Samvinnurými í Grundarfirði 

Að Grundargötu 30 í Grundarfirði rekur Grundarfjarðarbær samvinnurými. Samvinnurýmið hentar vel til fjarvinnu, fyrir lítil fyrirtæki, námsmenn og einyrkja. Í boði eru bæði lokaðar skrifstofur og opið rými þar sem hægt er að leigja borð. Í samvinnurýminu eru sex skrifstofur og fjögur skrifborð í opnu rými. 

Innifalið í leigu:

  • Stillanlegt skrifborð 
  • Góður skrifstofustóll
  • Háhraða internet
  • Prentari og skanni
  • Eldhús og kaffiaðstaða
  • Kaffi
  • Þrif

Grundarfjörður er fallegur bær staðsettur á norðanverðu Snæfellsnesi, í rúmlega 2 klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík.