Lögð fram valkostagreining á lagningu göngu- og hjólreiðastígs úr þéttbýli og að Kirkjufellsfossi, sem unnið hefur verið að með upplýsingum frá Vegagerðinni, m.a. um kostnað. Í greiningunni er tekin afstaða til samspils göngustígs við reiðveg, þjóðveg og fleira.
Nanna Vilborg Harðardóttir er gestur fundarins undir þessum lið.
Bæjarráð - 655Nanna og Björg kynntu framlagða greiningu. Fimm valkostir eru um legu göngu- og hjólreiðastígs, ca. frá rimlahliði við Hellnafell og út að Kirkjufellsfossi. Stígur liggur að hluta til um land í eigu bæjarins, en þó að mestu í gegnum land jarðarinnar Kirkjufells.
Bæjarstjóri hefur kynnt/sent landeigendum Kirkjufells þessa greiningu.
Grundarfjarðarbær hefur átt loforð um framlag frá Vegagerðinni (ríki) sem er mótframlag við kostnað bæjarins við lagningu göngustígs, en ljóst er að sú fjárhæð nægir ekki nema fyrir hluta kostnaðar við dýrari valkostina, eins og stendur.
Fram kom hjá bæjarstjóra að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða féllst ekki á styrkbeiðni bæjarins til lagningu göngustígs, en sótt var um í október sl.
Lagt fram, og málið verður unnið áfram með landeigendum og hagaðilum.
Bókun fundarRætt um valkostagreiningu sem lögð fram var fram til kynningar á þessum fundi bæjarráðs, um legu göngustígs út þéttbýli að Kirkjufellsfossi.
Allir tóku til máls.
Skýrslan er í kynningu hjá landeigendum og verður málið unnið áfram með þeim og hagaðilum.
Kynnt var kostnaðaráætlun sem Efla vann fyrir bæjarstjórn, um byggingu 1200-1400 m2 íþróttahúss, út frá tilteknum forsendum. Valkostir voru kostnaðarreiknaðir. Ekki er unnið með ákveðna staðsetningu húss í þessum greiningum.
Bæjarráð - 655Einnig kynnt að bæjarstjórn lét gera næmnigreiningu um fjárhagsþol bæjarins til byggingar húss allt að 800 millj. kr. Niðurstaðan er að slík fjárfesting er fjárhag bæjarsjóðs ofviða. Forgangsverkefni er að auka tekjur bæjarsjóðs, til að eiga svigrúm til lækkunar skulda og frekari fjárfestinga eins og þessarar.
Farið yfir og rætt um valkosti og kostnað.
Málið er áfram til skoðunar og vilji bæjarráðs/bæjarstjórnar er að vinna áfram að undirbúningi, í samvinnu við UMFG.
Fulltrúum UMFG var þakkað fyrir komuna og góðar umræður.
Lögð fram beiðni sýslumanns um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi fyrir íbúð að Grundargötu 12B.
Einnig lagt fram minnisblað lögmanns bæjarins um málið og nýlega breytingu á lögum sem málið varðar.
Bæjarráð - 655Aflað var ráðgjafar lögmanns, í ljósi þeirra lagabreytinga sem gerðar voru á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald í apríl 2024, en kanna þarf betur réttarstöðuna hvað varðar útgáfu gistileyfis á þessu svæði.