315. fundur 15. október 2026 kl. 14:00 - 15:55 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ) forseti bæjarstjórnar
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og lagði til að tekinn yrði með afbrigðum inn á dagskrá fundarins dagskrárliðurinn JAE ehf. - Baðlónsverkefni - samningur sem yrði nr. 15 á dagskrá. Aðrir liðir færast aftur sem því nemur.

Samþykkt samhljóða.

Gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra 2026-2030

Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína. Það helsta sem hann fór yfir var um baðlónsverkefnið, hitaveitumál, ÍB6 svæðið, fund sem hann átti með Guðrúnu Magneu um Earth Check verkefnið, nýjar ráðningar starfsfólks, fundi um eigendastefnu Nesvegar 4, fundi starfshóps um kaup á slökkvibifreið, fjármál og fjárfestingar, Háubakkaverkefnið og deiliskipulag hafnarinnar.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2026-2030

Málsnúmer 2606002Vakta málsnúmer

Forseti ræddi nýafstaðna fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og haustþing SSV.

3.Bæjarráð - 660

Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 660. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu. Bæjarráð - 660
  • 3.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2026.
    Bæjarráð - 660 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 12,3% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lagt fram sex manaða rekstraruppgjör fyrir janúar-júní 2026.
    Bæjarráð - 660 Afkoma reksturs fyrstu sex mánuði ársins er 17,1 millj. kr. lakari en áætlun gerði ráð fyrir vegna hærri fjármagnsgjalda.
  • 3.4 2605014 Launaáætlun 2026
    Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-ágúst 2026.
    Bæjarráð - 660 Raunlaun eru yfir áætlun ársins.
  • Lagt fram yfirlit yfir ógreiddar viðskiptakröfur 30.06.2026.
    Bæjarráð - 660 Farið yfir lista yfir ógreiddar viðskiptakröfur 30.06.2026.
  • Ákvörðun um álagningarprósentu útsvars 2027.
    Bæjarráð - 660 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2027, sundurliðuð niður á álagningarflokka.
    Bæjarráð - 660 Bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2027 kynnt. Farið yfir forsendur og breytingu milli ára. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
  • 3.8 2609014 Gjaldskrár 2027
    Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga 2026.
    Bæjarráð - 660 Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð og rætt um breytingar á þeim. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
  • Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 ásamt forsenduspá.
    Bæjarráð - 660 Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og uppfærða fundadagskrá bæjarráðs.
  • Lagt fram erindi íþrótta- og tómstundafulltrúa með tillögu að breytingum á mönnun og vaktafyrirkomulagi í íþróttamiðstöð, ásamt samanburði á kostnaði við núverandi kerfi, vaktafyrirkomulagi og aukinnar mönnunar yfir vetrarmánuðina. Lagðar fram nokkrar tillögur um breytingar á starfsmannafjölda á vöktum yfir vetrartímann í íþróttamiðstöðinni. Kostnaðarauki við breytingarnar nema 8,3-18,5 millj. kr. á ári.

    Bæjarstjórn vísaði málinu til umfjöllunar í bæjarráði.
    Bæjarráð - 660 Bæjarráð samþykkir tillögu um óbreytt fyrirkomulag starfsmannahalds fram að áramótum og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram tillögur vegna næsta árs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagðar fram nýjar innkaupareglur Grundarfjarðarbæjar sem bæjarstjórn vísaði til afgreiðslu í bæjarráði, ásamt minnisblaði bæjarstjóra.

    Lagt til að bæjarráð feli bæjarstjóra að vinna tillögu að endurskoðuðum innkaupareglum Grundarfjarðarbæjar og leggja fyrir bæjarráð og síðar bæjarstjórn til afgreiðslu.

