Álagningu fasteignagjalda 2020 er nú lokið.

Eins og á síðasta ári verða ekki sendir útprentaðir álagningarseðlar í pósti, en álagningar birtast á vefgátt Þjóðskrár, www.island.is. Gjaldendur geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Greiðsluseðlar eru sendir rafrænt í heimabanka gjaldenda.

Fyrirtæki og gjaldendur eldri en 70 ára fá þó senda álagningarseðla og greiðsluseðla í pósti, nema það sé afþakkað.

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu, líkt og fyrri ár. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og eindagi 30 dögum síðar. Vatnsgjald er innheimt af Veitum ohf. (dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur). Fyrirspurnum um vatnsgjald skal beina til Veitna í síma 516 6000 eða með tölvupósti á netfangið veitur@veitur.is

Afsláttur fasteignaskatts til tekjulágra eldri borgara og öryrkja er veittur í samræmi við reglur sem bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur sett. Afsláttur reiknast sjálfvirkt út frá upplýsingum Ríkisskattstjóra og er miðað við tekjur ársins 2018, skv. skattframtali 2019.

Heildarálagning fasteignagjalda að fjárhæð 25.000 kr. og lægri kemur óskipt til greiðslu á einum gjalddaga, þann 1. maí 2020.

Álagningarákvæði fasteignagjalda

Reglur um afslátt af fasteignaskatti

Klippikort 2020 ásamt bæklingi um flokkun hafa verið borin í öll hús. Í bæklingnum má sjá flokkunarreglur og svör við ýmsum algengum spurningum varðandi flokkun. Húseigendur eru hvattir til að varðveita kortið vel og hafa það ávallt meðferðis þegar farið er á gámasvæðið.

Flokkunarhandbók

Fyrirspurnum skal beina til Grundarfjarðarbæjar í síma 430 8500 eða með tölvupósti á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is