LIFE-ICEWATER kynnir dag vatnsins sem verður haldinn hátíðlegur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar 22. mars næstkomandi. Á boðstólum verður fjölbreytt fræðsla fyrir allan aldur, listir, kynningar á fyrirtækjum og margt fleira.
 
Vatn er lífsnauðsynlegt – sama í hvaða mynd það birtist. Það er ís og snjór, rennandi vatn, sjór og votlendi, en einnig gufa og raki í loftinu. Vatn snertir allt í lífi okkar: vinnuna, afþreyinguna og sjálft lifibrauðið.
 
Fyrir rúmu ári síðan fékk Grundarfjarðarbær LIFE-styrk frá Evrópusambandinu til þess að bæta blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýlið hjá okkur þar sem aðalmarkmiðið er að minnka álag úrkomu á fráveitukerfið og skila af okkur hreinna vatni til sjávar, en með breyttu loftslagi eru stórir úrkomuviðburðir að aukast í bænum. Hægt er að lesa nánar um verkefnið okkar hér
 
Dagskrá hefst kl 14:00 og stendur yfir til kl 17:00
 

🧪Sprengju-Kata gerir tilraunir

👩‍🎨Andlitsmálning í boði 9. bekkjar Grunnskóla Grundarfjarðar

🐟Sjómannadagsráð býður upp á ýmislegt úr sjónum að skoða

🍲Lionsklúbbur Grundarfjarðar ætlar að bjóða upp á sína frægu fiskisúpu.

🎨Leikskólinn Sólvellir og 1. bekkur Grunnskólans verða með listasýningu

🎶Tónlistarskóli Grundarfjarðar býður upp á tónlistaratriði kl. 15:00

🍰9. bekkur Grunnskóla Grundarfjarðar verður með kökubasar

⛑️Rauði Kross Íslands verður með kynningu og fræðslu

🌊Hafrannsóknastofnun kynnir sig og sín verkefni

🌲Land og skógur verður með fræðslu um votlendi

🏔️Snæfellsjökulsþjóðgarður verður með kynningu á sinni starfsemi

✅Umhverfisvottun Snæfellsness, með fræðslu um umhverfismál

💧Svæðisgarðurinn Snæfellsnes - UNESCO Vistvangur

🪻Kvenfélagið Gleym mér ei verður með sölubás

🛟Björgunarsveitin Klakkur verður með sölubás og kynningu

🏊🏼Frítt í sund fyrir alla á milli kl 12:00-18:00 þennan dag

 
Hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman skemmtilegan og fræðandi dag.