    Á meðan sú vinna stendur yfir er lagt til að fjárhæðarmörk samkvæmt 8. gr. innkaupareglna verði uppfærð til samræmis við gildandi viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt lögum og reglugerðum um opinber innkaup.
    Bæjarráð - 660 Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram umsókn um íbúð fyrir eldri borgara, nr. 101 að Hrannarstíg 18.
    Bæjarráð - 660 Bæjarráð samþykkir að úthluta íbúðinni til Ingu Björnsdóttur og felur skrifstofustjóra að ganga frá samningum.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram til kynningar bréf FSN um skólaakstur á vorönn 2026 ásamt reikningi. Kostnaðarhlutur Grundarfjarðarbæjar er 2.822.226 kr.
    Bæjarráð - 660
  • Lagt fram til kynningar rekstraruppgjör Blakdeildar UMFG Mlf. kvenna fyrir tímabilið 2024-2025.
    Bæjarráð - 660

4.Menningarnefnd - 56

Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer

Til máls tóku FÞÞ, ÁE, BJJ, ÞGJ og JÓK.

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 56. fundar menningarnefndar.
  • Umræður um noktun í Sögumiðstöðinni ásamt annari umræðu. Menningarnefnd - 56 Rætt var um það hvernig hægt er að gera Sögumiðstöðina notendavænni til framtíðar. Mikill áhugi hefur verið undanfarið að nýta húsið fyrir viðburði og klúbbastarf. Menningarnefnd stefnir að því að fara í heildarendurskoðun á skipulagi Sögumiðstöðvarinnar með það að leiðarljósi hvernig hún geti þjónað samfélaginu öllu. Eins felur Menningarnefnd forstöðumanni menningar- og markaðsmála að endurskoða og einfalda gjaldskrár fyrir Sögumiðstöð og Samkomuhús.
  • 4.2 2608015 Rökkurdagar 2026
    Nefndinni barst erindi frá aðstandendum Krakka Rökkur Rokk.

    Einnig barst nefndinni fyrirspurn um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið.

    Síðan er áhugi fyrir því að halda sögukvöld og listasýningu.
    Menningarnefnd - 56 Menningarnefnd tekur vel í styrkbeiðni Krakka Rökkur Rokk og er það samþykkt samhljóða að styrkja verkefnið um 100.000 kr. Styrkurinn verður tekinn af því fjármagni sem búið var að úthluta til Rökkurdaga í ár.
    Menningarnefnd ákveður einnig að breyta dagsetningum fyrir Rökkurdaga og hafa þá frá 5. október og út október.
    Menningarnefnd barst erindi um söngnámskeið og beatbox/rappnámskeið. Nefndin tekur vel í erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að vinna málið áfram.
    Einnig hafa borist erindi um sögukvöld og listasýningu.

    Menningarnefnd fagnar því hvað samfélagið hefur tekið vel í Rökkurdaga og er tilbúið að taka þátt með viðburðum og uppákomum.

    Menningarnefnd vill einnig koma á framfæri þökkum til samfélagsins. Áhugi á því að halda viðburði á Rökkurdögum hafa farið fram úr björtustu vonum. Til þess að halda menningarhátíð sem þessa þarf aðstoð frá samfélaginu og það er greinilegt að það er mikill áhugi.
  • 4.3 2608020 Kvikmyndaklúbbur
    Kvikmyndaklúbbur Grundarfjarðar var formlega stofnaður miðvikudaginn 16. Góð mæting var á fundinn og ljóst að áhugi fyrir kvikmyndaklúbb er mikill.
    Menningarnefnd - 56 Menningarnefnd fagnar þessu framtaki og hvetur fólk sem sem hefur áhuga á kvikmyndum að kíkja á fund. Eins hvetur menningarnefnd þá sem eru með hugmynd að spennandi hlutum til að gera að setja sig í samband við forstöðumann menningar- og markaðsmála.
  • Barnamenningarhátíð Vesturlands - Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október. Menningarnefnd - 56 Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir þá viðburði sem verða í október á vegum Barnamenningarhátíðar Vesturlands - Barnó Best Mest Vest. Dagskráin verður fjölbreytt og spennandi og verða bæði viðburðir á vegum íbúa Grundarfjarðar á dagskrá ásamt öðrum viðburðum.
  • Opnað var fyrir umsóknir í ppbyggingarsjóð Vesturlands 16. september sl. og er umsóknarfrestur til 21. október.

    Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunaraverkefni á Vesturlandi.
    Menningarnefnd - 56
  • 4.6 2510017 OP-5 Upplandið
    Bæjarstjórn samþykkti í október 2025 tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu. Óskað er eftir að menningarnefnd tilnefni einn fulltrúa í samráðshópinn og einn varamann. Menningarnefnd - 56 Menningarnefnd tilnefndir Sigurborgu Knarran Ólafsdóttur sem fulltrúa menningarnefndar í samráðshópinn, jafnframt tilnefnir nefndin Ágústu Einarsdóttur sem varamann í samráðshópinn.

5.Skipulags- og umhverfisnefnd - 282

Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 282. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Landeigandi sækir um byggingarleyfi fyrir 240 m2 geymslu á einni hæð. Hæð byggingar er 6,33 m. Byggingarfulltrúi vísar málinu til nefndarinnar af 14. afgreiðslufundi sínum þar sem ekki er í gildi deiliskipulag. Bygging er fyrirhuguð á efnistökusvæði E-8, en efnistöku er lokið á þeim hluta námunnar. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Skipulags og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir ISAVIA, Naustáll flugvelli, Samgöngustofu, Naustál 1, 6, 7 og 8, Þórdísarstöðum, Akurtröðum, Lækjarhvammi 1, Norður Hlíð, Mið Hlíð og Suður Hlíð. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar ÞGJ vék af fundi undir þessum lið.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

