Málsnúmer 2606041

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 280. fundur - 09.07.2026

Eigandi Hrannarstígs 36 fyrirhugar að byggja sólskála sunnan við húsið. Um er að ræða raðhúsalengju sem er innan svæðis sem skilgreint er sem samfélagsþjónusta og er merkt S-2 í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Stærð lóðar Hrannarstígs 36 er 281 fm og nýtingarhlutfall er 0,4. Heimilað byggingarmagn á lóð er því 112,4 fm. Stærð íbúðar er 88,3 fm. Fyrirhugaður sólskáli er áætlaður skv. framlögðum teikningum 10,4 fm að stærð. Heildar byggingarmagn lóðar eftir framkvæmd yrði þá 97,7 fm sem samræmist nýtingarhlutfalli lóðar skv. gildandi deiliskipulagi. Á deiliskipulagsuppdrætti eru sýndir byggingarreitir og skulu allir meginhlutar byggingar vera innan byggingarreits. Í greinargerð deiliskipulags kemur fram að einstaka hlutar bygginga, eins og td. þakskegg, má fara út fyrir byggingarreit að einhverju leyti og gera skal grein fyrir því á aðaluppdrætti. Æskilegt er að valin séu byggingarefni sem fengið hafa viðurkennda umhverfisvottun. Mælt er með að nota byggingarefni og útfærslur sem eru viðhaldslétt og auðveld í þrifum. Óheimilt er að nota byggingarefni sem geta haft í för með sér útskolun skaðlegra efna í vatn, svo sem þungmálma. Samþykki eigenda fasteignar þarf að liggja fyrir í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í málið svo fremi að aðaluppdrættir sýni fram á að megin bygging rúmist innan byggingarreits samþykkts deiliskipulags. Enn fremur að lagt verði fram samþykki eigenda fasteignar í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994.