- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Hápunktur hrekkjavökunnar verður að sjálfsögðu á sjálfan hrekkjavökudaginn 31. október.
Í garðinum hennar Bryndísar, Fellasneið 6, hefst lokaviðburður hátíðarinnar með pompi og prakt en afskaplega hæfileikarík og hræðileg ungmenni eru búin að sjóða saman skelfilegan gjörning og hefst hann kl. 18. Hrekkjavökuskógurinn opnar á sama tíma og verður opinn frá kl. 18 - 19.
Hrekkjavökugangan byrjar einnig á sama tíma og er því hægt að rölta fyrst í nokkur hús ef einhver vill byrja á því.
Við vekjum athygli á að skógurinn verður enn hræðilegri en áður, endilega haldið í hendur þeirra sem minnst hafa hjörtun.
Og eins og ávallt þurfum við að stóla á veðurguð þeirra strandamanna og því er þetta auglýst með fyrirvara um gott veður.