Málsnúmer 1502031

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 466. fundur - 26.02.2015

Lagður fram listi yfir húseignir í Grundarfirði sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs.
Jafnframt kynnt að tveir fundir hafa verið haldnir með forsvarsmönnum sjóðsins. Óskað hefur verið eftir því að Íbúðalánasjóður lagfæri þær íbúðir sem hann á og komi þeim annað hvort í sölumeðferð eða útleigu.

Bæjarráð - 478. fundur - 03.12.2015

Lagðar fram upplýsingar um íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs í Grundarfirði. Gerð var grein fyrir ástandi íbúðanna og hverjar væru í ábúð og hverjar ekki. Jafnframt greint frá hugmyndum um það að koma sem flestum íbúðunum í íbúðarhæft ástand í samvinnu við Íbúðalánasjóð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og forseta bæjarsjórnar að vinna áfram að úrlausn mála með Íbúðalánasjóði.

Samþykkt samhljóða.