Heilbrigðisstofnun Vesturlands Grundarfirði leitar eftir starfskrafti í ræstingar, viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára,  vandvirkur og áreiðanlegur.  Vinnutími er eftir kl 16:00 og vinnuhlutfall 20%. Laun eru greidd samkvæmt launatöflu Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

 

Umsóknir berist til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands Grundarfirði, fyrir föstudaginn 23 ágúst eða á netfangið asthildur.erlingsdottir@hve.is

Nánari upplýsingar í síma 432-1354, Ásthildur.