Málsnúmer 2203016

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 161. fundur - 05.04.2022

Lagt fram erindi mennta- og barnamálaráðherra frá 22. febrúar 2022 þar sem fram kemur að samræmd könnunarpróf verði ekki lögð fyrir á árinu 2022. Hafin sé vinna við hönnun Matsferils, nýrrar yerkfærakistu kennara og skóla. Matsferill mun innihalda fjölbreytt og hnitmiðuð verkfæri fyrir kennara, til nota í umbótaskyni, nemendum til hagsbóta. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að vorið 2022 liggi fyrir verkáætlun um innleiðingu Matsferils.