- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar hófust mánudaginn 6. júní og verða í boði fyrir börn fædd 2004-2010. Námskeiðin verða í þrjár vikur í júní og tvær vikur í ágúst. Næsta námskeið hefst á mánudaginn, 13. júní og stendur til 16. júní.
Skráningareyðublöð fyrir sumarnámskeiðin má nálgast hér eða á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Áfram verður hægt að skrá börn á námskeið sumarsins í síðasta lagi á föstudeginum fyrir hvert námskeið.
Verð á námskeiðum er eftirfarandi: Ein vika fyrir hádegi kr. 5.000, ein vika eftir hádegi kr. 4.000 og ein vika allan daginn kr. 8.000. Systkinaafsláttur er veittur á annað barn sem nemur 30% af verði og á þriðja barn 70%.
Meðal þess sem boðið verður upp á á námskeiðunum er íþróttadagur, bátasmíði, fjallganga, sandkastalagerð, hjóladagar, stíflugerð, ratleikur, sund og fleira.
Mæting á námskeiðin er stúkumegin í íþróttahúsinu.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður D. Benidiktsdóttir í síma: 690 6559 og 869 6006.