Umhverfis- og orkustofnun vinnur að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028.
Í 20. grein laganna segir frá þeim þáttum sem gera þarf grein fyrir í vatnaáætlun. Í e-lið segir að gera skuli grein fyrir áætlunum um nýjar framkvæmdir, ný sjálfbær umsvif eða breytingum á vatnshlotum. Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
Skilafrestur er til og með 30. september 2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála að kanna og afla upplýsinga um hvort að áætlanir um verkefni, sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033, munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots náist ekki og sækja um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála ef umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki.