Málsnúmer 1504012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 468. fundur - 14.04.2015

Lagður fram ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2014.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn með áritun sinni og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 185. fundur - 14.04.2015

Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og Kristinn Kristófersson fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2014.

Allir tóku til máls.

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 869,7 millj. kr., þar af voru 733,8 millj. kr. vegna A-hluta.

Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð upp á 41,8 millj. kr. en rekstarafkoma A hluta var jákvæð um 13,1 millj. kr. Rekstrarniðurstaða er umtalsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir.

Framlegðarhlutfall rekstrar af samanteknum ársreikningi var 17,8% en 13,4% af A hluta.
Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins voru 1.435 millj. kr. og skuldaviðmið 161,1% en var 173,1% árið áður.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi er 492,8 millj. kr. í árslok 2014 og eiginfjárhlutfall er 25,6% en var 22,2% árið áður.

Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 105,7 millj. kr. og handbært fé í árslok 44,9 millj. kr. en var 63,5 millj. kr. árið áður.

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Grundarfjarðarbæjar árið 2014 til síðari umræðu.

Bæjarstjórn - 186. fundur - 12.05.2015

síðari umræða
Jónas Gestur Jónasson og Kristinn Kristófersson sátu fundinn undir þessum lið, fóru yfir ársreikning ársins 2014 og samanburð á ársreikningum sveitarfélaga á Snæfellsnesi.

Allir tóku til máls.

Ársreikningur Grundarfjarðar 2014 samþykktur samhljóða og undirritaður.