    ÞGJ tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Lóðarhafi sækir um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílsskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Byggingarfulltrúi vísar málinu til skipulagsfulltrúa af 13. afgreiðslufundi sínum þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag. Fagurhólstún 7 er innan svæðis ÍB-2 samkvæmt aðalskipulagi. Samkvæmt skipulagsákvæði svæðis ÍB-2 er heimilt að leyfa breytingar á núverandi húsnæði og nýbyggingar (endurbyggingar) sem falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Fagurhól 4, 6, 6a, 8, 8a og Fagurhólstún 5, 9, 10, 12 og 14. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Óskað er eftir framkvæmdaleyfi 2. áfanga við Kirkjufellsfoss. Um er að ræða annars vegar endurbætur á stígnum frá nýju útsýnispöllunum og niður með ánni að austanverðu með þrepuðum stíg gerður úr náttúrugrjóti og hins vegar nýr steyptur stígur frá aðkomutorgi við bílastæði að gömlu brúnni sem mun tryggja gott aðgengi allra að efsta útsýnispallinum. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið og þar segir að lega göngustíga sé leiðbeinandi en lega þeirra getur breyst á hönnunar- og framkvæmdastigi. Enn kemur fram að efnisnotkun skuli taka mið af nærumhverfinu og falla sem best að staðnum og ekki sé gert ráð fyrir lýsingu á göngustíg. Gert er ráð fyrir dökkri steypu með grófkústuðu yfirborði í göngustíg frá aðkomutorgi við bílastæði og að gömlu brúnni. Þrepaður stígur meðfram ánni að austanverðu verður gerður úr náttúrugrjóti. Framkvæmdaleyfisumsókn samræmist deiliskipulagi. Framkvæmd er í fullu samráði við landeigendur. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar öll gögn málsins liggja fyrir sbr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, samþykki landeigenda og framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Óveruleg breyting deiliskipulags Ölkeldudals öðlaðist gildi með auglýsingu sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 19. ágúst 2026 og varðar að gerð er breyting á fjórum reitum í skilmálatöflu í kafla 6.11 á bls. 41 í deiliskipulagsgreinargerðinni, sem er undirkafli kafla 6, Skilmálar á lóðum. Lýsing á Ölkelduvegi 18 og 29 breytist úr parhúsi í raðhús. Breytingin fyrir Ölkelduveg 41 varðar hámarks byggingarmagn fyrir annars vegar sérbýli og hins vegar raðhús við lóðina. Eftir breytinguna er skráð hámarksbyggingarmagn sérbýla 220 m² en hámarksbyggingarmagn fyrir raðhús 180 m². Engar breytingar eru gerðar á uppdrætti deiliskipulagsins, þar eru tölur rétt skráðar og gerðir húsa sýndar rétt. Aðeins er verið að leiðrétta samræmi milli uppdráttar og greinargerðar. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Auglýsing lögð fram og kynnt.
  • Óskað er eftir breytingu deiliskipulags Mýrarhúsa. Deiliskipulagið er innan frístundabyggðasvæðið F1 skv. aðalskipulagi. Breytingin felur í sér að ný frístundalóð merkt 7 er skilgreind á milli lóða 1 og 4. Lóðin er 1.050 m2 að stærð og innan byggingarreits verði heimilt að reisa allt að 95 m2 frístundahús og hámarkshæð húss verði 5 m. Samanber gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m. Fyrirhuguð bygging er rúmum 30 m frá Lárvaðli. Bakki Lárvaðals er hár á þessu svæði og ekki er beint aðgengi að fjörunni frá lóðum. Séð úr fjörunni verður húsin upp á bakkanum lítt áberandi vegna hæðarmunarins. Staðsetning hússins mun því ekki hafa áhrif á för fólks meðfram vaðlinum. Sækja þarf um undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra frá ofangreindri grein skipulagsreglugerðar þegar samþykkt breyting liggur fyrir og að fenginni jákvæðri umsögn Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnunar HMS. Svæðið er utan svæðis á náttúrminjaskrá og innan svæðis er ekki um að ræða náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Samkvæmt Fornleifaskrá Grundarfjarðarbæjar er einn minjastaður (nr. 290) suðvestan svæðisins sem breytingin tekur til og hefur hann talsvert minjagildi. Friðhelgað svæði umhverfis minjarnar er 15 m skv. 22 gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum nærri minjum. Fyrir liggur lóðaleigusamningur fyrir lóð nr. 7 við landeigendur landeignar L136648. Samþykki annarra landeigenda liggur ekki fyrir. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á þau rök sem lögð eru fram gagnvart fyrirhugaðri staðsetningu húss við Lárvaðal og að óskað verði eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á þeim forsendum þegar samþykkt breyting liggur fyrir. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu deiliskipulags sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til auglýsingar og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd kom saman til vinnufundar þann 15.9.2026. Sólveig Ásta Bergvinsdóttir lýsti sig vanhæfa. Bjarni Sigurbjörnsson gat ekki mætt en gerði grein fyrir sínu vali. Mættir á fundinn voru Þuríður Gía Jóhannesdóttir, formaður nefndarinnar, Hrafnhildur Bárðardóttir og Eiríkur Þór Halldórsson, varamaður í stað Signýjar Gunnarsdóttur. Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Það var samdóma álit nefndarinnar að Fossahlíð 6 fengi umhverfisviðurkenningu fyrir heimili ársins. Við valið var horft til snyrtileika lóðar, umhirðu húsnæðis og þess metnaðar sem einkennir allt umhverfið. Hjónin Jón Snorrason og Selma Friðfinnsdóttir lögðu um áratugaskeið mikla rækt við hús og lóð og byggðu upp einstaklega fallegan garð sem ber glöggt vitni um alúð, natni og ómælda vinnu. Garðurinn hefur þróast og dafnað í gegnum árin og er í dag sannkölluð prýði fyrir hverfið og bæinn allan.
    Að baki þessu fallega umhverfi liggur gríðarleg vinna sem staðið hefur yfir um árabil. Með þrautseigju, umhyggju og ást á staðnum hafa þau skapað heild sem vekur athygli fyrir fegurð, snyrtimennsku og þann metnað sem lagðir hefur verið í hvert smáatriði.
    Grundarfjarðarbær þakkar fyrir það framlag til fegrunar og bættu umhverfi sem þar hefur verið sýnt í verki til margra ára og minnir um leið á það dýrmæta starf sem hjónin unnu saman að uppbyggingu þessa fallega heimilis.
    Enn fremur var það samdóma álit nefndarinnar að veita Bjargarsteini umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Prýði atvinnulífsins 2026.
    Um árabil var þar rekið eitt þekktasta og virtasta veitingahús landsins sem margir bæjarbúar og gestir minnast með hlýju. Í dag er í húsinu rekin gistiþjónusta, en sá metnaður sem einkennt hefur staðinn frá upphafi er enn til staðar.
    Húsnæðið og umhverfi þess bera vott um einstaklega góða umhirðu og natni. Eigendur hafa lagt mikla vinnu í viðhald, fegrun og uppbyggingu staðarins í gegnum árin og skapað umhverfi sem er bæði hlýlegt og aðlaðandi.
    Grundarfjarðarbær þakkar eigendum fyrir metnað þeirra og umhyggju fyrir staðnum í gegnum árin. Bjargarsteinn hefur um langt skeið verið bænum til sóma og er vel að því kominn að vera Prýði atvinnulífsins 2026.
  • Farið yfir nokkur skipulags- og byggingarmál Skipulags- og umhverfisnefnd - 282 Formaður og skipulagsfulltrúi kynntu ýmis mál sem eru í undirbúningi.

6.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13

Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 13. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
  • Sótt er um byggingarheimild til að byggja nýtt geymsluhúsnæði með nettóflatarmál upp á 19,6 m2. Sambærilegur geymsluskúr var rifinn fyrir um ári síðan vegna slæms ástands og verða sökkull og plata endurnýtt. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Fyrri skúr var byggður árið 2013 og staðfestir nágranni á Grundarvegi 9 með undirritun samþykki sitt fyrir byggingunni, en skúrinn stendur upp við lóðamörk. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þar sem um er að ræða endurbyggingu á skúr er fyrra samþykki eiganda nágrannalóðar talið fullnægjandi og byggingarfulltrúaembættið mun tilkynna honum um þá niðurstöðu. Byggingarheimild verður gefin að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012.
  • Eigandi kjallaraíbúðar á Grundargötu 12b sækir um að hún verði skráð sem atvinnuhúsnæði. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Afgreiðslu málsins frestað.
  • Sótt er um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Umsókn vísað til skipulagsfulltrúa. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni skipulagsmeðferð.
  • Sótt er um byggingarleyfi fyrir óupphitað og óeinangrað 60 m2 stálbogahús á jörðinni Innri-Látravík. Húsið yrði notað sem hesthús. Undirstöður eru úr járnbentri steinsteypu og klæðning hússins er báraðar málmplötur. Húsið yrði staðsett við hlið fjárhúsa sem eru svipuð að lögun og stærð og nýtir sömu aðkomu Ekki liggur fyrir deiliskipulag, en skv. aðalskipulagi er svæðið landbúnaðarland. Samkvæmt aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar er heimilt að gera ráð fyrir mannvirkjagerð sem búskapur og landbúnaðarnot jarðarinnar kalla á. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13 Byggingaráformin eru samþykkt á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012.

7.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14

Málsnúmer 2610002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir fundargerð 14. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
  • Sótt er um byggingarleyfi fyrir fimm frístundahúsum á byggingarreit austan við gamla bæjarhólinn. Lagður fram nýr aðaluppdráttur. Umsækjandi hefur jafnframt í vinnslu nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir fleiri sambærilegum frístundahúsum, en í gildandi deiliskipulagi Skerðingsstaða er gert ráð fyrir fimm frístundahúsum á reitnum sem um ræðir. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14 Byggingarfulltrúi samþykkir fyrirhuguð byggingaráform með fyrirvara um minniháttar lagfæringu á afstöðumynd. Áformin eru í samræmi við gildandi deiliskipulag Skerðingsstaða. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum ákvæðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2008.
  • Framhald af síðasta fundi. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14 Að lokinni yfirferð og að teknu tilliti til þeirra breytinga sem samþykkt laga 25/2026 hefur í för með sér telur byggingarfulltrúi ekki þörf á að breyta skráningu hússins í atvinnuhúsnæði vegna fyrirliggjandi umsóknar um rekstrarleyfi. Byggingarfulltrúi leggur til að umsagnarbeiðni sýslumannsins á Vesturlandi, sbr. mál 2604021, verði tekin fyrir með hefðbundnum hætti.
  • Sótt er um byggingarleyfi til að byggja vélageymslu í landi Naustáls. Byggingin er í notkunarflokki 1. Um er að ræða 240 m2 hús á staðsteyptum sökkli en byggt úr límtrésrömmum og klætt með steinullareiningum. Á aðaluppdrætti kemur fram afstöðumynd. Húsið er byggt á aðalskipulagsreitnum E-8 og utan við 30 metra miðlínu frá flugvellinum. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14 Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið og er umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisnefndar. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni meðferð nefndarinnar.
  • Sótt er um byggingarleyfi til að reisa girðingu upp að gangstétt milli Hlíðarvegs 9 og 11. Fyrir liggur undirritað samþykki beggja lóðarhafa. Sækja þarf um byggingarleyfi þar sem fyrirhuguð hæð girðingar er 2,0 m, en skv. byggingarreglugerð er girðing allt að 1,8 m einungis tilkynningarskyld. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14 Byggingarfulltrúi samþykkir áformin.
  • Lögð fram til umræðu reglur og gjaldskrá stöðuleyfa sem bæjarstjórn samþykkti fyrr á árinu. Samþykktin felur í sér lækkun stöðuleyfisgjalda og að ólíkar gerðir stöðuleyfa eru felldar niður. Rætt um verklag við afgreiðslu umsókna. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 14 Samþykkt að taka stöðuleyfisumsókni fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þegar þær hafa borist í gegnum íbúagátt. Ennfremur að afgreiðslugjald stöðuleyfisumsókna hækki ekki í samræmi við byggingarvísitölu það sem eftir er af árinu. Kostnaður við afgreiðslu stöðuleyfisumsókna verður því út árið alls kr. 58.227:
    39.500 fyrir stöðuleyfi
    18.727 sem er afgreiðslugjald m.v. byggingarvísitölu septembermánaðar.

