501. fundur 26. júlí 2017 kl. 09:00 - 12:24 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) formaður
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Eyþór Garðarsson (EG)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Þorsteinn Birgisson, skipulags- og byggingafulltrúi, sat fundinn undir lið 1.

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Skipulags- og umhverfisnefnd - 180

Málsnúmer 1706005FVakta málsnúmer

Þorsteinn Birgisson, skipulags- og byggingafulltrúi, sat fundinn undir þessum lið.


  • Vegna umferðar frá hafnarsvæði.
    Borgarbraut/Nesvegur biðskylda ?
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar biðskyldu á horni Nesvegar-Borgarbraut. Nefndin leggur til að gerðar verði færanlegar eyjar með tilheyranda merkingum til að stýra umferð af hafnarsvæði. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að vinna verkið með hafnarverði. Bókun fundar Bæjarráð leggur til að sett verði upp biðskyldumerki við Borgarbraut á gatnamótum Borgarbrautar og Nesvegar, tímabundið, meðan aðrir kostir eru skoðaðir.
  • Rarik óskar eftir lóð undir spennistöð Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að spennistöðin verði staðsett við suðurgafl smíðastofu.
    Byggingarfulltrúa falið að fá staðfesta staðsetningu í samráði við skólastjórnendur.
  • Lóðaumsókn: Ásgeir Þór Ásgeirsson, Ólöf G. Guðmundsdóttir, Halldóra Dögg og Sigurður Friðfinnsson sækja um lóðina að Fellabrekku 11-13.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið að veita
    Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, Ólöfu G. Guðmundsdóttur, Halldóru Dögg og Sigurði Friðfinnssyni lóðina að Fellabrekku 11-13.



    Bókun fundar Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Dísarbyggð ehf leggur fram tillögu að deiliskipulagi. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur byggingarfulltrúa að halda áfram með deiliskipulagið í kynningarferli. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Losunarstaðir - Tippur til efnislosunar. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 1. Hrafnkelsstaðabotn ? Kolgrafafjörður
    - Virkur losunarstaður.

    2. Hönnugil
    - Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafin verði vinna við hönnun að útivistarsvæði við Hönnugil. Nefndin leggur einnig til að bæjarstjórn heimili losun (Sjá fylgiskjal) sem allra fyrst svo að ekki glatist efni sem gæti nýst vel til uppbyggingar. Losun færi fram í samráði við byggingarfulltrúa og verkstjóra áhaldahúss þannig að þeir hefðu yfirumsjón með hvernig verði losað og að gengið verði vel frá eftir hvert verk.
    Fylgiskjal sýnir tillögu að losunarstað í hönnugili. (Hönnugil-losa)

    3. Ártún Tippur-grjótnáma
    - Nefndin hafnar alfarið losun á öðru en burðarhæfu efni í námuna við Ártún vegna þess að um er að ræða væntanlegar byggingarlóðir.

    4. Hesthúshverfi
    - Nefndin er sammála þessum losunarstað.
    - Losa má burðarhæft efni og blandað jarðefni.

    5. Soffagata að Gilós ( fjaran )
    - Nefndin er sammála þessum losunarstað.
    - Losa má grjót.

    6. Mön við íþróttavöll
    - Nefndin tekur vel í lengingu manar.
    - Losa má blandað jarðefni.

    7. Mön neðan við grjótnámu
    - Nefndin leggur til að mönin verði lengd til vesturs.
    - Losa má blandað jarðefni.
    Bókun fundar Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur skipulags- og umhverfisnefndar varðandi efnislosunarstaði í Hrafnkelsstaðabotni, við hesthúsahverfi, við sjávarsíðuna frá Borgarbraut 1 að Gilós, mön við íþróttavöll og mön neðan við grjótnámu.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt tillögu nefndarinnar um efnislosunarstað við Ártún, en leggur til að skoðaðir verði möguleikar á því að losa óburðarhæft efni á öðrum stöðum á svæðinu, þar sem ekki hafa verið skipulagðar byggingalóðir.

    Bæjarráð leggur til að við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs verði hugað að fjármagni til endanlegrar hönnunar á útivistarsvæði í Hönnugili. Þegar slík hönnun liggur fyrir verði endanleg ákvörðun um efnislosun á svæðinu tekin.

    Skipulags- og byggingafulltrúa falinn undirbúningur hönnunarvinnu og áframhaldandi vinnu varðandi losunarstaði.
  • Lóðaumsókn: Haukur Árni Hjartarsson sækir um lóðina Fellabrekka 1



    Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags og byggingarfulltrúa að veita Hauki Árna Hjartarsyni lóðina að Fellabrekku 1.




