðalsteinn Jósepsson, Arnar Kristjánsson og Ágústa Einarsdóttir verði í starfshópnum.

Samþykkt samhljóða.

24.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Dagskrárliður að beiðni D-listans. Umræður um stöðu deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar.

Til máls tóku FÞÞ, BS og ÞGJ.

Bókun D-lista:

Óskað er eftir upplýsingum um stöðu þessa máls. Þann 26. mars sl. samþykktu skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn verulega breytta og í raun endurgerða tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, sem var svo staðfest af bæjarstjórn 9. apríl og samþykkt að auglýsa hana.

Breytingar á tillögunni voru gerðar í þeim tilgangi að koma á móts við sjónarmið íbúa í nágrenni svæðisins. Eins og við þekkjum, þá var hinsvegar beðið með að auglýsa deiliskipulagið þar sem stutt var til kosninga.

Á bæjarstjórnarfundi 11. júní sl. óskuðum við á D-listanum eftir afstöðu nýrrar bæjarstjórnar til málsins. Við lögðum til að deiliskipulagstillagan færi strax í auglýsingu, þannig að íbúar og hagsmunaaðilar gætu farið að kynna sér þessa breyttu tillögu.

Okkar tillaga var felld af meirihlutanum sem samþykkti að fresta málinu og að nýkjörnir fulltrúar fengju ítarlega kynningu á deiliskipulagstillögunni.

Þær kynningar voru síðan haldnar, tvær frekar en ein, þar sem farið var mjög vel yfir málið með fulltrúum í hafnarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn.

Nú eru liðnir þrír mánuðir frá þessum bæjarstjórnarfundi og málið hefur ekki verið tekið fyrir í skipulagsnefnd eða bæjarráði. Þess vegna óskar D-listinn eftir því að málið yrði sett á dagskrá í dag. Óskað er eftir upplýsingum um hvar málið er statt og hvernig nýi meirihlutinn ætlar sér að halda á þessu máli.

Þetta mál var vel unnið og samhljóða samþykkt í nefndum og ráðum bæjarins. Málið er mjög mikilvægt fyrir starfsemi hafnarinnar okkar og atvinnuþróun í sveitarfélaginu, eins og kemur t.d. skýrt fram í minnisblaði nýs bæjarstjóra um raforkumál sem lögð var fyrir síðasta bæjarráðsfund.

Fundarhlé var gert kl. 16:20. Fundi framhaldið kl. 16:42.

Bókun B-lista:

Fulltrúar B-lista upplýsti á fundinum að vinna við deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar sé í gangi. Á fundinum gerði formaður skipulags- og umhverfisnefndar grein fyrir stöðu málsins og þeim atriðum sem unnið er að.

Eftir að ný bæjarstjórn tók til starfa var ákveðið að gefa nýkjörnum fulltrúum ítarlega kynningu á deiliskipulagstillögunni, enda um umfangsmikið og mikilvægt mál að ræða.

Slíkar kynningar hafa nú farið fram með fulltrúum í hafnarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn. Málið er því ekki lagt til hliðar heldur er það í áframhaldandi vinnslu. Þegar þeirri vinnu lýkur verður málið tekið til formlegrar afgreiðslu í viðeigandi nefnd og ráðum sveitarfélagsins og í framhaldinu komið áfram í lögbundið ferli.

Fulltrúar B-lista leggur áherslu á að málið verði unnið með hagsmuni hafnarinnar, atvinnuþróunar í sveitarfélaginu og íbúa að leiðarljósi og að sjónarmið sem fram hafa komið í ferlinu verði metin áður en næstu skref eru tekin.

25.Útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit

Málsnúmer 2504009Vakta málsnúmer

Dagskrárliður að beiðni D-listans. Umræður um málefni miðbæjarreits.

Til máls tóku FÞÞ, SGG og BJJ.

Bókun D-listans:

Á síðasta kjörtímabili var unnið að ýmsum hugmyndum um framtíðarskipan húsnæðismála sveitarfélagsins, m.a. í tengslum við grundvallandi vinnu að uppbyggingu á miðbæjarreit. Fulltrúi D-listans telur rétt að taka þann þráð upp að nýju, með það að markmiði að styðja við uppbyggingu og þjónustu í Grundarfirði og jafnframt til að nýta eignir sveitarfélagsins betur og bæta aðstöðu fyrir starfsemi þess.

Talsverð vinna hefur þegar farið fram vegna miðbæjarreitsins og vísast um það til bókana í skipulags- og umhverfisnefnd, bæjarráði og bæjarstjórn á fyrri hluta árs 2025.

