Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

AFLEYSINGAR VIÐ EIGNAUMSJÓN/ÁHALDAHÚS - ráðið í 4 mánuði eða eftir samkomulagi  

Leitað er að starfsmanni til afleysinga við að sinna fjölbreyttum verkefnum sem falla einkum undir fasteignaumsjón en einnig að hluta til áhaldahús. Starfsmaðurinn leysir af starfsmann eignaumsjónar. Um er að ræða almenn viðhalds- og þjónustuverkefni tengd fasteignum bæjarins, verklegar framkvæmdir og önnur þau tengd verkefni. Í tengslum við verkefnin þarf viðkomandi að vera í samskiptum við stofnanir bæjarins, verktaka og þjónustuaðila.  

Hæfniskröfur:

  • Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, lipur í samskiptum, stundvís, hafa góða þjónustulund, vera sjálfstæður í vinnubrögðum og sýna frumkvæði í starfi
  • Hafa bílpróf og góða verklega þekkingu og reynslu, iðnmenntun væri kostur
  • Hafa góða íslenskukunnáttu og almenna tölvukunnáttu, þ.m.t. notkun tölvupósts, o.fl.

Upplýsingar um starfið veita Bergvin Sævar Guðmundsson, eignaumsjón, í síma 692 4343 og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í síma 430 8500 eða bjorg@grundarfjordur.is 

 Sækja um

 

"SLÁTTUGENGIÐ" OG GRÆN STÖRF

Hjá Grundarfjarðarbæ leggjum við mikið uppúr því að bærinn okkar sé snyrtilegur.  Við erum "keppnis" í því!

Á sumrin þarf að slá og snyrta grænu svæðin, þökuleggja, mála og smíða og við þurfum gott fólk í það.
Sjá t.d. myndir hér og hér, en líka hér og hér.

Starfið í sláttugenginu felst í garðslætti, umhirðu garða og opinna svæða bæjarins, en líka í allskonar öðrum umhverfisverkefnum, mest utanhúss. 

Umsækjendur þurfa að vera fædd árið 2006 eða fyrr, hafa áhuga á því að læra handbragð við umhirðu grænna svæða, hafa gaman af útiveru, auk þess að vera sjálfstæð í vinnubrögðum. 

Starfstímabil er frá miðjum maí til síðari hluta ágúst. Vinnutími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga. 

Störfin heyra undir verkstjóra áhaldahúss.  Upplýsingar í síma 691-4343 eða ahaldahus@grundarfjordur.is 

Sækja um 

 

SUNDLAUG GRUNDARFJARÐAR

Það er fjör í sundlauginni á sumrin. Þangað koma íbúar á öllum aldri og gestir, bæði innlendir og erlendir. Við eigum ekki stærstu sundlaug landsins, en hún er notaleg og með fallegustu fjallasýnina. Svo líður öllum betur þegar umhverfið er hreint og þegar vel er hugsað um öryggi gestanna. 

Hér má lesa nánar og skoða myndir frá sundlauginni. 

Sumarstarf í sundlauginni felst í afgreiðslu og laugarvörslu, ásamt því að þrífa klefa, búnað og fleira. 

Leitað er að umsækjendum af öllum kynjum, en umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða og hafa þokkalega góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá 20. maí til 20. ágúst. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar. 

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Sækja um

 

VINNUSKÓLI - UMSJÓNARMAÐUR OG HÓPSTJÓRI

Leitað er að umsjónarmanni Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar sem starfræktur er í fimm til sex vikur fyrrihluta sumars. Ungmenni sem eru að ljúka 8.-10. bekk geta sótt vinnuskólann, en auk þess þau sem eru að klára 7. bekk vorið 2024. 

Sjá nánar hér um vinnuskólann - og sjá frétt hér þar sem fjallað er um öryggismál í vinnuskólanum.

Starf umsjónarmanns felst í að skipuleggja starf vinnuskólans í samvinnu við íþrótta- og tómstundafulltrúa, og að hafa umsjón með starfi og verkefnum vinnuskólans, í samráði við verkstjóra áhaldahúss.  

Jafnframt er leitað að hópstjóra fyrir vinnuskólann, en hópstjóri aðstoðar umsjónarmann í daglegu starfi vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa helst að hafa náð 20 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með unglingum. Starfstímabilið er frá 10. júní til 12. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:30–15:30 alla virka daga, nema á föstudögum til kl. 14:30.

