Íbúi við Grundargötu 84 tilkynnir hér með endurnýjun klæðningar á íbúðarhúsi sínu, sbr. gr. 2.3.6.a í byggingarreglugerð nr. 112/2012 (nýklæðning þegar byggðra mannvirkja).
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019- 2039 er íbúðarhúsið á svæði merkt ÍB-4. Samkvæmt aðalskipulagi er heimilt að leyfa breytingar á núverandi húsnæði sem falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er. Skipulags- og umhverfisnefnd þarf að meta hvort framkvæmdin samræmist aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 (m.a. ákvæðum um yfirbragð byggðar). Þetta er gert skv. gr. 2.3.6 og 2.3.4 í byggingarreglugerð.