Málsnúmer 1611002F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 200. fundur - 08.12.2016

Allir tóku til máls.

Bæjarstjórn hrósar skólanefnd fyrir frumkvæði og vel unnin störf.
  • .1 1611018 Skólastefna
    Skólanefnd - 136 Lögð fram til umfjöllunar skólastefna Grundarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn Grundarfjarðar 29. apríl 2014.

    Almennt er skólanefnd ánægð með skólastefnu Grundarfjarðar. Til þess að fylgja henni eftir skal skólanefnd meta hvernig skólum Grundarfjarðarbæjar tekst að framfylgja henni. Nefndin mun fylgja stefnunni eftir á fundum með stjórnendum skólanna. Í þeirri yfirferð verður einnig lagt mat á hvort endurskoða þurfi einhver ákvæði stefnunnar. Í framhaldi mun nefndin gera tillögur um úrbætur ef ástæða er til.
  • Skólanefnd - 136 Lögð fram til umfjöllunar fjölskyldustefna Grundarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn Grundarfjarðar 15. maí 2006.

    Í stefnunni eru sett fram metnaðarfull áform um framtíðarsýn, fjölskyldustefnu, leiðir að markmiðum og eftirfylgni.

    Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að fram fari endurskoðun á gildandi fjölskyldustefnu eins og kveðið er á um í stefnunni.
    Bókun fundar Allir tóku til máls.

    Bæjarstjórn tekur undir tillögu skólanefndar og leggur til að stofnaður verði þriggja manna starfshópur til að yfirfara gildandi stefnu og gera tillögur að breytingum á henni. Bæjarstjóra falið að stofna starfshópinn.

    Starfshópnum verður jafnframt falið að yfirfara aðrar stefnur bæjarfélagsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skólanefnd - 136 Lagt fram upplýsingarit um einelti og kynferðislega áreitni á vinnustöðum, útg. af Vinnueftirlitinu. Ennfremur lögð fram reglugerð nr. 1000 um aðgerðir gegn einelti á vinnustað frá 2. des. 2004. Kynntar voru hugmyndir að eineltisstefnu fyrir sveitarfélag eða vinnustað, sem byggir á reglugerð um einelti.

    Skólanefnd telur mikilvægt að ávallt liggi fyrir á hverjum vinnustað sveitarfélagsins viðbragðsáætlun um það hvernig bregðast eigi við ef grunur leikur á að einelti sé til staðar á vinnustaðnum.

    Skólanefnd mælir með því við bæjarstjórn að unnin verði heilstæð eineltisstefna fyrir Grundarfjarðarbæ.
  • Skólanefnd - 136 Lögð fram jafnréttisáætlun Grundarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. apríl sl., en áætlunin byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 og jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar, sem hljóðar svo: Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.

    Skólanefnd lýsir ánægju með fyrirliggjandi jafnréttisáætlun og hvetur stjórnendur stofnana sveitarfélagsins til þess að fylgja henni eins og kostur er.
  • .5 1611022 Símenntunarstefna
    Skólanefnd - 136 Undir þessum lið var rætt um hvernig best verður staðið að því að hvetja starfsfólk stofnana sveitarfélagsins til mennta þannig að takast megi að auka menntunarstig starfsfólks hjá sveitarfélaginu.

    Skólanefnd mælir með að skipaður verði starfshópur sem geri tillögur að símenntun starfsmanna bæjarins.
  • .6 1611023 Önnur mál
    Skólanefnd - 136 Undir þessum lið var fjallað um tímaáætlun skólanefndar hvert starfsár, heimsóknir í stofnanir og fundi nefndarinnar.

    Jafnframt ræddi skólanefnd tímamót á leikskólanum í janúar 2017 þegar skólinn fagnar 40 ára afmæli. Skólanefnd mælir með því að haldin verði afmælishátíð af því tilefni, eins og lagt var til á 135. fundi nefndarinnar.

    Bókun fundar Allir tóku til máls.

    Bæjarstjórn tekur undir tillögu skólanefndar varðandi undirbúning afmælishátíðar vegna 40 ára afmælis leikskólans. Afmælishátíðin verður haldin 7. janúar 2017.