4. fundur 28. febrúar 2019 kl. 15:30 - 17:08 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) formaður
  • Runólfur Guðmundsson (RUG)
  • Sólrún Guðjónsdóttir (SG)
  • Hafsteinn Garðarsson (HG) hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Orkustofnun - Niðurstöður athugunar Minjastofnunar Íslands á fjölgeisladýptarmælingum á efnistökusvæðum í austanverðum Grundarfirði

Málsnúmer 1902050Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

2.Hafnasamband Íslands - Fundargerð 410. fundar

Málsnúmer 1902043Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

3.Farþegagjöld Grundarfjarðarhafnar - niðurfelling

Málsnúmer 1901032Vakta málsnúmer

Framhald máls frá síðasta fundi. Gögn frá lögmanni lögð fram á fundinum um ákvæði í gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar sem hér ræðir um.
Fulltrúum í hafnarstjórn er veitt umboð milli funda, til að ljúka afgreiðslu málsins.

4.Hafnargerð 2019-2020, Lenging Norðurgarðs

Málsnúmer 1901030Vakta málsnúmer

Fulltrúar í bæjarráði sitja fundinn undir þessum lið.
Til umræðu er staðan í hafnarframkvæmdum, en í janúar var boðinn út áfangi við dælingu efnis í púða undir lengingu Norðurgarðs. Eitt tilboð barst, frá Björgun ehf. Vegagerðin hefur fyrir hönd hafnarinnar átt í viðræðum við bjóðandann á grundvelli frávikstilboðs. Hafnarstjóri gerði grein fyrir stöðunni eftir samningaviðræður Vegagerðarinnar við Björgun.
Farið var yfir áætlun fyrir framkvæmdina í heild, sem lá fyrir við gerð fjárhagsáætlunar sl. haust. Jafnframt rætt um stöðu hafnarinnar.
Hafnarstjórn samþykkir samhljóða að samið verði á grundvelli fyrirliggjandi tilboðsskrár, sem hafnarstjóri kynnti og er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.

Gestir

  • Heiður Björk Fossberg Óladóttir formaður bæjarráðs - mæting: 16:15
  • Hinrik Konráðsson bæjarráðsfulltrúi - mæting: 16:15
  • Bjarni Sigurbjörnsson bæjarráðsfulltrúi - mæting: 16:15
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri - mæting: 16:15
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:08.