    Bókun fundar Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Breytt stöðuleyfi: Bongo slf. óskar eftir nýrri staðsetningu á pylsuvagninum til varnar slysahættu. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í að pylsuvagninn sé færður inn á grasflötina við hlið núverandi staðsetningu. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • G.Runólfsson leggur fram drög af teikningu vegna stækkun fiskvinnsuhús. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framlögðum teikningum og leggur til að bílastæði sem teiknuð eru við nýja götu verði færð austan við núverandi byggingu G.Run við Eyraveg til að eiga þess kost að lengja viðbyggingu til norðurs. Bókun fundar Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Nýjir eigendur að Fellabrekku 21 óska eftir að gengið verði frá kanti að ofanverðu á baklóð hússins. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltúa að vinna að framgangi þessa máls. Bókun fundar Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 1.10 1706029 Fyrirspurn um lóð
    Erind frá Umhverfisþjónustunni ehf vegna frálagssvæðis. Skipulags- og umhverfisnefnd - 180 Skipulags- og umhverfisnefnd telur að hagkvæmt gæti verið að gefa eftir þó ekki sé nema hluta af umræddu landssvæði með það að leiðarljósi að í framtíðinni muni steypustöðin færast frá þjóðvegi. Bókun fundar Bæjarráð hafnar erindinu þar sem nægjanlegar upplýsingar liggja ekki fyrir.

    Samþykkt samhljóða.

2.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir lausafjárstöðu.

3.Framkvæmdir 2017

Málsnúmer 1610011Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir stöðu helstu framkvæmda sem unnið er að hjá bænum. Helst er þar að nefna viðgerðir á grunnskólanum, malbikunar- og gatnagerðarframkvæmdir, gróðursetning í Paimpol garði o.fl.

4.Íbúðalánasjóður - Grundargata 69

Málsnúmer 1707009Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs vegna leigusamnings að Grundargötu 69, sem rennur út þann 31. ágúst nk.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að gerður verði nýr samningur við Íbúðalánasjóð.

5.Sundlaug, erindi

Málsnúmer 1707021Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Gunnari Njálssyni varðandi Sundlaug Grundarfjarðar þar sem kvartað er yfir ýmsum atriðum. Jafnframt lagt fram svarbréf bæjarins.

Bæjarstjóra falið að fara yfir málið með forstöðumanni íþróttamannvirkja.

Samþykkt samhljóða.

6.Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðafólk

Málsnúmer 1707023Vakta málsnúmer

Lagðar fram og kynntar hugmyndir að þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn, en Svarið ehf. hyggst setja upp slíkar stöðvar víðs vegar um landið.

Bæjarráð telur hugmyndirnar mjög áhugaverðar og vísar málinu til nánari umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd. Bæjarráð óskar eftir tillögum nefndarinnar að mögulegum staðsetningum fyrir slíka þjónustumiðstöð.

7.Íslandskort vináttunnar

Málsnúmer 1707017Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Hrafni Jökulssyni, f.h. landssöfunarinnar "Vinátta í verki vegna hamfaranna á Grænlandi í júní sl."

Bæjarráð samþykkir samhljóða að styrkja söfnunina um 100.000 kr.

8.Á góðri stund, tækifærisleyfi

Málsnúmer 1707013Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Sýslumannsins á Vesturlandi, dags. 12. júlí sl., þar sem óskað er umsagnar um umsókn Hátíðarfélags Grundarfjarðar um tækifærisleyfi til samkomuhalds á bæjarhátíðinni Á góðri stund í Grundarfirði, sem haldin verður dagana 27.-30. júlí nk.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt samhljóða.

9.Starfsmannamál

Málsnúmer 1707022Vakta málsnúmer

EG vék af fundi undir þessum lið.

Farið yfir starfsmannamál.

EG tók aftur sæti sitt á fundinum.

10.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 1707020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 18. júlí sl., þar sem samtökin bjóða sveitarfélögum sem hafa fiskeldi eða áform um slíkt innan sveitarfélags, að sækja um aðild að samtökunum.

11.Matarauður Vesturlands

Málsnúmer 1707014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Matarauði Vesturlands, dags. 13. júlí sl., þar sem verkefnisstjórn verkefnisins óskar eftir því að framleiðendur og seljendur vöru úr héraði taki þátt í vitundarvakningu og markaðsátaki í október 2017.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í menningarnefnd og hvetur nefndina til að koma erindinu á framfæri.

12.Þjóðskrá Íslands - Tilkynning um fasteignamat 2018

Málsnúmer 1707012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Þjóðskrár Íslands, dags. 12. júlí sl., varðandi fasteignamat 2018.

13.Leikskólinn Sólvellir - Þakkir vegna gjafa sem bárust leikskólanum á 40 ára afmælinu

Málsnúmer 1707011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf þar sem Leikskólinn Sólvellir þakkar fyrir gjafir sem bárust skólanum í tilefni 40 ára afmælis hans fyrr á árinu.

14.Sorpurðun Vesturlands - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 1707008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sorpurðunar Vesturlands, dags. 24. júní sl., um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.

15.FSS - Fundargerð 90. stjórnarfundar

Málsnúmer 1707024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 90. stjórnarfundar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS), dags. 6. júlí sl.

16.SSV - Fundargerð 131. stjórnarfundar

Málsnúmer 1707025Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 131. stjórnarfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), dags. 14. júní sl.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:24.