Plokkdagurinn 

 

 Vorið er komið - og við erum byrjuð að sópa götur og hreinsa rusl. 

Sunnudaginn 28. apríl nk. verður Stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur um land allt. Þá er fólk hvatt til að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi, á girðingum, í gróðri og í skurðum eftir veturinn.

Það eru samtökin Plokk á Íslandi sem standa að Stóra plokkdeginum. Dagurinn er hugsaður sem upphaf plokktímabilsins og sem vitundarvakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu.
Viðburð fyrir stóra plokkdaginn á Facebook má finna hér.

Við hvetjum íbúa Grundarfjarðar til að taka þátt í plokkinu og reyndar væri sniðugt að gera komandi daga hreinlega að heilli PLOKKVIKU!

Við bendum á að fyrir utan gámastöðina við Ártún 6 verður gámur um komandi helgi, sérstaklega ætlaður fyrir "plokk" rusl!  Gámastöðin er síðan opin laugardaginn 27. apríl frá 12:00-14:00 fyrir stærra rusl.   
VIÐBÓT: Athugið, að fyrir plokkara inní bæ, þá má einnig setja venjulegt plokkrusl í ruslagám sem stendur vestan við verslun Blossa, skv. góðu boði eigenda verslunarinnar.

Góð ráð frá Plokk á Íslandi

  • Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
  • Útvega sér ruslapoka, nota hanska og plokktöng.
  • Klæða sig eftir aðstæðum.
  • Koma afrakstrinum á viðeigandi stað fyrir úrgang.
  • Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.

Gerum fallegan bæ enn snyrtilegri!