Málsnúmer 2404002

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 284. fundur - 11.04.2024

Lögð fram drög að lánasamningi við Lánasjóð sveitarfélaga vegna lántöku ársins 2024.

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 100.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér.

Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til að endurfjármagna afborganir ársins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Grundarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn - 285. fundur - 07.05.2024

Bæjarstjórn hefur samþykkt 100 millj. kr. lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Í samræmi við umræður á 284. fundi bæjarstjórnar var ákveðið að taka lánið í tvennu lagi. Nú þegar hafa verið teknar 60 millj. kr. að láni.

Að ósk Lánasjóðs sveitarfélaga er óskað eftir að gerð verði samþykkt fyrir því sem eftir er af lántöku ársins, eða 40 millj. kr. með veði í tekjum sveitarfélagsins, verði af síðari hluta lántökunnar.

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 40.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem lá fyrir 284. fundi bæjarstjórnar og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér.