Ókeypis blóðsykursmæling í Grundarfirði 12. nóvember

Lionsklúbbur Grundarfjarðar býður upp á ókeypis blóðsykursmælingu fimmtudaginn 12. nóvember kl. 16:00–18:00.

Mælingin er haldin í samstarfi við HVE og sjúkraflutningamenn á svæðinu, sem sjá um framkvæmd hennar. Með þessu heldur klúbburinn áfram góðri hefð undanfarinna ára.

Nóvember er helgaður vitundarvakningu Lions um sykursýki. Verkefnið er liður í því að vekja athygli á sjúkdómnum og hvetja fólk til að huga að eigin heilsu.

Mælingin tekur aðeins stutta stund og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Lionsfélagar hvetja íbúa til að nýta tækifærið og láta mæla blóðsykurinn.

Lionsklúbbur Grundarfjarðar þakkar HVE og sjúkraflutningamönnum fyrir gott samstarf og framlag til verkefnisins.

Verið öll velkomin – fylgjumst með heilsunni!