Laugardaginn 25. janúar kl. 12:00 verða stofnuð Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Stofnfundurinn verður haldinn á sjúkrahúsinu á Akranesi sem er starfsstöð stofnunarinnar. Grundarfjarðarbær hvetur íbúa til að mæta á fundinn og gerast þannig stofnfélagar.  Lagt er til að árgjald verði kr. 3000. Þeir sem ekki komast á fundinn geta að honum loknum gerst félagar m.a. með því að fara inn á heimasíðu samtakanna vesturlandsvaktin.is, en heimasíðan verður opnuð á stofnfundinum. Einnig verður hægt að fylgast með starfsemi samtakanna á Facebook:  https://www.facebook.com/vesturlandsvaktin?ref=hl.

 

Tilgangur stofnunar Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, sem kalla má Vesturlandsvaktina, er eftirfarandi:
1.        Að sameina íbúa á Vesturlandi í stuðningi við HVE með regnhlífarsamtökum, sem láti sig varða stöðu þeirrar mikilvægu þjónustu sem heilbrigðismálin eru.
2.        Að standa vörð um öfluga heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi, taka þátt í umræðu um stöðu mála, þróun og mikilvægi þjónustunnar.
3.        Að styðja við starfsemi HVE með söfnun fjár til mikilvægra tækja, sem komi þeim íbúum á Vesturlandi til góða, sem nýta þjónustu HVE.
4.        Að verð góð viðbót við annað gott starf einstaklinga, félaga og fyrirtækja á svæðinu sem stutt hafa starfsstöðvar HVE myndarlega á liðnum árum og áratugum.