Málsnúmer 2607009

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 658. fundur - 21.07.2026

Lögð fram merkjalýsing til samþykktar bæjarráðs.

Bæjarráð vísar merkjalýsingu Fellasneiðar 5 og 7 til skipulags- og umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og umhverfisnefnd - 281. fundur - 06.08.2026

Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 5 minnkuð úr 701 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 649 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.



Minnkun lóðarinnar, 52 fm, rennur saman við upprunalandið,

Hellnafell, L136614 og F2114669 sem stækkar sem því nemur.



Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 7 minnkuð úr 652 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 624 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.



Minnkun lóðarinnar, 28 fm, rennur saman við upprunalandið,

Hellnafell, L136614 og F2114669, sem stækkar sem því nemur.



Hellnafell er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Fellasneiðar 5 og 7 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.