Í samræmi við markmið í aðalskipulagi skilgreindu bæjarstjórn og skipulags- og umhverfisnefnd skýrar forsendur fyrir uppbyggingu á reitnum. Fyrir liggja skipulagsheimildir sem gera ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis fyrir miðbæjarþjónustu, með blandaðri atvinnu- og íbúðabyggð.
Við þá vinnu var lögð áhersla á að á jarðhæð yrði verslun og þjónusta og þannig stuðlað að auknu lífi og starfsemi í miðbænum; hjarta bæjarins og ekkí síst fyrir íbúa bæjarins.

Lagt er til að auglýsa miðbæjarreit að nýju og í samhengi við það, að kanna hvort vilji sé fyrir því hjá bæjarstjórn að taka hluta framtíðarbyggingar á leigu. Slík ákvörðun getur styrkt enn frekar forsendur verkefnisins og aukið áhuga byggingaraðila. Slíkt húsnæði gæti eftir atvikum nýst fyrir starfsemi bæjarskrifstofu eða aðra starfsemi sveitarfélagsins.

Samhliða verði skoðaðar forsendur þess að selja núverandi húsnæði bæjarskrifstofu og slökkvistöðvar að Borgarbraut 16, skrifstofuhúsnæði við Grundargötu 30 og mögulega húsnæði áhaldahúss að Nesvegi 19.

Jafnframt verði hafðar í huga þarfir Björgunarsveitar, en húsnæði hennar er skv. aðalskipulagi víkjandi vegna framtíðaráforma um uppbyggingu þjónustu fremst á Framnesi, eins og undirstrikað var með aðalskipulagsbreytingu 2023.

Á móti verði kannaður sá kostur að byggja hentugt iðnaðarhúsnæði á lóð sem í deiliskipulagstillögu heitir Íshúsgata 16 og er við hlið fiskvinnslu SC hf. Lóðin var tekin frá fyrir "björgunarmiðstöð" eins og samþykkt var samhljóða í bæjarráði, hafnarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd og svo bæjarstjórn í febrúar og mars sl.

Þar verði horft til þess að húsnæðið geti rúmað þá starfsemi sem nú er í slökkvistöð og áhaldahúsi, og eftir atvikum aðra starfsemi. Mikilvægt er að okkar mati að horfa til hagkvæmrar nýtingar byggingarreitsins í heild og kanna hvort rétt sé að nýta þá uppbyggingarmöguleika sem lóðin býður upp á til fulls.

Jafnframt verði kannaður áhugi lögreglunnar á Vesturlandi á því að fá aðstöðu í slíku húsi og hvort unnt sé að taka mið af þörfum lögreglunnar við frekari útfærslu þess.

Þar sem skipulagsvinna vegna þeirra lóða sem um ræðir er þegar langt komin, og fyrir liggja samþykktir um að viðkomandi lóð sé tekin frá fyrir þessi not, þá ætti að vera unnt að kanna þessa kosti og móta tillögur um framhaldið á tiltölulega skömmum tíma.

Tillaga til afgreiðslu:
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að fela bæjarstjóra og bæjarráði, í samráði við ráðgjafa sveitarfélagsins, að vinna framangreindar hugmyndir áfram og leggja fyrir bæjarstjórn tillögur um næstu skref ásamt mati á fjárhagslegum og rekstrarlegum áhrifum hvað varðar þann þátt sem snýr að fasteignum bæjarsjóðs.

Bókun B-lista:

Við fögnum öllum hugmyndum til uppbyggingar í Grundarfirði og leggjum til að málinu verði vísað til umfjöllunar og vinnufundar bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

26.Uppbygging íbúðasvæðis á svæði ÍB6

Málsnúmer 2607021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar yfirlit um mögulega uppbyggingu á svæði ÍB6 í Grundarfirði.

Til máls tóku FÞÞ og DM.

27.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga:



Fundargerð 1000. fundar sem haldinn var 9. júní sl.

Fundargerð 1001. fundar sem haldinn var 28. ágúst sl.

28.Jeratún - fundargerðir stjórnar- og hluthafafunda og ársreikningur 2025

Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerð 73. fundar stjórnar Jeratúns ehf. og fundargerð hluthafafundar, sem báðir voru haldnir 25. ágúst sl., ásamt ársreikningi fyrir árið 2025.

29.Náttúruhamfaratrygging Íslands - Minnt á ákvæði 16. gr. laga nr. 55/1992

Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Náttúruhamfaratrygginga Íslands, dags. 27. ágúst sl. um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum og áhrif laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar byggt er á svæðum þar sem náttúruvá er fyrirfram þekkt.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:17.