Með merkjalýsingu þessari er verið að breyta afmörkun lóðar Ölkelduvegar 17 og stækka hana til suðurs, þe. inn á lóð Ölkelduvegar 19. Megin ástæða stækkunarinnar er breyting notkun lóðarinnar, úr einbýlishúsalóð í parhúsalóð. Lóðin sem er skráð í fasteignaskrá 911 fm að stærð stækkar i 1.161 fm og eru þeir 250 fm sem lóðin stækkar um teknir úr aðliggjandi lóð Ölkelduvegar 19 og minnkar lóðin nr. 19 sem því nemur.
Við breytta notkun lóðarinnar mun hún breyta um heiti og verða Ölkelduvegur 17a og 17b.
Ölkelduvegur 19, sem er skráð 868 fm í fasteignaskrá, mun vera felld út úr fasteignaskrá eftir að úr henni hafa verið teknir 250 fm sem sameinast lóð Ölkelduvegar 17. Við niðurfellingu lóðarinnar renna þeir 618 fm sem eftir standa inn í upprunaland hennar, Grafarland, L190037, sem stækkar sem því nemur úr 40.553 fm í 41.171 fm.
Samþykkt samhljóða.