Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar. Til stóð að vera með 5 m niðurtekt við Fellabrekku 5 skv. verðkönnunargögnum, en samþykkt var af nefndinni að heima niðurtekt á 7,5 m, en því hafnað að heimila að auki 2,5 m af niðurtekt við sömu lóð. Aðstæður hafa verið rýndar nánar og málið skoðað betur. Íbúðarhúsið á Fellabrekku 5 er nálægt götu, í krappri beygju og ekki með aðgengi að bílastæði í götu.