Óskað er eftir upplýsingum um hvort mögulegt sé að fá undanþágu frá ákvæðum um lágmarksfjarlægð mannvirkja frá vatnsborði vegna byggingar á frístundahúsi á landi Mýrarhúsa og breytingar á deiliskipulagi í samræmi við það.
Um er að ræða undanþágu frá gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er varðar fjarlægð frá vötnum, ám og sjó í dreifbýli. Félags- og húsnæðismálaráðherra veitir umrædda undanþágu að undangenginni umsögn sveitarfélags og Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar. Skipulags- og umhverfisnefnd getur fallist á þau rök sem lögð eru fram með fyrirspurninni en bendir á að samþykki landeigenda innan frístundabyggðasvæðis F1 í aðalskipulagi þarf að liggja fyrir við framlögn breytingar deiliskipulags.