Togbáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 frá Grundarfirði, sem Samherji leigir, kom að landi í Grundarfirði 24. febrúar, með rúmlega 30 tonna afla. Skipið hefur þar með komið að landi með um 120 tonn úr þremur veiðiferðum á einni viku, þar af fyrstu tvö skiptin með fullfermi.