Málsnúmer 2608006

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 659. fundur - 18.08.2026

Bæjarráð lauk yfirferð sinni á umsóknum um starf skipulags- og byggingafulltrúa. Umsóknarfrestur um starf skipulags og/eða byggingarfulltrúa rann út þann 15 júlí sl. Alls bárust 20 umsóknir og hefur bæjarráð farið yfir þær.

Bæjarráð fór yfir niðurstöðu ráðningarferlis vegna starfs skipulags- og/eða byggingarfulltrúa.

Að lokinni yfirferð umsókna, viðtölum og mati á fyrirliggjandi upplýsingum var það niðurstaða bæjarráðs að ekki yrði ráðist í ráðningu í starfið að svo stöddu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við þá aðila sem sinna í dag þjónustu skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélagið um áframhaldandi fyrirkomulag þjónustunnar og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.