    Áður var fjárhæð stöðuleyfisgjalds 129.164, og lækka stöðuleyfisgjöld því um 55%.

    Sérstaklega er farið yfir 7. grein samþykktarinnar sem fjallar um heimildir til að fjarlægja lausamuni sem ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir, en einhver dæmi eru um að ekki hafi verið sótt um stöðuleyfi vegna lausafjármuna hjá sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkti fyrirliggjandi samþykkt og gjaldskrá stöðuleyfa í maí 2026. Samþykktin er hér aftur lögð fram vegna minniháttar orðalagsbreytinga frá upphaflegri samþykkt eftir ábendingar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um að ekki þyrfti að birta stöðuleyfisreglur í B-deild stjórnartíðinda.

    Samþykkt samhljóða.

8.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Ums.b. rek. G.II-Íbúð Jónu, Grundargata 12B, Grundarfirði_2026024688

Málsnúmer 2604021Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni sem áður var tekin fyrir á 655. og 656. fundum bæjarráðs og á 313. fundi bæjarstjórnar, og var það þá niðurstaðan að ekki væri unnt að veita jákvæða umsögn um þessa rekstrarleyfisumsókn nema húsnæðið væri skráð sem atvinnuhúsnæði. Eftir samþykkt laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 25/2026 fyrr á árinu hafa fyrri lagabreytingar gengið til baka og heimilt að gefa út tímabundið rekstrarleyfi vegna gistingar í íbuðarhúsnæði í þéttbýli. Búið er að uppfæra álit lögmanns vegna þessarar rekstrarleyfisumsóknar með hliðsjón af því og er ekki lengur nauðsynlegt að húsnæðið sé skráð sem atvinnuhúsnæði til að unnt sé að veita jákvæða umsögn vegna rekstrarleyfisumsókna.

Til máls tóku FÞÞ, ÞGJ, JÓK og BS.

Að teknu tilliti til þeirra breytinga sem lög um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 25/2026 hafa í för með sér samþykkir bæjarstjórn fyrir sitt leyti að umsóknin fari í hefðbundið umsagnarferli. Starfsemin er innan þeirra heimilda sem eru í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar og þegar hefur verið gefið út sambærilegt rekstrarleyfi í öðrum íbúðum á jarðhæð. Öðrum eigendum íbúða í fjöleignarhúsinu Grundargötu 12-14 verði grenndarkynnt um áform umsækjanda og aflað umsagnar frá byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra. Komi ekki fram athugasemdir er bæjarstjóra falið umboð til að veita sýslumanni jákvæða umsögn vegna umsóknarinnar.

Samþykkt samhljóða.

9.OP-5 Upplandið

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti í október 2025 tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu. Óskað er eftir að bæjarstjórn tilnefni einn fulltrúa í samráðshópinn og einn varamann.
Til máls tóku FÞÞ, JÓK og SG.

