Lagt fram bréf Sigurðar Vals Ásbjarnarsonar frá 19. maí sl.
Sigurður Valur hefur gegnt embætti skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar og með erindinu tilkynnir hann um uppsögn/starfslok sín frá og með komandi mánaðamótum.
Sigurður Valur hefur frá 2019 starfað bæði sem byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi hjá Grundarfjarðarbæ, ýmist bæði eða annað hvort, eftir tímabilum, auk þess sem hann hefur haft umsjón með fjölmörgum framkvæmdaverkefnum bæjarins, meðfram öðru.
Bæjarráð vill koma á framfæri sérstökum þökkum til Sigurðar Vals fyrir hans þjónustu og framlag á annasömum tímum, við stór og mikilvæg skipulags- og uppbyggingarverkefni hjá Grundarfjarðarbæ. Bæjarráð og bæjarstjóri færa honum þakkir fyrir einstaklega farsælt og gott samstarf, og góð kynni.
Ný bæjarstjórn mun taka ákvörðun um ráðningu nýs skipulagsfulltrúa.