595. fundur 18. október 2022 kl. 09:00 - 11:31 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2022

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2022

Málsnúmer 2202005Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-september 2022. Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 9,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Meðaltalshækkun á landinu er 11,7%.

3.Launaáætlun 2022

Málsnúmer 2207015Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit sem sýnir samanburð á útgreiddum launum Grundarfjarðarbæjar og Grundarfjarðarhafnar janúar til september 2022. Farið yfir niðurbrot launaáætlunar og raunlauna eftir deildum. Raunlaun eru yfir áætlun sem nemur 2,9 millj. kr., sem fyrst og fremst skýrist af auknum umsvifum Grundarfjarðarhafnar og breytingu á vinnufyrirkomulagi, sem og hagvaxtarauka skv. kjarasamningum, sem leiddi til hækkunar launa fyrr á árinu.

4.Fasteignagjöld 2023

Málsnúmer 2209024Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlit með áætlun fasteignagjalda 2023, samanburði við önnur sveitarfélög, þróun fasteignamats frá árinu 2007 og yfirlit frá Jöfnunarsjóði ef breytingar yrðu gerðar á álagningu fasteignaskatts.

Jafnframt lagt fram yfirlit yfir breytingu fasteignamats hjá Grundarfjarðarbæ og 20 öðrum sveitarfélögum fyrir árin 2015 og 2017-2022. Sjá fylgiskjal.

Farið yfir forsendur og breytingu milli ára og gengið frá tillögu til bæjarstjórnar um lækkun á lóðarleigu íbúðarhúsnæðis (flokkur A) úr 2% í 1,5% og lækkun fráveitugjalds vegna íbúðarhúsnæðis úr 0,2% í 0,19%.

Tillaga að lækkun er gerð í ljósi aðstæðna nú þar sem fasteignamat mun hækka um 21,3% að meðaltali á árinu 2023.

Samþykkt samhljóða.

5.Gjaldskrár 2023

Málsnúmer 2209025Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit sem sýnir breytingar á þjónustugjaldskrám miðað við mismunandi forsendur, ásamt samanburði við önnur sveitarfélög.

Farið yfir gjaldskrár og forsendur.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

6.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2023

Málsnúmer 2209033Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir vegna ársins 2023 ásamt umsóknum og greinargerðum.

Farið yfir styrkumsóknir.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

7.Fjárhagsáætlun 2023

Málsnúmer 2209022Vakta málsnúmer

Lögð fram rammaáætlun 2023 og tekjuáætlun 2023.

Jafnframt lögð fram staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og tilkynning frá Jöfnunarsjóði vegna mögulegs framlags sökum fækkunar íbúa.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

8.Umhverfis-,orku- og loftslagsráðuneytið - Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir

Málsnúmer 2210008Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneytis dags. 7. okt. sl., þar sem ráðuneytið kynnir í samráðsgátt mál nr. 188/2022 - Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir (greinargerð). Óskað er eftir umsögnum og er frestur til 21. október nk.

9.Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju - Ársuppgjör 2021

Málsnúmer 2209036Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju fyrir árið 2021.

10.Skíðadeild UMFG - Ársuppgjör 2021

Málsnúmer 2210001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Skíðadeildar UMFG fyrir árið 2021.

11.Fellaskjól - Ársreikningar 2021

Málsnúmer 2210009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Fellaskjóls fyrir árið 2021.

12.Setbergssókn - Ársreikningar 2021

Málsnúmer 2210010Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Setbergssóknar fyrir árið 2021.

13.FSS - Upplýsingabréf til úkraínsks flóttafólks með búsetu á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2210002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar upplýsingabréf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga dags. 7. september sl. til úkraínsks flóttafólks með búsetu á Snæfellsnesi.

14.Ríkislögreglustjórinn - Ábending um námskeiðið Greining á áhættu og áfallaþoli

Málsnúmer 2210014Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Ríkislögreglustjóra dags. 11. okt. sl. þar sem Almannavarnir vekja athygli á námskeiði á þeirra vegum um greiningu á áhættu og áfallaþoli.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:31.