Grundarfjarðarbær (kt. 520169-1729), sækir hér með um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir landmótun og uppbyggingu á iðnaðarsvæði vestan Kvernár sem er skilgreint sem landnotkunarsvæði I-1 í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grunni Deiliskipulags iðnaðarsvæðis vestan Kvernár, sem staðfest var þann 13.2.2025. Sem fylgiskjal með framkvæmdaleyfisumsókninni er áætlun um landmótun af iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár skv. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin fellur ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana enda er um að ræða eðlilega landmótun á nýbyggingarsvæði. Landeigandi fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis er Grundarfjarðarbær. Fyrirhuguð framkvæmd felst í því að útbúa lóðir fyrir iðnaðarstarfsemi en aukin eftirspurn er eftir iðnaðarlóðum í Grundarfirði, sem nauðsynlegt er að verða við fyrir þróun og uppbyggingu í sveitarfélaginu. Svæðið er eins og er mishæðótt og því er landmótun nauðsynleg fyrir hagkvæma uppbyggingu lóða og gatna. Með deiliskipulaginu og efnistökuáætluninni er tryggt að saman fari hagkvæm nýting á landi, innviðum og jarðefnum. Nánari lýsingu á framkvæmd má sjá í meðfylgjandi fylgiskjölum og verður framkvæmd í samræmi við lýsingu og skilmála sem þar koma fram.
Gestir
- Herborg Árnadóttir - mæting: 16:29