Lögð er fram tillaga frá skólanefnd um breytingar á leikskólastigi.
Á fundi skólanefndar og bæjarstjórnar 17. febrúar sl. viðraði skólanefnd við bæjarstjórn áhyggjur sínar af fækkun barna á leikskólastigi, en á komandi hausti stefnir í að einungis verði tæplega 30 börn á Leikskólanum Sólvöllum þegar 13 börn fara í fimm ára leikskóladeildina Eldhamra.
Skólanefnd telur að svo fámennar einingar hljóti að vekja spurningar um fyrirkomulag í rekstri, bæði faglega og fjárhagslega. Skólanefnd leitaði eftir heimild bæjarstjórnar til að skoða þann möguleika að sameina aftur starfsemi leikskólastigsins. Í bókun skólanefndar 17. febrúar sl. kom fram að nefndin telur að það sé afar mikilvægur útgangspunktur í stöðunni í dag, að bæði Eldhamrar og Sólvellir búi að hæfu fólki og afar góðu faglegu starfi, sem við megum vera stolt af. Það sé fyrst og fremst fjöldi (fækkun) leikskólabarna sem kalli á endurmat nú.
Í tillögunni kemur fram að skólanefnd hafi átt samtöl við helstu hagaðila málsins og leggur skólanefnd til við bæjarstjórn að frá og með komandi skólaári, sem hefst í ágúst nk., færist starfsemi fimm ára leikskóladeildar aftur til baka og sameinist starfsemi Leikskólans Sólvalla. Elsti árgangur leikskólastigs verði þá áfram á Leikskólanum Sólvöllum að loknu sumarleyfi. Áfram verði þó gert ráð fyrir öflugu samstarfi eldri barna á leikskólastigi og yngri barna á grunnskólastigi, í samræmi við lög.
Í tillögu skólanefndar kemur fram að ástæðan sé fyrst og fremst breyttar lýðfræðilegar forsendur, þ.e. nemendaþróun. Tillagan snúist um að sameina og efla það faglega starf sem unnið er og að styrkja enn frekar mannauðinn.
Í máli bæjarstjóra kom fram að skólanefnd hafi vissulega rætt það, að þegar aftur komi til fjölgunar barna á leikskólastiginu þá sé það ljóst að ekki sé verið að færa aftur hluta leikskólabarna milli húsnæðis leik- og grunnskóla. Það felist í þessari tillögu, að húsnæðismál leikskóla verði, þegar að því kemur, leyst með öðrum hætti í tengslum við starfsemi Leikskólans Sólvalla.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar.
Samþykkt samhljóða.