Málsnúmer 2607025

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 281. fundur - 06.08.2026

Borist hefur erindi frá Ungmennafélaginu um að skoða afmörkun landnotkunar ÍÞ-4 á skíðasvæðinu til samræmis við fyrirhugaða uppbyggingu. Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála bendir enn fremur á að skoða þurfi afmörkun á tjaldsvæði AF-2 og íþróttasvæði ÍÞ-5 í aðalskipulagi.

Einnig hefur verið umræða um hvort eigi að deiliskipuleggja þetta svæði ásamt hluta af upplandinu sem helst í hendur við Upplandsverkefni Icewater.



Nýleg skýrsla frá COWI um ofanvatn á þessu svæði gefur einnig tilefni fyrir heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið upp á gatnagerð, aðkomu og fleira.



Á sama tíma er verið að vinna að merkjalýsingu fyrir skíðasvæðið og nýtt aðstöðuhús en þar þarf að tilgreina skv. Byggingareglugerð:

Aðkomu og bílastæði

Snjómokstur og þjónustu (snúningsrými, aðkomu björgunaraðila)

Brunavarnir (fjarlægðir og aðgengi slökkviliðs)

Fráveitu/vatnsmál (rotþró ef við á)

Útisvæði / notkun í kringum hús (t.d. gestir, búnaður o.fl.)



Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála leggur fram fyrirspurn til nefndarinnar um framtíðarhorfur fyrir þetta svæði.
Málið lagt fram og verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála er þakkað fyrir góða kynningu. Góðar umræður voru um málið.