Málsnúmer 1511015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 478. fundur - 03.12.2015

Lagt fram bréf Grundarfjarðarbæjar til Skipulagsstofnunar dags. 23. okt. sl., þar sem spurst er fyrir um kostnaðarframlag Skipulagssjóðs, vegna aðalskipulagsgerðar. Jafnframt lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 9. nóv. sl., þar sem greint er frá því að sveitarfélagið getur fengið allt að helming kostnaðar styrktan úr Skipulagssjóði.

Lagt er til að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við ráðgjafafyrirtækið Alta á grundvelli nálgunar- og verkáætlunar fyrirtækisins fyrir skipulagsgerðina, dags. í okt. 2015. Samningurinn taki jafnframt mið af áætluðu greiðslufyirkomulagi Skipulagssjóðs.

Samþykkt samhljóða.