Málsnúmer 2607006

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 280. fundur - 09.07.2026

Samanber 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. ber sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins. Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags sé að ræða. Ef niðurstaða sveitarstjórnar er að aðalskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar heldur það gildi sínu. Skal ákvörðun sveitarstjórnar að jafnaði liggja fyrir innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum og skal niðurstaðan tilkynnt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun jafnskjótt og hún liggur fyrir.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála verði falið í samráði við skipulagsfulltrúa að skoða hvort að landsskiplagsstefna eða aðrir þættir kalli á endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.