ATHUGIÐ - þegar líða fer að vori verður vinnuskólinn sjálfur auglýstur og geta nemendur hans sótt um þá. 

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Sækja um

TJALDSVÆÐI GRUNDARFJARÐAR

Tjaldsvæðið okkar nýtur sívaxandi vinsælda. Frá maí-september 2023 komu tæplega 5500 gestir á tjaldsvæðið, frá fjölmörgum þjóðlöndum. Svæðið er innanbæjar, í nágrenni sundlaugar og íþróttahúss. Hér má sjá upplýsingar um tjaldsvæðið.

Sumarstarf á tjaldsvæðinu felst í að innheimta tjaldsvæðisgjöld, þrífa og halda tjaldsvæðinu snyrtilegu og eiga almenn og góð samskipti við gesti okkar. Þetta er ekta starf fyrir þau sem elska að segja frá og spjalla við allskonar skemmtilegt fólk og vera fulltrúi fyrir bæinn okkar! 

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá síðari hluta maímánaðar til loka ágúst eða byrjun september. Vinnutími er breytilegur og um hlutastarf er að ræða, sem passar með öðrum störfum sem hér má velja úr.

Sækja um

SUMARNÁMSKEIÐ BARNA - UMSJÓN OG AÐSTOÐARFÓLK

Við viljum að það sé gaman og gott að vera barn í Grundarfirði. Sumarnámskeið fyrir börn eru liður í því. 

Við leitum að góðri manneskju til að hafa umsjón með sumarnámskeiðunum, en þau standa yfir í þrjár vikur í júní og tvær vikur í ágúst. Starfið felst í að undirbúa og halda utan um námskeiðin, í samvinnu við íþrótta- og tómstundafulltrúa. Ennfremur að eiga samskipti við foreldra og börn, og að leiðbeina aðstoðarfólki. Þetta er starf sem tveir gætu líka vel skipt á milli sín. 

Jafnframt er leitað að aðstoðarfólki sem hjálpar umsjónarmanni við námskeiðahaldið og starfið með börnunum.

Þetta eru réttu störfin fyrir hugmyndaríkt og skapandi fólk! Viðkomandi þurfa að geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, auk reynslu og ánægju af að vinna með börnum. 

Starfstímabil námskeiðanna er 5.-21. júní og 6.-16. ágúst, auk þess sem gert er ráð fyrir undirbúningi hjá umsjónarmanni að vori. Vinnutími er kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00, auk undirbúningstíma umsjónarmanns. Um hlutastarf er að ræða, sem getur hentað með öðrum störfum síðar um sumarið

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Sækja um

UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ YFIR SUMARIР

Talið er að á Snæfellsnes komi hátt í ein milljón ferðamanna á ári. Í Grundarfjarðarhöfn munu koma í kringum 70 skemmtiferðaskip með allt að 55.000 gesti sumarið 2024. 

Við leitum  að allskonar fólki í skemmtileg sumarstörf við upplýsingagjöf til ferðamanna og móttöku gesta, auk þess að lána út bækur á bókasafninu.  Við leitum að metnaðarfullu fólki sem getur unnið sjálfstætt, með góða tungumálakunnáttu. Kostur er að hafa þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði og nærsveitum, en ef þú ert fljót(ur) að læra, þá getum við líka sett þig vel inní það sem þú þarft að vita til að geta sinnt starfinu. Athugið: íslenska er ekki skilyrði sem móðurmál í þessu starfi. 

Starfið er kjörið fyrir fólk með uppsafnaða og haldgóða lífsreynslu – sem elskar að segja frá Grundarfirði og Snæfellsnesi – líka fyrir þau sem eru ung (18+) og langar að læra. 

Námsfólk í upplýsingafræði, ferðamálafræði eða öðrum háskólagreinum gæti einmitt nýtt þetta tækifæri til að ná sér í reynslu. 

Starfið getur verið fullt starf eða hlutastarf,  alla eða flesta daga vikunnar, kl. 10-17, þar sem tveir eða fleiri skipta með sér vöktum. Komdu með þína hugmynd að vinnutíma og við vinnum með það!  

Starfið fellur undir forstöðumann bókasafnsins, sem veitir nánari upplýsingar í síma 4308500 eða menning@grundarfjordur.is 

Sækja um