Málsnúmer 2605012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 656. fundur - 22.05.2026

Lagt fram erindi Helgu Elísabetar Árnadóttur 13. maí sl. um þörf á gerð þrepa/stiga frá Hrannarstíg 40 að vestanverðu upp á Ölkelduveg.



Í erindinu segir að leiðin sé mikið notuð bæði af börnum og fullorðnum og hafi þar myndast göngustígur. Þrep vanti hinsvegar á brattasta kaflann til að auðvelda umferð gangandi vegfarenda og auka öryggi.



Erindi Elsu hafði þegar verið svarað á jákvæðan hátt og hafði bæjarstjóri falið Nönnu Vilborgu verksefnisstjóra skipulags- og umhverfismála að skoða aðstæður og undirbúa úrbætur, og Nanna þegar sett sig í samband við Elsu vegna málsins.

Bæjarráð þakkar Elsu fyrir erindið og samþykkir fyrir sitt leyti að bregðast jákvætt við því.