Eftirfarandi tilkynningu lögreglustjórans á Vesturlandi er komið á framfæri samkvæmt beiðni

Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.

  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir. 
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga. 
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðislaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

Vinnum saman og hindrum frekari útbreiðslu smita. Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Lögreglustjórinn á Vesturlandi og formaður almannvarnanefndar Vesturlands

Úlfar Lúðvíksson