Málsnúmer 2605015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 656. fundur - 22.05.2026

Lögð fram til kynningar drög að hönnun eldhúss fyrir skólamötuneyti í húsnæði grunnskólans, en gögnin höfðu áður verið kynnt bæjarfulltrúum sbr. tölvupóst bæjarstjóra.



Verkið er á fjárhagsáætlun ársins 2026.



Fyrir liggur jákvæð afstaða flestra bæjarfulltrúa fyrir þessari hönnun.

Bæjarráð samþykkir framlagðar teikningar (drög) og felur tæknifræðingi að láta fullgera þær með hönnuði verksins, Rúnari Ólafssyni, og leggja fyrir byggingarfulltrúa skv. umsókn um byggingarleyfi.

Tæknifræðingi jafnframt falið að leita tilboða í framkvæmd verksins, en ætlunin er að mötuneyti í grunnskóla verði tilbúið fyrir upphaf komandi skólaárs eða sem fyrst í haust.