Lagt til að Jósef Ó. Kjartansson verði fulltrúi bæjarstjórnar í samráðshópnum og að Þuríður Gía Jóhannesdóttir verði til vara.

Samþykkt samhljóða.

10.Álagning útsvars 2027

Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga bæjarráðs um að álagningarprósenta útsvars verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.
Bæjarstjórn samþykkir að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

11.Rut Rúnarsdóttir - Fyrirspurn vegna Samkomuhúss

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu. Jafnframt lagt fram minnisblað forstöðumanns menningar- og markaðsmála ásamt tillögu að gjaldskrá verði breytt fyrirkomulag samþykkt.



Send hefur verið fyrirspurn til sýslumanns vegna þess möguleika að fella niður rekstrarleyfið af húsinu.

Bæjarstjórn vísar málinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Pálmi Jóhannsson, forstöðumaður menningar- og markaðsmála - mæting: 15:14

12.Ályktun bæjarstjórnar um 2,5 prósent hækkun gjalda 2027

Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að ályktun bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði miðað við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili hækki að hámarki um 2,5%.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að vinna tillögur að gjaldskrám ársins 2027 á grundvelli þessarar stefnumörkunar og leggja fyrir bæjarstjórn samhliða fjárhagsáætlun.

Samþykkt samhljóða.

13.Verðlaunasamkeppni - Áningarstaður

Málsnúmer 2610011Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra þar sem lagt er til að Grundarfjarðarbær efni til hugmyndasamkeppni um listaverk og staðsetningu áningarstaðar í Grundarfirði. Markmiðið er að skapa áhugavert kennileiti sem höfðar til íbúa og gesta og býður upp á aðlaðandi umgjörð til ljósmyndunar. Veitt verði verðlaun fyrir vinningstillöguna.

Til máls tóku FÞÞ og BJJ.

Bæjarstjórn samþykkir að efnt verði til hugmyndasamkeppni um listaverk og áningarstað í Grundarfjarðarbæ. Bæjarstjóra falið að útfæra fyrirkomulag samkeppninnar, þar á meðal verðlaun fyrir vinningstillögu, í samráði við skipulags- og umhverfisnefnd.

Samþykkt samhljóða.

14.Bjarg íbúðafélag - Stofnframlag

Málsnúmer 2610010Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um uppbyggingu leiguíbúða í Grundarfirði í samstarfi við Bjarg íbúðafélag.

Til máls tóku FÞÞ, JÓK, BS, BJJ og SG.

Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra heimild til að hefja samstarf við Bjarg íbúðafélag og HMS um undirbúning uppbyggingar leiguíbúða í Grundarfjarðarbæ. Endanleg tillaga um staðsetningu, stofnframlag og þátttöku sveitarfélagsins verði lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

15.JAE ehf. - Baðlónsverkefni - samningur

Málsnúmer 2610016Vakta málsnúmer

Í framhaldi af viljayfirlýsingu sem gerð var 23. júní sl.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að halda áfram viðræðum um baðlónsverkefnið og veitir honum, náist ásættanleg niðurstaða, umboð til fullnaðarafgreiðslu málsins í samræmi við umræður á fundinum og að höfðu fullu samráði við bæjarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

16.Ályktun Ungmennaþings Vesturlands 2026

Málsnúmer 2609018Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar ályktanir Ungmennaþings Vesturlands 2026 fyrir Alþingi, sveitarstjórnir á Vesturlandi og aðra ráðamenn. Ályktanirnar eru byggðar á umræðum og vinnu ungmenna á þinginu.

17.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.



Fundargerð 1002. fundar sem haldinn var 11. september sl.

Fundargerð 1003. fundar sem haldinn var 23. september sl.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga - Notendaráð sveitarfélaga

Málsnúmer 2610002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitafélaga um notendaráð sveitarfélaga.

19.Starfsgreinasamband Íslands - Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Starfsgreinasambands Íslands þar sem hvatt er til þjóðarsáttar um verðstöðugleika.

20.FSS - Gjaldskrá stuðningsþjónustu á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný gjaldskrá FSS um stuðningsþjónustu á Snæfellsnesi.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:55.