Málsnúmer 2010042

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn - 12. fundur - 30.10.2020

Fyrir fundinum lágu teikningar og drög að umsókn RARIK um leyfi fyrir viðbyggingu við rafmagnshús á Norðurgarði. Viðbótin er hugsuð fyrir nýjan rafmagnsspenni, sem myndi þjóna Norðurgarði.
Hafnarstjóri fór yfir teikningar sem fyrir lágu og fyrirhugaða umsókn frá RARIK.

Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti, að RARIK leggi fram umsókn um byggingarleyfi skv. þessum áformum, til afgreiðslu hjá byggingarfulltrúaembætti bæjarins.