Málsnúmer 2205018

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 163. fundur - 04.07.2022

Lagt fram bréf sambandsins frá 4. maí sl. til sveitarfélaga þar sem áframsent er bréf Velferðarvaktarinnar, dags. 7. apríl 2022. Fram kemur að Velferðarvaktin hafi fjallað um rannsóknarskýrsluna "Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum" og tekið undir tillögur sem fram koma í skýrslunni. Sambandið áframsendir tillögur Velferðarvaktarinnar til allra sveitarfélaga.
Skólanefnd óskar eftir að fá að ræða efni skýrslunnar og tillagnanna við skólastjórnendur grunnskóla, í haust.