Í tilefni af 112 deginum munu allir viðbragðsaðilar í Grundarfirði aka um bæinn klukkan 17 í dag, fimmtudaginn 11. febrúar.

Aksturinn endar við Fjölbrautaskóla Snæfellinga þar sem Björgunarsveitin Klakkur, sjúkraflutningamenn og slökkvilið munu kynna starfsemi sína.

Notið tækifærið og kynnið ykkur starfsemi viðbragðsaðila bæjarins.